Leita í fréttum mbl.is

Þingfundurinn á Þingvöllum

fór hið besta fram tæknilega.Sviðsetningin var óaðfinnanleg, ræðumenn voru ágætir og kórinn söng vel.Verst hvað henni Katrínu var kalt. Það hefðu mátt vera einhverjir geislahitarar í rjáfrinu til þess að konan fái ekki kvef. 

Ekki veit ég hvort margir söknuðu þess að hafa ekki Píratafésin fyrir augunum á þingpallinum. En það voru 57 þingmenn mættir til að samþykkja fyrirliggjandi mál þannig að þetta slapp allt án þeirra. Vonandi var Braga Guðbrandssyni boðið í almenn sæti með Ólafi Ragnari og öðru stórmenni þó ég hafi ekki komið auga á hann karlgreyið frekar en Styrmi Gunnarsson.

Ekki virtist þetta kveikja sérstakan neista meðal þjóðarinnar sem lét mest ekki sjá sig. En einhverjir túristar á Lögbergi prýddu samkunduna og koma vonandi með einhvern gjaldeyri í nýja Bjarna Sæmundsson þegar búið er að borga reikninginn fyrir þetta allt saman.

Hugsanlega eru svona uppákomur eins og þessi þingfundur á Þingvöllum  ekki lengur í tísku meðal þjóðarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Sammála Halldór. Þetta var góð samkunda en Forseti okkar hefði mátt ávarpa þjóð fyrst með ræðu sinni í stað þess að vera að kela við kellu sína.

Pía kunni betur að ávarpa háttvirtan þingheim og forseta ásamt Íslensku þjóðinni en nokkur annar á þessu þingi hver svo sem skoðun hennar er en hún truflar ekki mig.

Ég var líka fegin að þessir Píratar voru ekki sjáanlegir og engin söknuður þar.   

Valdimar Samúelsson, 18.7.2018 kl. 16:52

2 identicon

Sælir: Halldór, sem og Valdimar - líka sem aðrir gestir Halldórs Verkfr. !

Halldór og Valdimar !

Þó svo - Píratar hafi hlaupið óþarflega á sig, vegna komu og ræðu Piu Kjærsgaard, á þennan hjákátlega Þingvallafund, mega menn ekki gleyma innihaldsleysi samkomunnar, þar efra.

Fullveldis hugtakið: er fyrir löngu svo útþynnt (með NATÓ og EFTA/EES/Schengen aðild landsins), að það er fyrir löngu snúið upp í andhverfu sína, piltar.

Piu Kjærsgaard - mega Danir sem og margir annarra hér á Vesturlöndum þakka, hversu eindregna mótstöðu hún hefur sýnt í gegnum tíðina, gagnvart uppivöðzlu og ágangi Múhameðskra í okkar Heimshluta sem víðar, mun seint fullþakkað henni, sem verðugt væri.

Píratar: flaska á þeirri GRUNDVALLAR staðreynd, að = merkið má setja á milli Nazista Þýzkalnds Hitlers forðum, sem og hinna Múhameðsku, hvað:: sem hræsni Píratanna í tali, um þennan og hinn svo kallaða minnihluta hópinN má segja til og frá, í gegnum söguna.

Hinsvegar - verður þeim hluta Pírata hópsins, sem NENNT hefur og ÞORAÐ, að fletta ofan af ýmsum fjárhagslegum hryðjuverkum Engeyinganna (Bjarna Benediktssonar: og hinnar ógeðfelldu ættar hans), mjög seint þökkuð sú vinna, sem Björn Leví Gunnarsson hefur, ásamt Halldóru Mogensen og stöku annarra fylgt efir, í orðræðu og margs konar eftirgrennzlan.

Þar: kemur margt til skoðunar:: sbr. Macaó Vafningar Bjarna, auk Panama pappíra, fyrir utan þörfina á frekari rannsóknum á umgengni Einars Sveinssonar t.d., á Sjóvár sjóðum, auk tengzlanna við Lífeyrissjóða Mafíuna, ekki hvað sízt.

En eftir stendur - að Píratar eiga eftir að átta sig vonandi á, hversu mikils virði Pia Kjærsgaard er Vestrænni siðmenningu, þrátt fyrir þessa óþörfu þátttöku hennar, í skrautsýningu alþingis froðunnar, í dag !

Með beztu kveðjum samt: sem endranær, af Suðurlandi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.7.2018 kl. 17:57

3 identicon

Mér finnst að alþingismenn og aðrir hátíðargestir hefðu átt að taka Þorgeir Ljósvetningagoða sér til fyrirmyndar og hafa hlýjan loðfeld meðferðis.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 18.7.2018 kl. 18:02

4 identicon

Fáir sakna Pí-hratsins, og mættu þeir gjarna sleppa því oftar að mæta á samkomur. Þeir gætu t.d. sleppt því að mæta á Alþingisfundi. Ég er alveg fullviss um að öðrum Alþingismönnu væri ósárt um, að þeir fengju bara borgalaun, fyrir þann greiða að mæta ekki í vinnuna.

Hvað Helgu Völu snertir, þá þarf hún náttúrulega að spila sig í hlutverk húmanistans, enda á lögfræðistofa hennar mikið undir, að viðhalda þeim góða straumi fjármuna, frá ríkiskassa okkar skattgreiðenda, yfir á hlaupareikning stofunnar.

Þegar svo mikið er undir í fjárhagslegri afkomu Helgu Valar og fjölskyldu, þá er alveg sjálfsagt að koma því sem víðast við í ræðu, riti og framkomu, að allir þeir sem ekki samþykkja skilyrðislausan innflutning fúlskeggjaðra barna frá löndum íslams, með aðstöð lögmanna nota bene, séu bölvaðir rasistar og almenn ógeð.

Hilmar (IP-tala skráð) 18.7.2018 kl. 19:02

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk Hilmar netop það sem rétt er

Takk Valdimar.

Að horfa á Píratann hvað hann heitir þessi með skipt í miðju.Skelfilegt

Halldór Jónsson, 18.7.2018 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband