Leita í fréttum mbl.is

Ráðleysi kommaflokkanna

í Borgarstjórn opinberaðist ágætlega í gær þegar þeir  sögðust ætla að ræða úrbætur í húsnæðismálum utangarðsfólks. Þeir gátu ekki tekið á vandamálinu nema að samþykkja að finna lóðir undir 25 smáhýsi að tillögu minnihlutans. Annað gátu þeir ekki gert neitt raunhæfara.

Allir vita að flækjustig stjórnsýslunnar hjá Reykjavíkurborg er þvílíkt að ekkert verður úr framkvæmdum á þessu ári og hugsanlega heldur ekki á því næsta. Þorvaldur Gissurarson stórverktaki lýsir því ágætlega í viðtali í dag hvernig þetta leiðir til þriðjungs dýrara húsnæðis en á Selfossi.

Málið er eftir því sem áður að engar lóðir eru fáanlegar og væri einhversstaðar til lóð á vitrænu verði þá gerir flækjustigið í regluverkinu það að verkum að allt er fast um óratíma.

Ef einhver stingi upp á því að útvega lóðir fyrir smáhýsi til að leysa húsnæðisvanda ungs fólks í heimahúsum yrði sá hinn sami stimplaður geðveikur bjartsýnismaður sem ekki ætti heima í Reykjavíkurborg og ætti að hypja sig annað.

Meirihlutinn í Borgarstjórn Reykjavíkur er gersamlega óhæfur hópur froðusnakkara sem skilur ekkert nema fimbulfamb og  draumóra á félagslega sviðinu og útþenslu skrifstofuhalds Borgarstjórans sem óðum nálgast milljarðinn.

Það er skelfileg staðreynd að Borgarbúar skuli hafa slysað þessum flokkum til valda með óþarfa fjölgun Borgarfulltrúa sem sanna hið fornkveðna um heimskra manna ráð.

Ráðleysi kommaflokkanna í Borgarstjórn Reykjavíkur er algert í hverju sem er.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Björn Bjarnason greinir árangur fundarins svo:

 

" lok viðtalsins sagði Heiða Björg að hún teldi fundinní borgarráði ekki breyta miklu:

 „Ég held að þessi fundur muni ekki breyta neinu, en gott er að setja nýja borgarfulltrúa inn í málið.“

Með „nýjum borgarfulltrúum“ á Heiða Björg væntanlega við þá nýju borgarfulltrúa sem starfa með henni í meirihluta borgarstjórnar. Hún leit á fundinn í borgarráði sem tækifæri til að fræða þá um að þeir sem setið hafa í borgarstjórn viti allt um þetta mál þótt þeir hafi ekki gert annað en safna saman tölum sem sýna að á fáeinum árum hefur heimilislausum í Reykjavík fjölgað um 95%.

Þá hefur Heiða Björg einnig sagt félögum sínum að þeir skyldu bara vísa málinu til meðferðar í ráðinu hjá sér auk þess sem þeir ættu að skella skuldinni á önnur sveitaefélög og ríkisvaldið. Allt gekk þetta eftir enda í samræmi við það sem gerst hefur á þessum vettvangi undanfarin ár.

Það var bjartsýni hjá minnihluta borgarstjórnar að halda að hann fengi einhverju breytt í vinnubrögðum meirihlutans. Krafa minnihlutans um fundi vegna málsins hefur þó orðið til að sýna betur ómarkviss vinnubrögð meirihlutans – húsnæðislausum heldur einfaldlega áfram að fjölga fari svo sem horfir."

Að hugsa sér hvílk steinblindni þjáir þetta kommadót.

 

 

Halldór Jónsson, 1.8.2018 kl. 12:55

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Það sýnir mikið ráðleysi bloggseigandans að vitna í Björn Bjarnason yell

Jón Ingi Cæsarsson, 2.8.2018 kl. 09:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband