Leita í fréttum mbl.is

Morgunblaðinu til minnkunar

er að birta grein eftir Björn Leví á miðopnu sinni eins og í dag, þar sem hann rekur orsakir hrunsins og eftirköst til þess að hann og hans sjónarmið hafi ekki fengið að ráða för í aðdraganda hrunsins og úrvinnslu þess. 

Það er stórfurðulegt að menn skuli skrifa svona greinar sem ekki voru af barnsaldri þegar atburðirnir gerðust né komnir til nokkurs þroska þegar atburðirnir voru að baki og úrvinnslan stóð yfir.

það er slæmt að Morgunblaðið virðist ekki gera neinar lágmarkskröfur þegar það er að birta  greinar eftir lægstu samnefnara stjórnmálamanna á miðopnu sinni lesendum til lítillar skemmtunar og  blaðinu til  minnkunar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála. Það var hreinasta hörmung, sem ég nennti að lesa af þvælunni.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 6.10.2018 kl. 13:38

2 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Sammála.

Páll Vilhjálmsson, 6.10.2018 kl. 14:06

3 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Reyndin er sú að umfjöllun um þessi afdrifaríku misseri hefur lent í ákveðnu fari. Menn hamra á því að Hannes Hólmsteinn og Davíð hafi komið á samfélagi frjálshyggju og það hafi leitt til hrunsins.

Ég leyfi mér að segja að frjálshyggjan festi rætur hér ÞRÁTT FYRIR þá félaga ekki VEGNA þeirra.

Það er sárt að viðurkenna það að nýja viðskiptaumhverfið var ekki afleiðing af ítökum Sjálfstæðisflokksins í landsstjórninni, heldur leiddi af gildistöku evrópskra viðmiða um efnahagslífið. 

Skýringin er langsótt og ekki endilega vinsæl

Flosi Kristjánsson, 6.10.2018 kl. 14:42

4 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Greinilegt að Björn Levy hefur stungið á kílum fyrst hrædda hægrið kveinkar sér. Hlakka til að lesa þessa grein Björns ef hann frelsar hana úr herkví hagsmunagæslu Landssambands Kvótagreifa og leiguþýja Gamla spillta Íslands!

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 6.10.2018 kl. 14:52

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég hefast um að þú lesir þér margt til gagns Jóhannes minn ef þú hefur þetta álit á þinu föðurlandi.

Halldór Jónsson, 6.10.2018 kl. 14:55

6 identicon

Hver er þessi rökfasti penni, Jóhannes Laxdal. Kemst raunar nálægt doktor Birni Levy (nema hann hafi ekki lokið doktorsprófinu). Snilldin drýpur af textanum. - Hvað er annars "kíli"?

Einar S. Hálfdánarson (IP-tala skráð) 6.10.2018 kl. 14:57

7 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Kannski að þú birtir bara þessa grein Halldór fyrir okkur sem ekki erum innmúraðir velunnarar og áskrifendur að endurskriftum á sögu Sjálfstæðisflokksins!  Skilst á Google að þú hafir birt einhverja jólasveinagrein eftir ónefndan beturvitrungcool til að fleiri gætu notið þeirrar andagiftar sem þar vall undan hverju orði.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 6.10.2018 kl. 15:24

8 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Hér að ofan má sjá að verið er að umskrifa lánasprengjuna í Bandaríkjunum sem helstu undirrót alþjóðlegu fjármálakreppunnar alfarið yfir til Evrópu. 

Þetta er nokkuð, sem ekki hefur sést fyrr í umfjöllun erlendis um kreppuna.  

Ómar Ragnarsson, 6.10.2018 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418219

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband