6.7.2018 | 14:05
Á að stórhækka einkabíla?
Frétt í Morgunblaðinu:
"Nýjar mengunarreglur gætu hækkað opinber gjöld á nýjar bifreiðar um tugi prósenta. Til dæmis gætu opinber gjöld á nýja og mikið selda bifreið hjá einu umboðanna hækkað úr 1,75 milljónum í tæpar 2,6 milljónir króna.
Þetta má lesa úr útreikningum Bílgreinasambandsins. Tilefnið er að nýjar mengunarmælingar eru að taka gildi í ESB. Þær eiga að endurspegla betur en núverandi reglur hvað bílar menga í raun með því að byggja á raunhæfari aðstæðum við akstursprófanir. Með því eykst mæld eldsneytisnotkun og þar með losun koldíoxíðs.
Reglurnar munu að óbreyttu taka gildi á Íslandi. Fram kom í Morgunblaðinu í júní að starfshópur í fjármálaráðuneytinu er að skoða málið. Bílgreinasambandið hefur stillt upp tíu dæmum um áhrif þessara breytinga á opinber gjöld á nýjar bifreiðar. Annað dæmi bendir til að opinber gjöld á tiltekna nýja bifreið muni hækka úr 1,059 milljónum í 1,518 milljónir. Hækkunin er rúm 43%.
Mengunargildin hækka Þriðja dæmið er að opinber gjöld á nýja bifreið hækka úr 950 þúsund í 1.300 þúsund. Sú bifreið mengaði samkvæmt gömlu skilgreiningunni 119 grömm af CO2 á km en 139 grömm með nýju aðferðinni. Gildin geta því breyst mikið og gjöldin þar með. Frá 2011 hafa vörugjöld á bíla á Íslandi tekið mið af losun koldíoxíðs. Sama gildir um bifreiðagjöld.
María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, segir breytingarnar geta fært bifreiðar upp um tollflokka. Útreikningar sambandsins bendi til að í einhverjum dæmum geti vörugjöld hækkað um 90% á dæmigerðum fjölskyldubíl. María segir rannsóknarskýrslur ESB benda til að sparneytnari bifreiðar með minni vélar muni frekar mælast með hærra gildi en eyðslufrekari bílar með stórar vélar. Að óbreyttu muni hækkun mælds útblásturs leiða til þess að bílar hækki í verði, einkum þeir sparneytnustu.
María bendir jafnframt á að verð á bílum hafi farið lækkandi. Það hafi átt þátt í að halda niðri verðbólgu. Árið 2017 var metár í sölu nýrra bifreiða á Íslandi. Sala til bílaleiga vó þungt. Fyrir vikið hefur meðalaldur bílaflotans farið lækkandi. María segir að ef nýju reglurnar taka gildi á Íslandi án mótvægisaðgerða geti bílverð hækkað um tugi prósenta. Sagan sýni að slíkar hækkanir dragi verulega úr sölu. Afleiðingin verði sú að það hægi á endurnýjun bílaflotans. Með því muni flotinn menga meira en ella.
Með yngri bílum á götunni erum við ekki aðeins að færast nær markmiðum okkar um að draga úr útblæstri heldur fáum við einnig bíla á götuna sem búa yfir öflugri öryggisbúnaði, segir María.
Bílgreinasambandið hefur fulla trú á að íslensk stjórnvöld séu tilbúin til að fara í mótvægisaðgerðir svo innflutningstollarnir haldist sambærilegir. Ef ekkert er gert má reikna með að verð á bílum hækki mikið í haust og í vetur. Þetta mun ekki einungis bitna á fyrirtækjum og einstaklingum, því einnig munu bílaleigubílar hækka mikið í verði sem getur aftur dregið úr eftirspurn í ferðaþjónustu.
Gunnar Rögnvaldsson hefur þetta um þetta að segja á sínu bloggi:
"Bjarni Benediksson formaður Sjálfstæðisflokksins er kannski við það að hefja lokaatrennuna gegn flokknum með því að framkvæma endanlegt pólitískt harakiri á Sjálfstæðisflokknum. En svo gæti farið ef lappirnar bregðast honum aftur, með þeim afleiðingum að vélknúin farartæki verða skattlögð út úr íslenska draumnum, sem þá breytist í enn verri ESB-martröð en orðið er. Enn svartari en þá martröð sem EES-samningurinn er að kalla yfir Ísland.
Uggandi Sjálfstæðimenn eru að komast í svo slæmt skap vegna þessa máls, að þeir mega varla mæla. Miðflokkurinn bíður eftir enn einni léttu bráðinni, fljótandi í innfluttu vatni."
Ætla stjórnvöld að láta þessar fyrirætlanir ESB yfir almenning ganga? Enn eitt CO2 bullið sem almennigur á að borga?
Á að stórhækka einkabíla og gleðja þar með Dag Bergþóruson og Hjálmar í meirihlutanum í Reykjavík?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:07 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko
Athugasemdir
þetta orti Afi þinn Jón Ólafsson en ég tel það nálægt Anchor Point í Cook inlet, Alaska þegar hann var það c.1876.Get sent þér þetta á annan stað s.s. Facebook ef þú ert með FB.
Valdimar Samúelsson, 6.7.2018 kl. 18:01
Bílar munu hækka og allar álögur á eigendur þeirra einnig, nafni. Allt í boði amlóðanna sem nú verma bekki forystu Sjálfstæðisflokksins. Fari sú forysta norður og niður, sökum undirlægju og eftirlátssemi við þvæluna alla, sem frá bulluseli vellur. Það er verið að stúta flokknum og fylgi hans. Allt í boði forystunnar. Undarlegt hve létt verk þetta virðist vera og mótstaðan lítil. Sjálfstæðisflokkurinn er ruslflokkur eins og er, sökum skelfilegrar krataforystu sem leiðir hann. Það er ekki flóknara en það.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 6.7.2018 kl. 22:50
Ég tek undir orð Halldórs Egils hér og ekki síður þín, Halldór Jónsson. Allt þetta mál lyktar af pólitísku ofstæki hjátrúarmanna sem hafa fyrir löngu verið afsannaðir, m.a. af Özuri Lárussyni í Bílgreinasambandinu. En verst er ekki þessi pólitíska CO2-hjátrú ein saman, heldur að þeir eru búnir að fasttengja sig við að elta ofríkisstefnu Bullusels-manna og þora ekki öðru, gungurnar makalausu. Burt með svo nefbeinslausa menn úr forystu stjórnmálaflokka!
Um aðra fáránlega frétt dagsins, þar sem gungulegir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í meintu "mannréttinda- og lýðræðisráði Reykjavíkurborgar" tóku þátt fáheyrðri aðför að frelsi fólks, fjalla ég hér: Fjarstæðukennd "einróma samþykkt" öfugmælaráðs sem án samráðs við borgarbúa vill þvinga bæði kyn til að baðast saman á sundstöðum!
Jón Valur Jensson, 7.7.2018 kl. 00:24
Tek undir med Halldori Agli.
Bjarni og hans slekti er ad eydileggja flokkin.
Iskallt mat, vafnialausnir, Ice hot 1 og svo
grenjad i beinni. Thvilikur formadur.
Sigurður Kristján Hjaltested, 7.7.2018 kl. 06:39
Góð grein Halldór. Ég negli þetta ekki á einn mann heldur er hér um að ræða reglu fargan EES/ESB sem stjórnin þorir ekki að hunsa.Annað hvort eru þeir á spena Brussel eða í gíslingu George Soros. Þá á ég við að hann hafi dreift pening meðal einhverja mektarmanna sem svo halda í taum þingmanna. NoBorder fólkið hefir þagnað fyrir löngu og kannski eru með aðra taktík.
Kannski fór ég í annan kafla hér að ofan en varðandi CO2 þá er vöntun á því í andrúmsloftið en þetta vita allir en gróði ESB er í kolefnagjaldinu og hér hafa verið stofnuð gervi flugfélög skráð hjá umhverfisráðuneytinu sem hafa eignað sér kolefna kvóta og munu sjálfsagt versla með hann.
Valdimar Samúelsson, 7.7.2018 kl. 10:56
Vona að þú sért við góða heilsu, kæri Halldór, þótt svör þín hafi dregizt.
Jón Valur Jensson, 7.7.2018 kl. 13:20
Takk fyrir það Jón Valur, ég er oft latur líka.
Halldór Jónsson, 7.7.2018 kl. 19:56
Sárt ertu leikinn Sámur fóstri. varð Gunnari á Hlíðarenda þegar hann heyrði dauðavein hundsins síns.
Okkur Sjálfstæðismönnum rennur til rifja niðurlæging flokkssins okkar. Hæddur og smáður, rægður og rógborinn.
Ég tek út með öllum gömlum Sjálfstæðismönnum. Hver ætlar að hrssa mig við?
Halldór Jónsson, 7.7.2018 kl. 19:59
Gerði Davíð það ekki með Reykjavíkurbréfi sínu í gær? Mér var sagt yfir kirkjukaffi, að það væri með bezta móti og tekið hraustlega á ESB-málum, sem og á flóttamanna- og hælisleitendamálum. Sjálfur á ég eftir að lesa það.
Jón Valur Jensson, 8.7.2018 kl. 12:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.