Leita í fréttum mbl.is

Borgarmálin

eru ofarlega á baugi nú nýverið. Deilur rísa hátt og Borgarfulltrúi jafnréttis og félagsmála ullar á vitleysingana hinu megin við Borgarstjórnarborðið þegar orð fá ekki lýst heimsku þeirra.

Reykjavíkurbréfið fjallar um þessi mál af stakri snilld í dag og ég tek það upp hér mér til ánægju:

að er heldur önugt að horfa upp á hversu stjórnarfarinu í höfuðborg landsins hefur hrakað. Og hefur hallað undan fæti um alllanga hríð.

Þjónustulund er lykilorðið

Sveitarfélag er svæðisbundið yfirvald sem er komið á til að veita ákveðna grundvallarþjónustu. Vilji borgar-/bæjarstjórnin það, getur hún svo sem ákveðið að fara nokkuð út fyrir það. En hún býr þó við valdmörk. Þannig getur hún ekki blandað sér í ákvarðanir sem að lögum eru faldar öðrum og er óheimilt að hlutast til um þær og síst til að draga úr áhrifum hins lögmæta aðila. Verkefni sveitarfélaga eru prýðilega skilgreind. Önnur sem segja má að lúti hinum óskráðu reglum, þeim sem Píratar vilja vita hvar eru skráðar, snúast einnig um að veita íbúum viðkomandi sveitarfélags þjónustu, þótt hún sé ekki endilega lögbundin.

Þetta er ekki flókið

Íbúarnir eru vel með á nótunum. Þeir vilja að sveitarfélagið sitt sé sem þægilegast og snyrtilegast og að flæði um það sé lipurt, aðgengilegt og hættulítið. Þeir vilja að verk sem vinna þarf séu unnin hratt og skipulega og með sem minnstri truflun fyrir almennt gangverk sveitarfélagsins. Þau opinberu merkikerti sem eru föst í þeim misskilningi að tilvera sveitarfélaganna snúist um það hvort þau náist á mynd eða ekki, en ekki um hag íbúanna, ættu að fara í annað og byrja á því að kaupa sér stóran spegil og koma honum haganlega fyrir heima hjá sér.

Svo var það fyrir átta....

Síðustu tvö kjörtímabilin hafa verið sérlega niðurlægjandi hvað borgina snertir í framangreindum efnum, en sumt var vissulega byrjað áður. Þjónustan hefur skroppið saman og sú sem er hefur þyngst og er jafnvel talin eftir og allar klær hafðar úti að krækja sér í aur úr vösum borgarbúa. Við þetta bætast svo næsta ótrúlegir hlutir. Eitt aðaleinkennið og það alvarlegasta er að það er lítið og jafnvel ekkert að marka yfirlýsingar borgaryfirvalda um hvað hafi verið gert, hvað sé verið að gera eða hvers sé að vænta í næstu framtíð. Þegar teknar eru saman yfirlýsingar Dags B. Eggertssonar um lóðamál borgarinnar síðustu átta árin og hvers sé að vænta, myndskreyttar með glærum og kynntar á fjölmörgum fundum, er eins og nú sé horft á eyðimörk þar sem lofað var aldingarði. Óheilindi og blekkingar eru megineinkennin sem blasa við þeim sem rýna í það sem sagt var og leita efnda.

Endaskipti á úrslitum

Samfylkingin beið afhroð í kosningum til borgarstjórnar vorið 2010. Í því fólst krafa kjósendanna um að hún héldi sig frá stjórn borgarinnar næsta kjörtímabil. En þeim var gefið langt nef. Látið var heita að Jón Gnarr, fyrir hönd Besta flokks, sem gufaði upp að kjörtímabilinu loknu, færi með embætti borgarstjórans. Það var eingöngu illa heppnað grín eins og „skemmtiþættir“ með sama heiti reyndust líka og var hent fyrir vikið. Jón Gnarr mátti eiga það að hann lét aldrei eins og hann sinnti embætti æðsta manns borgarinnar. Hann tók ekki á móti borgarbúum sem vildu fá úrlausn sinna mála og það þóttu sérstök tíðindi ef hann opnaði munninn á borgarráðsfundi þar sem allar þýðingarmestu ákvarðanir borgarinnar eru þó teknar. Hann sagðist í upphafi ætla að svíkja öll sín kosningaloforð nema eitt, sem hann sveik reyndar líka.

Illa leikin loforð

En það er þó fjarri því að nokkuð bendi til þess að Gnarr hafi verið slakari borgarstjóri heldur en Dagur Eggertsson, sem fór með völdin á bak við tjöldin í tíð Gnarrs og tók svo formlega við fjórum árum síðar. Dagur gaf miklu fleiri loforð en Gnarr og sveik þau flest. Þannig náði hann að svíkja fleiri loforð en Gnarr, sem þó sveik öll sín að eigin sögn. Það er að renna upp fyrir sífellt fleirum að Dagur er eingöngu yfirborð. Þruglkenndir illskiljanlegir langhundar sem hann fer með eru ekki sérstök tækni eins og einhverjir héldu um skeið. Hann er bara svona. Tveimur vikum fyrir síðustu kosningar og eftir átta ár við völd tók hann óvænt að lofa því að „setja Miklubraut í stokk“ og voru verktakar þá í óða önn að láta handraða grjóti í net beggja vegna við hana og áttu enn ófrágengið verkið Klambratúnsmegin! Þeir vissu ekki hvort þeir ættu að trúa á stokk eða steina.

Altækt ábyrgðarleysi

Þótt góðæri ríki í landinu og skatttekjur streymi inn í borgarsjóð þar sem skattpíning er eins mikil og lög frekast leyfa er fjárhagsstjórnin samt í uppnámi, og upplýsingar um fjárhagsstöðuna eru út og suður svo enginn skilur, og síst sá sem fær borguð forsætisráðherralaun fyrir það. Fjárhagsstjórnunin er þó þýðingarmesta verkefni hvers borgarstjóra. Fasteignagjöld, sem lögð eru á borgarbúa og eru öðrum þræði þjónustugjöld, hafa hækkað mjög óeðlilega vegna þess að fasteignaverð hefur rokið upp og ekki síst vegna heimatilbúins vanda í langstærsta sveitarfélagi landsins. Borgarstjórinn hefur nú árum saman verið með glærusýningar og slengt um sig loforðum um lóðaúthlutanir sem ekkert hefur orðið úr. Þegar tjaldið féll og veruleikinn varð ljós hrundu væntingarnar og fyrirsjáanlegur viðvarandi lóðaskortur ýtti fasteignaverðinu í hæstu hæðir. Borgarstjórnin eyðir sínum tíma helst í að tryggja að auðmenn geti keypt sér miðlægar eignir á 400 milljónir króna íbúðina og þykjast með því vera að greiða götu ungs fólks til að koma þaki yfir höfuðið! Því til viðbótar hafa nú verið lögð á viðbótarbyggingargjöld á hverja byggða íbúð og talsmenn borgarbúa segja að þau gjöld hafi engin áhrif á verð íbúða í borginni. Hvern er verið að blekkja? Halda  þessir borgarfulltrúar að borgarbúar séu almennt vöntunarmenn í vitsmunum?

Einu skýringarnar

Þar sem Gnarr er farinn er óþarfi að gefa sér að fáránlegar fullyrðingar af þessu tagi séu hluti af framúrstefnulegri fyndni eða hluti af gerð sjónvarpsþátta næsta kjörtímabils. Og þá fækkar hugsanlegum skýringum. Tvær koma helst upp í hugann. Sú fyrri að þessir talsmenn hafi ekki grænan grun um út á hvað mannleg tilvera í borginni gengur eða að þeir telja sér trú um að blekkingarleikur af þessu tagi gangi endalaust upp, m.a. vegna þess að hin makalausa „fréttastofa“ „RÚV“ tekur utan stans fullan þátt í fáránleik sinna manna. Skemmst er að minnast þess að þegar nýkosnir borgarfulltrúar höfðu lappað upp á tapara kosninganna, Samfylkinguna, lýstu þeir því stoltir yfir að í sumar yrði einum leikskóla haldið opnum í hverju borgarhverfi. Borgarstjórinn hafði setið alla fundi um myndun meirihlutans. Hann hafði bersýnilega gefið nýliðunum, blautum á bak við eyrun, það til kynna að þetta gæluverkefni væri fær leið. Hvaða leikskólastjóri sem var hefði getað upplýst þá á stundinni um það að ekki væri heil brú í þessu tali, því borgin væri í hreinum vandræðum með að starta venjubundinni starfsemi sinni í haust vegna skorts á fagfólki. Eftir að einn leikskólastjórinn undraðist þetta hjal var rætt við borgarstjórann. Sá hélt öllu opnu (í byrjun júní) og sagði málið í vinnslu, þótt auðvitað væri ekki hægt að slá því föstu(!) að þetta tækist. Það getur varla verið keppikefli nokkurs að vera svona ómerkilegur. Hvers vegna fer borgarstjórinn í Reykjavík með svona fleipur og ruglar foreldra í borginni í ríminu og vekur með þeim falskar vonir? Ekki var rætt við nýju fulltrúana í meirihlutanum sem gerðir höfðu verið að kjánum, enda þeir þá orðnir uppteknir við að ræða skipulag klósettmála í sínu næsta nágrenni á borgarskrifstofunum! Ekki nokkur hlutur bendir til þess að þetta mál hafi nokkurs staðar verið til athugunar, enda vissi hvert barn það sem borgarstjórinn þóttist ekki vita. Yfirlýsingar helstu talsmanna borgarinnar fyrir kosningar um hvaða börn fengju þjónustu á leikskólunum eftir kosningar eru enn í uppnámi.

Áður óþekkt

En það nýjasta og áður óþekkta í sögu borgarinnar, sem lengi var það sveitarfélag sem öfundsverðast þótti, er þó framganga sumra embættismanna hennar í garð kjörinna fulltrúa hennar. Enginn alvöru borgarstjóri hefði nokkru sinni liðið embættisliði sínu að fara þannig fram. Skrifstofustjórar borgarstjórnar á borð við Jón G. Tómasson og Gunnar Eydal eða borgarritarar eins og Gunnlaugur Pétursson og síðar Jón G. Tómasson gættu mjög og af festu að rétti borgarfulltrúa og hinni einstæðu og mikilvægu stöðu borgarstjórnar. Borgarfulltrúar, hvar í flokki sem þeir stóðu, gátu öruggir leitað til þessara manna um faglegar upplýsingar og þeir voru þekktir að því að taka málstað borgarfulltrúa ef einstakir embættismenn héldu frá þeim upplýsingum sem þeim bar að eiga aðgang að og óskuðu eftir.

Engin viðbrögð

Fyrir nokkru féll héraðsdómur í furðulegu eineltismáli háttsetts embættismanns borgarinnar. Hann var um einstaka orðalag full „litríkur“ fyrir bréfritara og minnti í því efni nokkuð á dóma sem viðgangast í bandarísku réttarfari. En efnislega var hann þó mjög afgerandi og reyndar svo afgerandi að borgaryfirvöld sáu sitt óvænna og áttuðu sig á að ekki væri gott ef þessi dómur færi lengra í dómskerfinu svo að hneisa borgarinnar yrði enn meiri. Það er undarlegt, svo ekki sé meira sagt, að sjá túlkun borgarritarans á því hvað þessi dómur þýddi og óefnislegan orðaleik hans um það hvort dómurinn hafi réttlætt það að eineltisembættið hafi mátt, að formi til, veita undirmanni áminningu. Það var ekki deiluefnið. En undarlegast er að engin viðbrögð hafa verið innanhúss við þessu áfalli orðspors borgarinnar og engin skref stigin í framhaldinu til að losa sig við ónothæfa starfsmenn. Enginn býst við neinum viðbrögðum frá Degi Eggertssyni, sem myndi líklega byrja á því að fá vottorð frá undirsáta um að honum væri þetta mál jafn óviðkomandi og annað í borgarrekstrinum. En það kemur á óvart að æðstu stjórnendur, í næstu tröppu fyrir neðan ábyrgðarleysið algilda, séu orðnir svona samdauna hinni duglausu yfirstjórn.

Mikið rétt

Þetta er áhyggjuefni og því ástæða til að taka undir eftirfarandi orð Björns Bjarnasonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra og borgarfulltrúa í Reykjavík: „Á tæpum tveimur mánuðum hafa birst frásagnir af fimm málum þar sem dómari, kærunefnd jafnréttismála, umboðsmaður alþingis og umboðsmaður borgara komast að þeirri niðurstöðu að illa hafi verið staðið að stjórnsýslu á vettvangi borgaryfirvalda.

Eftir kosningarnar í vor og með komu nýs fólks í borgarstjórn hefur aðhaldið að meirihlutanum aukist. Viðbrögðin bera með sér að kjörnir fulltrúar meirihlutans hafi ekki burði til að takast á við nýja stöðu. Þeir siga embættismönnum borgarinnar á minnihlutann.

Þetta er fáheyrt.“

Það er hverju orði sannara.

Og enn dapurlegast er að þeir embættismenn sem í hlut eiga skuli láta siga sér, eins og Björn Bjarnason nefnir það, og ekki hafa döngun eða burði til að halda faglegri reisn og eiga samleið með réttlætinu, eins og starfsskyldan þó býður þeim.

Vont var ástandið.

En nú er það komið í illt efni."

Getur einhverjum dulist sem horfir á framvindu stjórnmála í Reykjavík að þar fer margt á milli mála. Mikil áhersla er á allskyns skrautsýningar og flugeldaskot. En húsnæðisskorturinn hefur ekki vikið til hliðar.

Fólk getur ekki fengið lóðir til að byggja á eins og var hægt í gamla daga til dæmis á dögum Smáíbúðahverfisins. Ég hef hinsvegar horft upp á það sjálfur á síðustu þremur árum að það er enn til fólk sem er tilbúið að byggja sjálft með eigin höndum.

Í stað þess eru einu úrræði fólks í húsnæðisleit að kaupa íbúðir af stórverktökum með tilheyrandi fjármagns-og framkvæmdakostnaði. Auðvitað hefur þetta sína kosti ef samkeppni væri nóg sem er langt í frá.Þess í stað beinist öll orkan að því að fjandskapast við verðtrygginguna. Hún er raunveruleg ef maður tekur lán.Ef maður vinnur með eigin höndum kostar það enga verðtryggingu.

Húsnæðismálin eru hreint ekki öll Reykjavíkurborg að kenna. Öll hin svetarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa rekið sömu lóðaskortsstefnuna sem hafa orsakað þetta ástand á húsnæðismarkaði. 

Það eru ekki bara Borgarmálin sem eru ástand í óstandi. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þegar stórfyrirtæki, helstu fjármálastofnanir og yfirvöld (embættismannahirðin og ráðandi  pólitíkusar) renna saman í eitt, og ráða þar með nær öllu með boðvaldi, gjaldtöku og hvað má og hvað má ekki, heitir það fyrirbæri fasismi.  Slíkt tíðkast nú í Reykjavík. En til að milda ásjónu hins illa er brugðið upp falskri sýningu um hvað allt sé gaman, alls kyns ull og fíflalæti.  Alls kyns fyrir aumingja eins og fíflið sagði.  Stundum má einnig sjá viðlíka tilburði hjá ráðherrum ríkisstjórnarinnar, geiflur og kökubakstur, krókódílatár og ætíð sviðsett í beinni.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 18.8.2018 kl. 12:09

2 identicon

Rétt Halldór, það er ekki bara Borgarmálin sem eru ástand í óstandi.  Reglugerðarfargan, sturluð og ómammeskjuleg gjaldtaka, nú fyrir allan skinheilagan andskotann, lóðarskortur nema þær uppsprengdu í prísum, og það einnig í bæjarfélögunum í kring og við vitum hverjir mynda meirihlutann þar og iðka sama kjaftæðið og Dagur Bergþóruson Eggertsson.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 18.8.2018 kl. 12:24

3 identicon

Hvernig heldur þú að það sé að vera venjulegur starfsmaður hjá Reykjavíkurborgar þegar topparnir hegða sér svona og svo verður maður áttaviltur af öllum þessum stefnum en þega fólk snýst bara í kringum sjálfan sig þá verður niðurstaðan

PDF iconAtvinnustefna Reykjavíkur - Skapandi borg

PDF iconStefna Reykjavíkurborgar í erlendum samskiptum PDF iconListi yfir erlend samtök sem Reykjavíkurborg er aðili að

PDF iconlokaskyrsla_starfsh_um_framtidaruppb_a_gistithj_i_rvk_lq.pdf

PDF iconHúsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar maí 2017 ásamt tillögum í húsnæðismálum PDF iconHúsnæðisáætlun uppfærð í mars 2018

PDF iconHúsnæðisstefna Reykjavíkur

PDF iconInnkaupastefna Reykjavíkurborgar

PDF iconMálefni miðborgar – Samþykkt stefna 2016

PDF iconMálstefna Reykjavíkurborgar

PDF iconadgerdaraaetlun_i_mannrettindamalum_2018-20221.pdf PDF iconmannrettindastefna_reykjavikurborgar.pdf PDF iconAðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar gegn ofbeldi 2018-2022

PDF iconMatarstefna Reykjavíkurborgar 2018-2022 

PDF iconStefna um nýtingu upplýsingatækni 2018-2022

PDF iconSamþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg

*      Skjalastefna Reykjavíkurborgar 2015-2020

*      PDF iconAðgerðaáætlun skjalastefnu

PDF iconStefna Reykjavíkurborgar gegn einelti

PDF iconStefna Reykjavíkurborgar í málefnum innflytjenda, flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd

PDF icontulka_thydingathjonusta.pdf

·         Upplýsingaöryggisstefna

PDF iconUpplýsingastefna PDF iconAðgerðaáætlun upplýsingastefnu

PDF iconViðverustefna

PDF iconÞjónustustefna Reykjavíkurborgar PDF iconAðgerðaáætlun þjónustustefnu

 

Borgari (IP-tala skráð) 18.8.2018 kl. 19:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418216

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband