Leita í fréttum mbl.is

Hættum að pína Pútín

með viðskiptaþvingunum. Ekki gerir Merkel mikið í því að refsa honum fyrir Krímskagann eins og við erum að gera.

Pútín er ekki óvinur annarra en Demókrataflokksins í Bandaríkjunum og kaldastríðs-mángaranna.Rússar hafa alltaf verið vinir Íslendinga og við eigum að skammast okkar fyrir framferðið sem þeir lakæjar ESB sem við erum.

Hættum að pína prúðmennið Pútín. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nei Halldór.

Við eigum ekki að hætta að pína Pútín, því hann einn og Rússland hefur ekki einkarétt á að gæta þjóðarhagsmuna. Önnur lönd hafa líka þjóðarhagsmuni sem þau og bandamenn þeirra þurfa að gæta. Þessi píning má því aldrei hætta. En hún má samt ekki byggjast á geggjun á sjálfstýringu. Rússland verður aldrei annað en Rússland. Það verður aldrei eins og Wisconsin, því það getur það einfaldlega ekki vegna landfræðilegrar legu þess. Og það verða Vesturlönd sem daðra við Rússland að vita.

Rússland hefur ekki leyfi annarra ríkja til að flæða út yfir landamæri sín. Það verður ekki samþykkt. Skili hann því til baka sem hann tók þá hætta píningar Pútíns. En ekki fyrr. Þannig er nú það. Hann verður að semja sig út úr píningum sínum, en það getur hann ekki, nema að kála sjálfum sér á heimavelli í leiðinni. Þannig að þetta verður frosin deila um langa tíð. Hann átti aldrei að gera þetta. Þetta voru fáránleg mistök ríkis með kolsvarta sögu í öllu sínu nánasta nágrenni og víðar.

Það má samt vel reyna að bæta samskiptin þannig að ríkin tali saman og klakar geti þiðnað, svo að sameiginleg lausn fáist. Það er það sem Trump vill, án þess þó að slaka á fælnimætti Bandaríkjanna, sem er það eina sem stoppar frekara útflæði Rússlands út fyrir landamæri þess.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 20.8.2018 kl. 10:19

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Gunnar, Krímsskaginn er réttilega rússneskur. Fyllibyttan Krúsjéff átti ekkrt með að gefa Úkraínu hann. Hann tilheyrir her Rússlands og íbúarnir vilja vera Rússar.

Halldór Jónsson, 20.8.2018 kl. 11:31

3 identicon

Gleymist stundum vegna Krimskagans að ætlunin var að na Ukrainu inn i NATO og yfirtaka hafnaraðstöðuna i  Sevastopol .

Semasagt samskonar vörn Russa eins og kanana i Kubumalinu.

Bodvar Gudmundsson (IP-tala skráð) 20.8.2018 kl. 11:44

4 Smámynd: Ívar Ottósson

Prúðmennið?

Hann er KGB og er líklga búin að vinna mörg voðaverk gegnum þann feril. Og svo er það merkilegt hversu margir fréttamenn í Rússlandi eru myrtir eftir að hann komst að, miklu meira en aðrir atvinnuhópar. En prúður er hann við Trump.....hversvegna skildi það vera...

Annars sammála þer um la þér um Krusjeff....asnaskaður að gera þetta og fyrirséð að vandræði myndu fylgja.

Ívar Ottósson, 20.8.2018 kl. 12:14

5 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Við ölum ekki upp PÚTIN eða kennum honum neitt- við erum að koma í veg fyrir að ISLENDINGAR geti flutt út afurðir- sumir lifa aðeins á innflutningi.

Erla Magna Alexandersdóttir, 20.8.2018 kl. 13:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418240

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband