18.8.2018 | 11:29
Borgarmálin
eru ofarlega á baugi nú nýverið. Deilur rísa hátt og Borgarfulltrúi jafnréttis og félagsmála ullar á vitleysingana hinu megin við Borgarstjórnarborðið þegar orð fá ekki lýst heimsku þeirra.
Reykjavíkurbréfið fjallar um þessi mál af stakri snilld í dag og ég tek það upp hér mér til ánægju:
"Það er heldur önugt að horfa upp á hversu stjórnarfarinu í höfuðborg landsins hefur hrakað. Og hefur hallað undan fæti um alllanga hríð.
Þjónustulund er lykilorðið
Sveitarfélag er svæðisbundið yfirvald sem er komið á til að veita ákveðna grundvallarþjónustu. Vilji borgar-/bæjarstjórnin það, getur hún svo sem ákveðið að fara nokkuð út fyrir það. En hún býr þó við valdmörk. Þannig getur hún ekki blandað sér í ákvarðanir sem að lögum eru faldar öðrum og er óheimilt að hlutast til um þær og síst til að draga úr áhrifum hins lögmæta aðila. Verkefni sveitarfélaga eru prýðilega skilgreind. Önnur sem segja má að lúti hinum óskráðu reglum, þeim sem Píratar vilja vita hvar eru skráðar, snúast einnig um að veita íbúum viðkomandi sveitarfélags þjónustu, þótt hún sé ekki endilega lögbundin.
Þetta er ekki flókið
Íbúarnir eru vel með á nótunum. Þeir vilja að sveitarfélagið sitt sé sem þægilegast og snyrtilegast og að flæði um það sé lipurt, aðgengilegt og hættulítið. Þeir vilja að verk sem vinna þarf séu unnin hratt og skipulega og með sem minnstri truflun fyrir almennt gangverk sveitarfélagsins. Þau opinberu merkikerti sem eru föst í þeim misskilningi að tilvera sveitarfélaganna snúist um það hvort þau náist á mynd eða ekki, en ekki um hag íbúanna, ættu að fara í annað og byrja á því að kaupa sér stóran spegil og koma honum haganlega fyrir heima hjá sér.
Svo var það fyrir átta....
Síðustu tvö kjörtímabilin hafa verið sérlega niðurlægjandi hvað borgina snertir í framangreindum efnum, en sumt var vissulega byrjað áður. Þjónustan hefur skroppið saman og sú sem er hefur þyngst og er jafnvel talin eftir og allar klær hafðar úti að krækja sér í aur úr vösum borgarbúa. Við þetta bætast svo næsta ótrúlegir hlutir. Eitt aðaleinkennið og það alvarlegasta er að það er lítið og jafnvel ekkert að marka yfirlýsingar borgaryfirvalda um hvað hafi verið gert, hvað sé verið að gera eða hvers sé að vænta í næstu framtíð. Þegar teknar eru saman yfirlýsingar Dags B. Eggertssonar um lóðamál borgarinnar síðustu átta árin og hvers sé að vænta, myndskreyttar með glærum og kynntar á fjölmörgum fundum, er eins og nú sé horft á eyðimörk þar sem lofað var aldingarði. Óheilindi og blekkingar eru megineinkennin sem blasa við þeim sem rýna í það sem sagt var og leita efnda.
Endaskipti á úrslitum
Samfylkingin beið afhroð í kosningum til borgarstjórnar vorið 2010. Í því fólst krafa kjósendanna um að hún héldi sig frá stjórn borgarinnar næsta kjörtímabil. En þeim var gefið langt nef. Látið var heita að Jón Gnarr, fyrir hönd Besta flokks, sem gufaði upp að kjörtímabilinu loknu, færi með embætti borgarstjórans. Það var eingöngu illa heppnað grín eins og skemmtiþættir með sama heiti reyndust líka og var hent fyrir vikið. Jón Gnarr mátti eiga það að hann lét aldrei eins og hann sinnti embætti æðsta manns borgarinnar. Hann tók ekki á móti borgarbúum sem vildu fá úrlausn sinna mála og það þóttu sérstök tíðindi ef hann opnaði munninn á borgarráðsfundi þar sem allar þýðingarmestu ákvarðanir borgarinnar eru þó teknar. Hann sagðist í upphafi ætla að svíkja öll sín kosningaloforð nema eitt, sem hann sveik reyndar líka.
Illa leikin loforð
En það er þó fjarri því að nokkuð bendi til þess að Gnarr hafi verið slakari borgarstjóri heldur en Dagur Eggertsson, sem fór með völdin á bak við tjöldin í tíð Gnarrs og tók svo formlega við fjórum árum síðar. Dagur gaf miklu fleiri loforð en Gnarr og sveik þau flest. Þannig náði hann að svíkja fleiri loforð en Gnarr, sem þó sveik öll sín að eigin sögn. Það er að renna upp fyrir sífellt fleirum að Dagur er eingöngu yfirborð. Þruglkenndir illskiljanlegir langhundar sem hann fer með eru ekki sérstök tækni eins og einhverjir héldu um skeið. Hann er bara svona. Tveimur vikum fyrir síðustu kosningar og eftir átta ár við völd tók hann óvænt að lofa því að setja Miklubraut í stokk og voru verktakar þá í óða önn að láta handraða grjóti í net beggja vegna við hana og áttu enn ófrágengið verkið Klambratúnsmegin! Þeir vissu ekki hvort þeir ættu að trúa á stokk eða steina.
Altækt ábyrgðarleysi
Þótt góðæri ríki í landinu og skatttekjur streymi inn í borgarsjóð þar sem skattpíning er eins mikil og lög frekast leyfa er fjárhagsstjórnin samt í uppnámi, og upplýsingar um fjárhagsstöðuna eru út og suður svo enginn skilur, og síst sá sem fær borguð forsætisráðherralaun fyrir það. Fjárhagsstjórnunin er þó þýðingarmesta verkefni hvers borgarstjóra. Fasteignagjöld, sem lögð eru á borgarbúa og eru öðrum þræði þjónustugjöld, hafa hækkað mjög óeðlilega vegna þess að fasteignaverð hefur rokið upp og ekki síst vegna heimatilbúins vanda í langstærsta sveitarfélagi landsins. Borgarstjórinn hefur nú árum saman verið með glærusýningar og slengt um sig loforðum um lóðaúthlutanir sem ekkert hefur orðið úr. Þegar tjaldið féll og veruleikinn varð ljós hrundu væntingarnar og fyrirsjáanlegur viðvarandi lóðaskortur ýtti fasteignaverðinu í hæstu hæðir. Borgarstjórnin eyðir sínum tíma helst í að tryggja að auðmenn geti keypt sér miðlægar eignir á 400 milljónir króna íbúðina og þykjast með því vera að greiða götu ungs fólks til að koma þaki yfir höfuðið! Því til viðbótar hafa nú verið lögð á viðbótarbyggingargjöld á hverja byggða íbúð og talsmenn borgarbúa segja að þau gjöld hafi engin áhrif á verð íbúða í borginni. Hvern er verið að blekkja? Halda þessir borgarfulltrúar að borgarbúar séu almennt vöntunarmenn í vitsmunum?
Einu skýringarnar
Þar sem Gnarr er farinn er óþarfi að gefa sér að fáránlegar fullyrðingar af þessu tagi séu hluti af framúrstefnulegri fyndni eða hluti af gerð sjónvarpsþátta næsta kjörtímabils. Og þá fækkar hugsanlegum skýringum. Tvær koma helst upp í hugann. Sú fyrri að þessir talsmenn hafi ekki grænan grun um út á hvað mannleg tilvera í borginni gengur eða að þeir telja sér trú um að blekkingarleikur af þessu tagi gangi endalaust upp, m.a. vegna þess að hin makalausa fréttastofa RÚV tekur utan stans fullan þátt í fáránleik sinna manna. Skemmst er að minnast þess að þegar nýkosnir borgarfulltrúar höfðu lappað upp á tapara kosninganna, Samfylkinguna, lýstu þeir því stoltir yfir að í sumar yrði einum leikskóla haldið opnum í hverju borgarhverfi. Borgarstjórinn hafði setið alla fundi um myndun meirihlutans. Hann hafði bersýnilega gefið nýliðunum, blautum á bak við eyrun, það til kynna að þetta gæluverkefni væri fær leið. Hvaða leikskólastjóri sem var hefði getað upplýst þá á stundinni um það að ekki væri heil brú í þessu tali, því borgin væri í hreinum vandræðum með að starta venjubundinni starfsemi sinni í haust vegna skorts á fagfólki. Eftir að einn leikskólastjórinn undraðist þetta hjal var rætt við borgarstjórann. Sá hélt öllu opnu (í byrjun júní) og sagði málið í vinnslu, þótt auðvitað væri ekki hægt að slá því föstu(!) að þetta tækist. Það getur varla verið keppikefli nokkurs að vera svona ómerkilegur. Hvers vegna fer borgarstjórinn í Reykjavík með svona fleipur og ruglar foreldra í borginni í ríminu og vekur með þeim falskar vonir? Ekki var rætt við nýju fulltrúana í meirihlutanum sem gerðir höfðu verið að kjánum, enda þeir þá orðnir uppteknir við að ræða skipulag klósettmála í sínu næsta nágrenni á borgarskrifstofunum! Ekki nokkur hlutur bendir til þess að þetta mál hafi nokkurs staðar verið til athugunar, enda vissi hvert barn það sem borgarstjórinn þóttist ekki vita. Yfirlýsingar helstu talsmanna borgarinnar fyrir kosningar um hvaða börn fengju þjónustu á leikskólunum eftir kosningar eru enn í uppnámi.
Áður óþekkt
En það nýjasta og áður óþekkta í sögu borgarinnar, sem lengi var það sveitarfélag sem öfundsverðast þótti, er þó framganga sumra embættismanna hennar í garð kjörinna fulltrúa hennar. Enginn alvöru borgarstjóri hefði nokkru sinni liðið embættisliði sínu að fara þannig fram. Skrifstofustjórar borgarstjórnar á borð við Jón G. Tómasson og Gunnar Eydal eða borgarritarar eins og Gunnlaugur Pétursson og síðar Jón G. Tómasson gættu mjög og af festu að rétti borgarfulltrúa og hinni einstæðu og mikilvægu stöðu borgarstjórnar. Borgarfulltrúar, hvar í flokki sem þeir stóðu, gátu öruggir leitað til þessara manna um faglegar upplýsingar og þeir voru þekktir að því að taka málstað borgarfulltrúa ef einstakir embættismenn héldu frá þeim upplýsingum sem þeim bar að eiga aðgang að og óskuðu eftir.
Engin viðbrögð
Fyrir nokkru féll héraðsdómur í furðulegu eineltismáli háttsetts embættismanns borgarinnar. Hann var um einstaka orðalag full litríkur fyrir bréfritara og minnti í því efni nokkuð á dóma sem viðgangast í bandarísku réttarfari. En efnislega var hann þó mjög afgerandi og reyndar svo afgerandi að borgaryfirvöld sáu sitt óvænna og áttuðu sig á að ekki væri gott ef þessi dómur færi lengra í dómskerfinu svo að hneisa borgarinnar yrði enn meiri. Það er undarlegt, svo ekki sé meira sagt, að sjá túlkun borgarritarans á því hvað þessi dómur þýddi og óefnislegan orðaleik hans um það hvort dómurinn hafi réttlætt það að eineltisembættið hafi mátt, að formi til, veita undirmanni áminningu. Það var ekki deiluefnið. En undarlegast er að engin viðbrögð hafa verið innanhúss við þessu áfalli orðspors borgarinnar og engin skref stigin í framhaldinu til að losa sig við ónothæfa starfsmenn. Enginn býst við neinum viðbrögðum frá Degi Eggertssyni, sem myndi líklega byrja á því að fá vottorð frá undirsáta um að honum væri þetta mál jafn óviðkomandi og annað í borgarrekstrinum. En það kemur á óvart að æðstu stjórnendur, í næstu tröppu fyrir neðan ábyrgðarleysið algilda, séu orðnir svona samdauna hinni duglausu yfirstjórn.
Mikið rétt
Þetta er áhyggjuefni og því ástæða til að taka undir eftirfarandi orð Björns Bjarnasonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra og borgarfulltrúa í Reykjavík: Á tæpum tveimur mánuðum hafa birst frásagnir af fimm málum þar sem dómari, kærunefnd jafnréttismála, umboðsmaður alþingis og umboðsmaður borgara komast að þeirri niðurstöðu að illa hafi verið staðið að stjórnsýslu á vettvangi borgaryfirvalda.
Eftir kosningarnar í vor og með komu nýs fólks í borgarstjórn hefur aðhaldið að meirihlutanum aukist. Viðbrögðin bera með sér að kjörnir fulltrúar meirihlutans hafi ekki burði til að takast á við nýja stöðu. Þeir siga embættismönnum borgarinnar á minnihlutann.
Þetta er fáheyrt.
Það er hverju orði sannara.
Og enn dapurlegast er að þeir embættismenn sem í hlut eiga skuli láta siga sér, eins og Björn Bjarnason nefnir það, og ekki hafa döngun eða burði til að halda faglegri reisn og eiga samleið með réttlætinu, eins og starfsskyldan þó býður þeim.
Vont var ástandið.
En nú er það komið í illt efni."
Getur einhverjum dulist sem horfir á framvindu stjórnmála í Reykjavík að þar fer margt á milli mála. Mikil áhersla er á allskyns skrautsýningar og flugeldaskot. En húsnæðisskorturinn hefur ekki vikið til hliðar.
Fólk getur ekki fengið lóðir til að byggja á eins og var hægt í gamla daga til dæmis á dögum Smáíbúðahverfisins. Ég hef hinsvegar horft upp á það sjálfur á síðustu þremur árum að það er enn til fólk sem er tilbúið að byggja sjálft með eigin höndum.
Í stað þess eru einu úrræði fólks í húsnæðisleit að kaupa íbúðir af stórverktökum með tilheyrandi fjármagns-og framkvæmdakostnaði. Auðvitað hefur þetta sína kosti ef samkeppni væri nóg sem er langt í frá.Þess í stað beinist öll orkan að því að fjandskapast við verðtrygginguna. Hún er raunveruleg ef maður tekur lán.Ef maður vinnur með eigin höndum kostar það enga verðtryggingu.
Húsnæðismálin eru hreint ekki öll Reykjavíkurborg að kenna. Öll hin svetarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa rekið sömu lóðaskortsstefnuna sem hafa orsakað þetta ástand á húsnæðismarkaði.
Það eru ekki bara Borgarmálin sem eru ástand í óstandi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:31 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Þegar stórfyrirtæki, helstu fjármálastofnanir og yfirvöld (embættismannahirðin og ráðandi pólitíkusar) renna saman í eitt, og ráða þar með nær öllu með boðvaldi, gjaldtöku og hvað má og hvað má ekki, heitir það fyrirbæri fasismi. Slíkt tíðkast nú í Reykjavík. En til að milda ásjónu hins illa er brugðið upp falskri sýningu um hvað allt sé gaman, alls kyns ull og fíflalæti. Alls kyns fyrir aumingja eins og fíflið sagði. Stundum má einnig sjá viðlíka tilburði hjá ráðherrum ríkisstjórnarinnar, geiflur og kökubakstur, krókódílatár og ætíð sviðsett í beinni.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 18.8.2018 kl. 12:09
Rétt Halldór, það er ekki bara Borgarmálin sem eru ástand í óstandi. Reglugerðarfargan, sturluð og ómammeskjuleg gjaldtaka, nú fyrir allan skinheilagan andskotann, lóðarskortur nema þær uppsprengdu í prísum, og það einnig í bæjarfélögunum í kring og við vitum hverjir mynda meirihlutann þar og iðka sama kjaftæðið og Dagur Bergþóruson Eggertsson.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 18.8.2018 kl. 12:24
Hvernig heldur þú að það sé að vera venjulegur starfsmaður hjá Reykjavíkurborgar þegar topparnir hegða sér svona og svo verður maður áttaviltur af öllum þessum stefnum en þega fólk snýst bara í kringum sjálfan sig þá verður niðurstaðan
Atvinnustefna Reykjavíkur - Skapandi borg
Stefna Reykjavíkurborgar í erlendum samskiptum Listi yfir erlend samtök sem Reykjavíkurborg er aðili að
lokaskyrsla_starfsh_um_framtidaruppb_a_gistithj_i_rvk_lq.pdf
Húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar maí 2017 ásamt tillögum í húsnæðismálum Húsnæðisáætlun uppfærð í mars 2018
Húsnæðisstefna Reykjavíkur
Innkaupastefna Reykjavíkurborgar
Málefni miðborgar – Samþykkt stefna 2016
Málstefna Reykjavíkurborgar
adgerdaraaetlun_i_mannrettindamalum_2018-20221.pdf mannrettindastefna_reykjavikurborgar.pdf Aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar gegn ofbeldi 2018-2022
Matarstefna Reykjavíkurborgar 2018-2022
Stefna um nýtingu upplýsingatækni 2018-2022
Samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg
Skjalastefna Reykjavíkurborgar 2015-2020
Aðgerðaáætlun skjalastefnu
Stefna Reykjavíkurborgar gegn einelti
Stefna Reykjavíkurborgar í málefnum innflytjenda, flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd
tulka_thydingathjonusta.pdf
· Upplýsingaöryggisstefna
Upplýsingastefna Aðgerðaáætlun upplýsingastefnu
Viðverustefna
Þjónustustefna Reykjavíkurborgar Aðgerðaáætlun þjónustustefnu
Borgari (IP-tala skráð) 18.8.2018 kl. 19:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.