Leita í fréttum mbl.is

Reykinn leggur frá

Klausturskandalnum.

Maður veltir fyrir sér hvort Stundin standi á bak við skipulagðar persónunjósnir og hvort þeir séu studdir af pólitískum öflum.Sem eru líklega ekki á vegum Sjálfstæðisflokksins né Framsóknarflokksins.

Inga Sæland staðfestir þá mynd sem menn hafa af henni að hún sé fyrst og fremst tilfinningavera en stjórnist ekki endilega  af rökhyggju. Mörgum finnst hún hafa beinlínis skælt sig inn á Alþingi í stjórnmálaumræðum fyrir kosningarnar fremur en að hafa sannfært kjósendur með málflutningi.

Þegar hún rekur dr. Ólaf Ísleifsson úr þingflokknum fyrir að hafa yfirgefið fylleríið á Klaustrinu og ekki sagt neitt óviðurkvæmilegt þá sýnist manni það ekki skynsamleg stjórnmálaleg ákvörðun fyrir Flokk Fólksins, Ekki hef ég heldur heyrt eitthvað rosalegt haft eftir sýslumanninum Karli Gauta  sem réttlætir slíkan brottrekstur. Afleiðingin er sú að mest af vitinu er farið úr þessum flokki sem á bara vælukjóatalið í formanninum eftir, sem bara endurtekur síg í sífellu og fólk nennir varla að hlusta á lengur.

Þessir þingmenn geta ekki myndað nýjan þingflokk og virðast þá eiga skammt ófarið yfir til Miðflokksins fremur en að sitja sem óháðir.

Öðru máli gegnir um Bergþór Ólafsson. Hann hefur afhjúpað sig sem frekar fágæta persónu, sem er óvíða í umferð meðal siðmenntaðra manna það ég þekki. Talsmáti eins og hann notar er ekki notaður meðal fólks sem ég umgengst gjarnan. Gunnar Bragi sagði líka margt sem ekki er sæmandi séntilmönnum, hvorki fullum né ófullum.

Sigmundur Davíð, sem njósnari Stundarinnar  segir svo ósannfærandi að hann sé sá eini sem hann hafi þekkt í sjón og þess vegna hafi hann teipað selskapið í 4 klukkutíma, sleppur ef til vill frá þessu, Nema að því leyti að hafa sýnt dómgreindarleysi með því að hafa setið til borðs með þessum slordónum og fíflum sem hæst fóru.

Svo hver er niðurstaðan?

Almennt séð er það ávallt happ fyrir fólkið þegar stjórnmálamanni er velt af stalli með einhverjum hætti. Hann er þá bara yfirleitt að hljóta makleg málagjöld fyrir blekkingar sínar varðandi eigin karakter.

 

Varanleg veiking Flokks Fólksins er staðreynd og mátti hún alveg verða að skaðlausu. Hugsanleg styrking Miðflokksins nema ef dr. Ólafur og jafnvel Karl Gauti  færu frekar yfir til Bjarna en Sigmundar. En það er ekki alls fyrirséð hvort Bjarni vilji þá þar sem orðsporið orkar tvímælis að minnsta kosti enn sem komið er.

Píratar hafa sjáanlega ekki grætt neitt á þessu. Þannig verður hugsanlega heildarniðurstaðan, þegar reykinn leggur frá,sú að  Alþingi styrkist frekar en veikist,sem mörgum hefur fundist löngu tímabært.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Afar skynsamlegt.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 2.12.2018 kl. 11:37

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hef ekki hlustað á þetta og mun ekki gera það.

Var einhverju logið? Var eitthvað staðreyndalega rangt sagt þarna? Halldór.

Notuðu þingmennirnir Alþingishúsið til framleiðslu á viskýauglýsingu fyrir vinafyrirtæki í London?

Fóru þeir fullir á þingfund?

Sviku þeir kjósendur sína fyrirfram og sóttu fyrir hönd lýðveldisins um inngöngu í annað ríki, daginn eftir kosningar?

Það skyldi þó ekki vera að þessir þingmenn séu einn af okkur, fólkinu, þegar til kastanna kemur. Gallagripir og mannlegir. Þreyttir á skinhelgu þrasinu sem talandi hausar á annan bóginn og á hinn bóginn og á annan bóginn og á hinn bóginn.

Réðust þeir að stjórnarskránni?

Vor þeir karlkyns?

Voru þeir með plastpoka í fórum sínum?

Leiðbeindu þeir skríl við árásir á lögregluna og Alþingishúsið?

Er virkilega nóg rafmagn og pláss á síma fyrir 4tíma persónunjósnir?

Gunnar Rögnvaldsson, 2.12.2018 kl. 12:08

3 identicon

Það sem efirtektarverðast við allt þetta mál er, að Inga lætur stjórnst af uppstillingu fjölmiðla um dónakalla sexmenningana.  Hvorki Ólafur né Karl Gauti lögðu þar engin slík orð í belg að eiga það skilið að vera spyrtir saman við hina.  En til þess virðist þó allt fjölmiðlafárið hafa verið blásið upp, að valda uppnámi óstöðugrar konu, Ingu Sæland, og að rústa flokki fólksins.  Og það tókst, Inga rekur nú æ fleiri og m.a.s. Halldór í Holti getur ekki komið vitinu fyrir hana.  Næst rekur hún Halldór.  

Tek annars undir orð síðuhafa að Bergþór Ólason brúkar slíkan klámkjaft að hann á sér vart málsbætur.  Og Gunnar Bragi hefði best af medifer á Vogi.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.12.2018 kl. 14:03

4 identicon

Hver endar sem síðasti og eini ráðgjafi Ingu, áður en hún rekur hann?  Er það Magnús Þór Hafsteinsson, eða Kolbrún Badursdóttir sálfræðingur?  Kannski þau einu orð sem Karl Gauti heyrðist óyggjandi segja, að Inga gæti ekki stjórnað flokki, séu fullkomlega réttmæt.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.12.2018 kl. 14:16

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gott;búnir að reykræsta.

Helga Kristjánsdóttir, 2.12.2018 kl. 15:50

6 identicon

Miðaldra hvít kona í valdastöðu hélt  á Austurvelli í gær hatursræðu og börnin sem þar voru munu taka þann boðskap með sér í skólana.

Þannig verða foreldranir ánægðir og gefa gott í skóinn

Grímur (IP-tala skráð) 2.12.2018 kl. 15:58

7 identicon

Leiðbeindu þeir skríl við árásir á lögregluna og Alþingishúsið?

Gunnar R. hefur rétt fyrir sér hér.

Innan alþingis finnast svikarar gegn lýðræðinu, sem eru að sjálfsögðu á vinstri kantinum.
Þarf að segja meir!

valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 2.12.2018 kl. 16:02

8 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Víst er um það, að ég sá það þegar þessi kona ( ath!!. Ekki má segja kerling þó allir megi segja karl ) grenjaði sig inn á þing, þvílíkur sóðaskapur eingin rök bara skælur og snöggt ásamt tilheyrandi.

Sagt hefur verið að saklaus sé sá sakaði uns sekt er sönnuð og mega þeir  Ólafur og Karl því vera lukkulegir með það að þessi grátbólgni flokkseigandi hafi gefið þeim frelsi án sannaðra saka og þar með hefur þessi götudómari gefið þeim frelsi frá að þola hanna lengur.

 Þeir eru saklausir af ávirðingum grátkonunnar og ætu því að vinna áfram að málefnum kjósenda sinna með þeim besta hætti sem þeim líst til.

Hrólfur Þ Hraundal, 2.12.2018 kl. 16:10

9 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Mig grunar að þessi þefvísi snati þarna á þessu Klaustri hafi átt eins og aðrir rakkar að þefa upp hentugar ávítur á Sigmund Davíð og þar með er ljóst að mig grunar sömu aðila og hafa lagt fyrir hann gildru áður.

Athyglisvert er að Sigmundur Davíð hafi líst sig mótfallin orkupakkanum.  Hugsiði svo, hverjir ætla að styðja hann ?  Hvað með utanríkisráðherrann, hvað sagði hann í Svíþjóð? og hvað með Bjarna Ben, af hverju þegir hann?

Hann er vanur að þegja þangað til á síðustu stundu.  Hvað er að þessum þingflokki, af hverju geta þeir aldrei sýnt af sér ærlegheit og komið hreint fram?.    

Hrólfur Þ Hraundal, 2.12.2018 kl. 16:47

10 identicon

Djfulsins aumingjar eru þetta sem leka þessu í fjölmiðla. Að fólkið megi ekki tala um kuntur, gera lítið úr hommum, gera lítið úr fötluðum, tala um nauðganir samstarfskvenna eða um hvernig kaupin gerast við ráðningu sendiherra kemur engum við. Þessir englar vissu bara ekki að verið væri að taka þá upp. 

thin (IP-tala skráð) 2.12.2018 kl. 17:21

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Hrólfur

Mig grunar að þessi þefvísi snati þarna á þessu Klaustri hafi átt eins og aðrir rakkar að þefa upp hentugar ávítur á Sigmund Davíð og þar með er ljóst að mig grunar sömu aðila og hafa lagt fyrir hann gildru áður.

Ég tek undir þessar grundsemdir. Hann hefur verið með varaaflgjafa með sér fyrir símann fyrir upptökuna eða bara tengdur við rafmagnið og þá kannski í samvinnu við staðarhaldarann sem ég er ekki búinn að sjá að komi ekki að þessu máli,Sem sagt þræl undirbúin aðför eins og hjá drullusokkunum sem réðust að Sigmundi Davíð í Ráðherrabústaðnum á sínum tíma. 

En ég vorkenni aldrei stjórnmálamönnum sem eru sprengdir í loft upp því þeir eiga það alltaf skilið.

Halldór Jónsson, 2.12.2018 kl. 17:47

12 identicon

Tvær jákvæðar fréttir hef ég fundið í dag:

Hin skelegga snegla, Frú Andersen segist ætla að taka nótis af hinni miklu andstöðu sem þriðji orkupakki EES/ESB mætir hjá kjósendum.

Og Styrmir knúði fram svar frá Palla Magg, að hann segði nei við pakkanum.

Er ekki  ráðið núna að knýja alla þingmenn til aæ svara þessari spurningu,vafningalaust?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.12.2018 kl. 18:37

13 identicon

Nú skiptir miklu að Frú Andersen taki hælkrók

og sniðglímu snögga og felli frú Reykás á einu augabragði.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.12.2018 kl. 20:38

14 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Hvernig getur það aukið virðingu fyrir Alþingi þegar Sigmundur Davíð fullyrðir að í öðrum flokkum sé meiri sóðaskapur hafður um hönd þegar menn ata hver annan auri? 

Og viðbrögð Ingu Sæland og hennar nánustu í flokknum stafa ekki aðeins af níðinu um hana, heldur samsetningu hópsins á barnum, varaformenn flokkanna og þingflokkanna og formaður annars flokkanna. 

Tilviljun?  Kanntu annan?

Ómar Ragnarsson, 2.12.2018 kl. 21:28

15 identicon

Hinn knái og siðprúði Formaður Miðflokksins hringir í Freyju  til að lýsa fyrir henni ískrinu í stólunum á Klaustri og hvað veggirnir á Alþingi eru kallaðir. En leiðinlegt fyrir Formann Miðflokksins þá misskilur Freyja hinn  geðþekka formanninn.  Það er með ólíkindum hvað margir eru farnir að misskilja hinn geðþekka formann, hann þarf að fara að fá sér Diktafón eða meðhjálpara aftur

thin (IP-tala skráð) 2.12.2018 kl. 22:41

16 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er rétt Halldór að það eru önnur öfl en Sjálfstæðisflokkurinn sem stunda skipulagðar persónu njósnir.

Ingu Snæland er nú varla um talandi af ástæðum sem ég og aðrir hafa nefnt og svo hlaðast upp rökin fyrir því að það sé ekki gáfulegt að hlusta á hanna svo leiðinleg sem hún getur verið, ekki bara grenjandi heldur og líka bara venjulega blaðrandi. 

Ég fæ sjálfsagt dauðadóm fyrir að hafa vogað mér að gagnrýna  konu og ætla að taka honum svo sem dugar og sæmir.  Sjálfskipaðir dómarar götunnar meiga éta það sem úti frís fyrir mér.

En þetta svonefnda Klaustur fyllerí tel ég nú ekki svo merkilegt að ástæða sé til að eyðileggja hamingju okkar Íslendinga á okkar hundrað ára afmæli. 

Það er svo snjallræði fyrir ergilegar kerlingar sem ekki má nefna svo, að snúa sér að því að snyrta á sér tærnar, það róar hef ég séð.  

Hrólfur Þ Hraundal, 3.12.2018 kl. 00:57

17 Smámynd: Halldór Jónsson

Hrólfur

Maður má líklega ekki annað en að segja að Inga Sæland sé sú alskemmtilegasta af öllum eða hvað?

Halldór Jónsson, 3.12.2018 kl. 12:42

18 Smámynd: Jón Valur Jensson

Góð grein í heildina tekið, Halldór.

Og snjallar og góðar spurningarnar frá Gunnari Rögnvaldssyni.

Tek líka undir með afar góðum ábendingum Hrólfs Hraundal í gær kl. 16.47.

Svo eru orð Símonar Péturs um "hina skeleggu sneglu, Frú Andersen" feginsamleg, að hún "segist ætla að taka nótis af hinni miklu andstöðu sem þriðji orkupakki EES/ESB mætir hjá kjósendum." Og hitt er ekki lítils vert, að "Styrmir knúði fram svar frá Palla Magg, að hann segði nei við pakkanum. Er ekki ráðið núna að knýja alla þingmenn til að svara þessari spurningu, vafningalaust?" spyr Símon Pétur frá Hákoti, ég tek undir það og þessi snöfurmannlegu orð hans:

"Nú skiptir miklu að Frú Andersen taki hælkrók og sniðglímu snögga og felli frú Reykás á einu augabragði." laughing

Jón Valur Jensson, 3.12.2018 kl. 14:58

19 identicon

Gamlingjarnir á blog.is eru alveg steiktir, ég er ekki að tala um Ómar samt.

DoctorE (IP-tala skráð) 4.12.2018 kl. 10:46

20 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það er ekki að spyrja að því, að gervidoktorinn fylgir jafnan því, sem verr gegnir, í þetta sinn orkupakkaáþján Evrópusambandsins og snögggróðavonum fjárlæframanna.

Jón Valur Jensson, 4.12.2018 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband