Leita í fréttum mbl.is

Hagsmunaaðilar ráða skipulagi

í Reykjavík.

Svo segja fréttir í Mogga:

"Við hönnun nýja Kringlusvæðisins er tekið tillit til hugmynda um að setja Miklubraut í stokk. Þá er gert ráð fyrir biðstöðvum fyrir borgarlínu vestan og norðan Kringlunnar. Fasteignafélagið Reitir fer með hönnun Kringlusvæðisins. Efnt var til hugmyndasamkeppni um framtíð svæðisins og urðu Kanon arkitektar hlutskarpastir. Greint var frá vinningstillögunni í nóvember í fyrra.

Friðjón Sigurðarson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Reitum, segir að vinna við nýtt aðalskipulag fyrir svæðið sé í gangi. Eftir það taki við gerð deiliskipulags vegna fyrstu áfanga uppbyggingarinnar. Nú sé miðað við 160 þúsund fermetra af nýju húsnæði, þar með talið 850 íbúðir. Til samanburðar var rætt um 500-600 íbúðir í fyrrahaust.

Meta þörf fyrir bílastæði

Við skipulagsvinnuna hafi verið haft samráð við fjölda aðila, meðal annars Vegagerðina, Veitur, rekstraraðila og fasteignaeigendur. „Jafnframt hefur verið unnin greining á umferð svæðisins og bílastæðaþörf. Hvort tveggja er mjög ákvarðandi varðandi hversu mikið og hvernig er hægt að byggja,“ segir Friðjón og upplýsir að þessi undirbúningsvinna hafi reynst tímafrekari en áætlað var. Þó sé ekki víst að það tefji fyrir uppbyggingu á svæðinu.

Meðan rammaskipulagið var í vinnslu hafi farið fram sveitarstjórnarkosningar. „Þá kemur fram sú hugmynd að setja Miklubraut í stokk. Það breytir forsendum verkefnisins. Borgarlínan hefur jafnframt færst nær veruleika en þegar lagt var af stað í þetta verkefni,“ segir Friðjón.

Hann bendir á að það geti borgað sig fyrir Reiti að tímasetja uppbygginguna með hliðsjón af þessum nýju innviðum, jafnvel þótt Kringluverkefnið sé alveg óháð slíkum innviðum.

Enginn vilji mislæg gatnamót

Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, tekur undir þetta og segir að með því að aflétta veghelgun við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar skapist ný tækifæri til uppbyggingar á svæðinu. „Þetta verður þá mun meira gæðasvæði fyrir íbúðir en ef Miklabrautin er ofanjarðar. Þarna hefur frekar verið gert ráð fyrir atvinnuhúsnæði en íbúðum. Með stokk skapast því færi á nýrri landnotkun.

Fyrir okkur og Kringlusvæðið viljum við gjarnan sjá þennan stokk verða að veruleika. Ég trúi því ekki að nokkur vilji byggja mislæg gatnamót upp í loftið á mörkum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar,“ segir Guðjón.

Hann segir aðspurður að hugmyndir um hótelturn til norðurs við Kringluna hafi verið endurmetnar. Nú sé til skoðunar að hafa jafnvel tvö hótel sitt í hvorri byggingunni. Guðjón segist aðspurður vonast til að framkvæmdir hefjist að ári gangi skipulagsvinna og samningar við hagsmunaaðila eftir og að fyrsta áfanga ljúki fyrir árslok 2021. Líklegast verði byrjað á að rífa gamla hús Morgunblaðsins og prentsmiðjuna til að rýma fyrir nýbyggingum. Raunhæft sé að uppbyggingu á svæðinu verði lokið árið 2030.

Friðjón segir að jafnframt því sem ytri forsendur verkefnisins séu að breytast sé áætluð þörf fyrir atvinnuhúsnæði einnig í skoðun. Um 20% af flatarmáli Kringlunnar fari nú undir veitingasölu og afþreyingu. Erlendis sé víða miðað við að hlutfallið sé um 40% í nýjum verslunarmiðstöðvum.

Horft sé til þess að netverslun sé að sækja í sig veðrið. Því sé spáð að til dæmis fataverslanir muni ekki þurfa jafn marga fermetra og í dag. Friðjón segir aðspurður að uppbyggingin miði við um 3.600 bílastæði á svæðinu en stæðin séu nú um 2.400. Svæðið verði afar vel tengt m.t.t. samgangna. Það skapi tækifæri fyrir íbúa til að vera án einkabíls.

Verði notkun borgarlínu umfram spár muni þörfin fyrir einkabíl minnka að sama skapi."

Borgarstjórnarmeirihlutinn hefur þá stefnu að útvista verkefnum á skipulagssviði til vildarvina. Má minna á Ólaf Ólafsson á Sundabrautarsvæðinu þar sem hún var gerð dýrari um 11 milljarða sem greiði við hann. Nú eru Reitir með einkaleyfi á framtíð Reykvíkinga umferðarlega séð.

Það merkilega er að menn tala um umferðarstokka eins og þeir séu sjálfsagður hlutur. Engin tilraun er gerð til að bera saman kostnað af því að byggja brýr eða jarðgöng. Það virðist hinsvegar nokkuð ljóst með leikmannsaugum séð að jarðgöng með útskotum, aðkomu björgunarbíla og slökkviliðs og loftræsikerfum hlýtur að vera dýrari en mislæg gatnamót á yfirborði. Enda eru slíkar framkvæmdir ekki að sjá í Florida svo eitthvað sé nefnt þar sem vegbrýr flétta umferðina svo undravert er.

En það er líklega til marks um hversu Borgarstjórnarmeirihlutinn er illa á vegi staddur að allri andlegri getu, að hann felur fólki út í bæ að leysa málin sem þeir voru þó kjörnir til. Hugsanlega er Braggamálið til marks um það andlega getuleysi sem einkennir tætingsliðið í smáflokkaflórunni sem myndar meirihlutann svo að þessi Reita-og Ólafsmál verða skiljanlegri en ella.

Það er greinilegt að vilji stendur til að hefja óafturkræfar framkvæmdir sem falla að stefnunni um Borgarlínu og útrýmingu einkabílsins áður en Borgarbúum gefst tækifæri til að mótmæla í kosningum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ÞAkka þérHalldór fyrir góðar athugasemdir. Furðulegar stahugasemdir   eru þetta frá svokölluðum Reitum sem eru greinilega svívirðilegt félag, sem ekkert hugsar um annað en eigin hag.Þeir eru greinilega inni hjá Reykjavíkuborgarafætum, sem eru að rústa borginni skiðulagslega séð. 

Helgi Bjarnason (IP-tala skráð) 31.10.2018 kl. 01:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418210

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband