7.7.2018 | 19:54
Hvað hugsar okkar fólk?
Er ekkert að breytast hjá okkur hvað varðar þennan EES samning? Á allt að vera óbreytt?
Páll Vilhjálmsson veltir þessu raunsætt fyrir sér:
" Bretar gera tvíhliða samning við Evrópusambandið við úrsögn úr sambandinu, Brexit. Það þýðir að EES-samningur Íslands, Noregs og Liechtenstein við Evrópusambandið er í reynd úr sögunni.
Samningur Breta við ESB mun kveða á um minni afskipti sambandsins af breskum innanríkismálum. Að öðrum kosti hefðu Bretar kosið að ganga inn í EES-samninginn.
Samningur Breta og ESB liggur ekki fyrir. En bæði í London og Brussel er gert ráð fyrir að um tvíhliða samning verði að ræða. Ísland ætti þegar í stað að undirbúa uppsögn EES-samningsins með það í huga að gera tvíhliða samning við ESB. Þegar liggur fyrir að fríverslunarsamningur ESB og Kanada getur orðið fyrirmynd. Eftir Brexit-samninginn er komið annað fordæmi."
Er allt óbreytt hérlendis?
Hugsar okkar fólk ekki neitt nýtt?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko
Athugasemdir
Innleiðingarhallinn ekki verið minni í 8 ár
Samkvæmt nýbirtu frammistöðumati ESA nemur hann hann einu prósenti en fyrir fimm árum var hann 3,2 prósent.
Mjög hefur dregið úr innleiðingarhalla Íslands á tilskipunum Evrópusambandsins. Samkvæmt nýbirtu frammistöðumati ESA nemur hann einu prósenti en fyrir fimm árum var hann 3,2 prósent.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) gefur tvisvar á ári gefur út frammistöðumat þar sem tekinn er saman árangur EFTA-ríkjanna þriggja innan EES við innleiðingu EES-gerða. Samkvæmt nýbirtu frammistöðumati ESA bætir Ísland sig umtalsvert þegar kemur að innleiðingu á tilskipunum Evrópusambandsins. Í frammistöðumatinu kemur fram að að innleiðingarhalli Íslands á tilskipunum nemur einu prósenti. Miðað var við stöðu innleiðinga þann 31. maí 2018 og voru óinnleiddar tilskipanir Íslands þá átta talsins.
„Það er ánægjulegt að sjá hve mikið hefur dregið úr innleiðingahallanum á undanförnum misserum enda hef ég lagt á það sérstaka áherslu síðan ég varð utanríkisráðherra. Með fullnægjandi framkvæmd EES-samningsins almennt getur Ísland skapað sér betri stöðu til að hafa áhrif á mótun lagasetningar ESB snemma í ferlinu og jafnvel til að fá undanþágu eða sértæka aðlögun á gerð þar sem miklir hagsmunir eru í húfi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Frammistaða Íslands hvað varðar innleiðingu á tilskipunum hefur batnað mikið á síðustu misserum og hefur Ísland ekki staðið betur að vígi í átta ár eða frá árinu 2010. Í frammistöðumatinu er Íslandi hrósað sérstaklega fyrir bættan árangur og eru íslensk stjórnvöld hvött til að halda áfram á sömu braut. Í síðasta mati, sem gert var opinbert fyrir um hálfu ári síðan, var innleiðingarhalli Íslands 1,8 prósent og þar áður 2,2 prósent. Til samanburðar náði innleiðingarhalli Íslands hámarki á fyrri hluta ársins 2013 þegar hann nam 3,2 prósent.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.7.2018 kl. 21:35
Sjálfstæðisflokkurinn hefur sett met í innleiðingarhraða tilskipana frá Brussel.
Og þú kallar forustu hans, þína menn, Halldór minn. Vituð ér enn, eða hvat?
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.7.2018 kl. 21:55
"Okkar fólk" er ekki lengur okkar fólk nafni, heldur farþegar Trojuhests sem gert hefur innrás í Sjálfstæðisflokkinn, með eða ómeðvitað. Ef ómeðvitað og sjálfkrafa, algerir aular og ljóst að aldrei var innistæða fyrir veru þeirra í flokknum. Kann að hljóma "drastískst" en staðreynd engu að síður.
Hvað er til ráða til að hressa við gamla sanna sjálfstæðismenn, sem fyrirlíta núverandi forystu, sökum brygsla við stefnuna, er ekki gott að segja. Á landsfundum hafa þeir enga rödd lengur, sökum uppivöðslusamra krata sem þola enga skoðun aðra en sína eigin.
Hvar getur hinn almenni Sjálfstæðismaður látið í sér heyra, svo eftir verði tekið?
Spyr sá sem ekkert veit.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 7.7.2018 kl. 22:37
Það er hárrétt sem Gunnar Rögnvaldsson hefur sagt:
Bjarni Benediksson formaður Sjálfstæðisflokksins er við það að hefja lokaatrennuna gegn flokknum með því að framkvæma endanlegt pólitískt harakiri á Sjálfstæðisflokknum.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.7.2018 kl. 23:08
Mín pólitíska sýn hefur alla tíð verið sú að nauðsynlegt sé að Sjálfstæðisflokkur sé við völd á Íslandi. Að þannig verði sjálfstæðinu við haldið. En nú er ég farinn að efast.
Eftir tvennar kosningar á tveim árum, hefur þessi flokkur valið til samstarfs flokka sem í engu skipta sjálfstæði þjóðarinnar, fyrst Viðreisn, sem stofnað var um það eitt að koma landinu undir ESB og síðan VG, sem enn er fast í fræðum Marx og Lenín.
Það er því ætíð að koma betur í ljós að Sjálfstæðisflokkur er kominn verulega af leið. Frelsi til hugar og handa er ekki lengur kjörorð þessa flokks.
Verið getur að ekki hafi orðið næg hreinsun laumukrata innan flokksins, þegar Viðreisnar flísin var tálguð af honum, en verra er þó að nú virðist þessi flokkur vera farinn að aðhyllast kommúnisma!
Svei!!
Þegar gengið verður til Alþingiskosninga næst, líklega snemma á næsta ári, er ljóst að flokkurinn mun bíða afhroð!!
Gunnar Heiðarsson, 8.7.2018 kl. 08:06
Sú var tíðin, að forysta Sjálfstæðisflokksins og þingmenn hans höfðu lag á að grípa utanríkispólitísk tækifæri, sem gáfust. Nú virðist utanríkisstefna flokksins vera botnfrosin. Það skortir áræði og hugmyndaflug. Embættismenn og fáránlegur rétttrúnaður ráða för. Ef ekki verður gripið tækifærið, sem í BREXIT felst, EES-moðverkinu sagt upp og leitað eftir fríverzlunarsamningum, þá hefur flokkurinn glatað forystuhlutverki sínu í íslenzkum utanríkismálum, og slíkt verður ekki látið átölulaust að hálfu kjósenda. Miðflokkurinn sleikir út um og er tilbúinn að taka við keflinu.
Bjarni Jónsson, 8.7.2018 kl. 10:58
Það er margt athyglisvert sem hér er skrifað, en það athyglisverðasta að Guðlaugur Þór hæli sér af því hvað hann er duglegur við að innleiða tilskipanir frá Brussel.
Og svo fullyrðingin um að eftir Brexit verði ekkert EES. Sé svo, til hvers er þá Guðlaugur Þór að innleiða allar ESB tilskipanirnar, nema til að þjónka ESB búrakrötunum og ... Teresu May? Sem leiðir hugann að blekkingarleik bresku, og íslensku ríkisstjórnarinnar.
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 8.7.2018 kl. 13:25
Hér er vert að ítreka enn og aftur og undirstrika það sem Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Steingríms J. og Bjarna Benediktssonar, segir:
Með fullnægjandi framkvæmd EES-samningsins almennt getur Ísland skapað sér betri stöðu til að hafa áhrif á mótun lagasetningar ESB snemma í ferlinu
Hið sama hefur Samfylkingin alltaf sagt, og sem nauðsynlega aðlögun fyrir endanlega inngöngu Íslands í ESB.
Við munum öll nákvæmlega dagsetninguna, þegar Steingrímur J. gekk í Samfylkinguna,
en man einhver dagsetninguna og ártalið hvenær Guðlaugur Þór og Bjarni Benediktsson gengu einnig formlega í Samfylkinguna?
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 8.7.2018 kl. 14:05
Mjök erumk tregt tungu að hræra... gegn ykkur sem hér massið á flokkinn minn gamla og það sem þið kallið "mína menn".
Því miður hafið þið margt til ykkar máls góðu drengir. Ég hef ekki getað stutt refsiaðgerðir gegn Rússum þó Gulla þyki þær sniðugar.Ég get ekki stutt aukinn innleiðingarhraða EEs þegar ég er fyrir löngu kominn í andstöðu við þennan samning og vil segja honum upp.
Ég styð þessvegna ekki þessa skoðun Guðlaugs ÞórS.
"Með fullnægjandi framkvæmd EES-samningsins almennt getur Ísland skapað sér betri stöðu til að hafa áhrif á mótun lagasetningar ESB snemma í ferlinu "
Halldór Jónsson, 8.7.2018 kl. 15:49
Kollege Bjarni.
"Sú var tíðin, að forysta Sjálfstæðisflokksins og þingmenn hans höfðu lag á að grípa utanríkispólitísk tækifæri, sem gáfust. Nú virðist utanríkisstefna flokksins vera botnfrosin. Það skortir áræði og hugmyndaflug. Embættismenn og fáránlegur rétttrúnaður ráða för. Ef ekki verður gripið tækifærið, sem í BREXIT felst, EES-moðverkinu sagt upp og leitað eftir fríverzlunarsamningum, þá hefur flokkurinn glatað forystuhlutverki sínu í íslenzkum utanríkismálum, og slíkt verður ekki látið átölulaust að hálfu kjósenda. Miðflokkurinn sleikir út um og er tilbúinn að taka við keflinu. "
Er forysta Sjálfstæðisflokksins ekki í sömu sporum og Merkel? Búin að glata trúverðugleikanum og tækifærunum til að ræða við aðra flokksmenn en jess-mennina sína?
Halldór Jónsson, 8.7.2018 kl. 15:53
Geta ekki einhverjir framtaksamir hafið undirskriftarsöfnun um uppsögn EES-samningsins, a.m.k. að samningurinn verði borin undir þjóðaratkvæðisgreiðslu?
Jóhannes (IP-tala skráð) 9.7.2018 kl. 17:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.