Leita í fréttum mbl.is

Gömlu tímarnir komi aftur

er ţađ sem söngurinn um afnám verđtryggingar á útlánum til allra gengur út á. Söngurinn dunar á Útvarpi  Sögu allan liđlangan daginn og veđur uppi á dagblöđum. Aldrei er minnst á ţađ hversvegna verđtryggingin var sett á í upphafi.

Vilhjálmur Bjarnason lýkur grein sinni í Morgunblađinu í dag svofellt:

"Arfur heimastjórnar

Ţegar horft er til baka felst arfur heimastjórnarinnar í nokkrum ţáttum. Ţađ tókst ađ koma á mögnuđum deilum í sáraeinföldu máli. Ţađ var símamáliđ. Ţađ var nógu einfalt til ađ allir hefđu vit á ţví. Ţannig var farin hópreiđ til Reykjavíkur til ađ berjast gegn lagningu landsíma. Sennilega hafa forystumenn ţeirrar suđurreiđar taliđ ađ GSM-símar vćru á nćsta leiti áriđ 1906.

Önnur arfleifđ er hús Landsbókasafns Íslands, Safnahúsiđ viđ Hverfisgötu. Ţađ er falleg bygging og vel gerđ ţrátt fyrir ţyngd sína.

Ţriđja arfleifđin sem nefna mćtti er Tjarnargatan. Ţar byggđu hinir danskmenntuđu embćttismenn heimastjórnarinnar hús sín. Ţau hús eru úr takti viđ önnur íbúđarhús á ţeim tíma.

Álitamál er hvort ţeir sem ţar byggđu hafi fengiđ lán hjá nýstofnađri veđdeild Landsbanka Íslands. Í lögum nr. 1/1900 segir: „Í Landsbankanum í Reykjavík skal stofna veđdeild til ţess ađ veitt verđi lán um langt árabil og međ vćgum vöxtum gegn veđi í fasteignum.“

Hvađan átti lánsfé ađ koma?

Međ ţessum lagatexta var lagđur grunnur ađ ţví ađ fćra lántakendum sparifé landsmanna á silfurfati.

Ţetta var áđur en hugtakiđ verđbólga varđ til, ţađ hugtak var kallađ dýrtíđ.

Til eru ţeir sem vilja taka ţennan dýrđartíma upp aftur, ađ taka sparifé frá börnum og öldruđum og fćra ţeim sem byggja viđ tjarnargötur hvers tíma, gegn vćgum vöxtum, en ţađ ţýđir á skiljanlegu máli ađ borga ekki til baka í jafnvirđi. Ţennan arf heimastjórnarinnar er enn veriđ ađ takast á viđ."

Annađ nefnir Vilhjálmur í grein sinni. En ţađ er ađ Framsóknarflokkurinn var stofnađur í landlegugleđskap á Austfjörđum, svo miklum ađ ađeins eini bindindismađurinn í hópnum mundi glögglega hver hafđi veriđ kosinn formađur. Ekki ađ furđa ţó flokkurinn hafi löngum veriđ talinn opinn í báđa enda og sagt bćđi já já og nei nei og hallur undir gamla tíma ţegar SÍS sat fyrir lánafyrirgreiđsluni í bönkunum fyrir tíma verđtryggingarinnar sem gerđi útaf viđ apparatiđ.  

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418231

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband