Leita í fréttum mbl.is

Ögurstund?

Sjálfstæðisflokksins er greinilega uppi í höfði Óla Björns í Morgunblaðinu í dag. 

Hann dvelur mikið í glæstri fortíð fortíð flokksins og fornri vígfimi forystumanna okkar. Hann veltir fyrir sér hvort  Sjálfstæðisflokkurinn sé virkilega búinn að missa tengslin við fólkið í landinu?

Hann horfir með greinilegum kvíða til 90 ára afmælis flokksins í Maí næstkomandi sem stund til þess að horfast í augu við slíkar hugsanir? Hvort forystusveit flokksins hafi mistekist að koma árangri sinna starfa fyrir þjóðina til skila hjá kjósendum?

Beri menn þetta saman við árangur Dags B. Eggertssonar í bardaga hans við að fegra sinn hlut?  Hann kemst upp með að segja svart hvítt og spila á tilfinningar fólks með því að nýta sér veikleika til styrkleika. 

Hann segir óhikað að aldrei hafi verið betri fjármálastjórn í Borginni en hjá sér. Og megi setja út á einstök atriði þá séu þau í mikilli endur-og yfirbót í nýjum rýnihópum og ráðum.

Kemst hann ekki auðveldlega upp með að sópa einum  Milljarði  í skuldaaukningu Reykjavíkurborgar í samfellt 40 mánuði undir teppið eins og ekkert sé?  Kemst hann ekki upp með að setjast i dómarasæti yfir sjálfum sér í Braggamálinu og ókláruðu Kamarsmálinu og sýkna sig þannig í augum kjósenda?   Þvælist Þreföld framúrkeyrsla í viðgerðum í Verkó fyrir honum? Eða Gröndals-hús? Ónýtt Orkuveituhús? Sýnir hann  þá ekki bara hvað hann er búinn að gera úr ónýtri Perlunni sem hann erfði frá Davíð? Kann hann ekki vörnina kominn í kaðlana eins og Múhameð Ali?

Hann er líka með bardagasveit grimmra rakka í kring um sig sem verja hann í líf og blóð.Ver einhver Bjarna Benediktsson og Sjálfstæðisflokkinn?

Getur Sjálfstæðisflokkurinn gert eitthvað svona? Nei, hann myndi aldrei reyna  þessar aðferðir því hann segir ávallt satt. Hann hefur aldrei logið aldrei frekar en Mogginn.

Er ekki Sjálfstæðisflokkurinn alger aumingi í að koma verkum sínum á framfæri? Er hann ekki alltof latur við að boða fagnaðarerindið? Gerir Óli Björn sér þetta ljóst og er nokkrum harmi sleginn?  Og skyldi hann satt að segja vera einn um það? 

Hafa menn þess vegna verið að tala um "forystu án flokks"?
Skilur Óli Björn þetta þegar hann dvelur svona í fortíðinni og gömlum baráttubrögum okkar fornu kappa? Hugsar hann þess vegna með nokkrum hrolli til á 90 ára afmælis flokksins í Maí?

Skynjar maður ekki bara áhyggjurnar og óánægjuna með árangurinn meðal Sjálfstæðismanna sem maður hittir?. Er maður ekki bara sjálfur með blæðandi hjarta vegna þessarar stöðu en getur ekkert gert?

Gerir Forystusveitin eitthvað til að útbreiða hugsjónir flokksins? Hefur henni tekist að fá okkur flokksmenn til að trúa því að þeir séu alveg heilir í trúnni á grunnhugsjónir flokksins frá 1929? 

Eða grunar fólk þá b ara um græsku? Vænir þá um skort á trúfesti? Er ekki aðsóknin líka hrikaleg alls staðar á öllum miðlum? Þó engin frýi þeim vits eða verka?

Þýðir það í pólitík að framkvæma bara og segja ekki frá því? Verða menn ekki að berjast og elska bardagann vegna bardagans sjálfs eins og Alexander mikli og fleiri fornkóngar sem aldrei þáðu frið ef kostur var á ófriði? Grét ekki Alexander þegar hann var neyddur til að snúa heim úr herförinni á Indlandi við  frá Hindu Kush? 

Hver man eftir því hvað afnám vörugjaldanna og tollalækkanirnar gerðu ef maður er ekki minntur reglulega á það? Einn vinur minn er hættur að tala um þetta sem hann gerði svikalaust þegar Bjarni Benediktsson okkar formaður gerði þetta og kaus þá flokkinn aftur eftir langt hlé.Flokkurinn vex af verkum sínum en lætur hann ekki of oft stela þeim frá sér?

Ég hef stungið upp á því að gefa út flokksblað, skrifað af Sjálfstæðismönnum eingöngu  í 118.000 eintökum og senda á hvert heimili í landinu með hæfilegu útgáfumillibili. Ekki til að keppa við núverandi auglýsingamiðla heldur að koma boðskapnum hreinum og tærum  á framfæri. 

Ég hef boðist til að hjálpa til við þetta og ég held jafnvel að ég kunni eitthvað í að safna nægu liði.  Ég er ég sannfærður um að svona 100 síðna blað sem fer á hvert heimili í landinu er aðeins á færi Sjálfstæðisflokksins að gera.  Og það myndi hafa áhrif það ég held? Enginn af litlu flokkunum getur þetta og heldur ekki aðrir úr fjórflokknum þrátt fyrir ríkisstyrkina. Þeir búa ekki nefnilega yfir neinum hugsjónum, aðeins hentistefnum.

Þeir eru eins og Evrópusambandið sem getur aldrei orðið stórveldi eins og Bandaríkin af því að það er ekki þjóð með einn fána og föðurlandsást. Hana eiga Sjálfstæðismenn hinsvegar eftir þegar úrtölumenn eru komnir í aðra flokka. Er ekki Sjálfstæðisstefnan ennþá á sínum stað og hefur ekki verið seld frekar en bankagullkýrnar?

En ég er á níræðisaldri og auðvitað hlustar enginn sem máli skiptir á elliæran mann sem er eldri en Ellert og auðvitað mun minni kappi en hann var og er. Samt erum við Ellert yngri en margir sem gerðu ýmislegt þegar þeir létu ekki tala sig niður samanber Reykjavíkurbréf Davíðs hið síðasta.Fengu sér viskí og vindla án þess að vera skíthræddir við læknana og almenningsálitið? Man einhver hvernig Davíð slökkti á Bermúdaskálinni? Ættu Klaustursrónarnir ekki að hafa meiri kjark?

Og af hverju má ekki kalla á Davíð gamla  aftur okkur til hjálpar? Fá hann til að gefa ráð en hætta að sniðganga hann?  Hann er rétt sjötugur, heldur á einum skarpasta penna landsins og býr yfir meira viti og reynslu en nokkur Pírati gæti öðlast þó að hann aflaði sér starfsreynslu í 100 ár? Miðopna frá honum yrði meira lesin en Pírataskrif góða fólksins.

Og Davíð er Sjálfstæðismaður í gegn þó enginn engill sé. Hann þarf hinsvegar ekkert á okkur að halda hafandi Moggann og allt það frelsi sem hann vill. Það eru bara við sem þurfum kannski á honum að halda?

Er bara ekki komin ögurstund fyrir Sjálfstæðisflokkinn?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jú, það er komið að ögurstund.  En ég er þjóðlegur íhaldsmaður og fullveldissinni, svo ég mun aldrei geta fylkt liði með 3. orkupakka ESB krata nýfrjálshyggju liði sem flokkurinn valdi sér til forystu.  Ég þori að fullyrða að sú forystusveit nær aldrei meira en 18% atkvæða í næstu kosningum.  En við hinir þjóðlegu íhaldsmenn, um 19% sem höfum kosið flokkinn, munum ekki gera svo, fyrr en núverandi forysta án flokks hefur farið frá. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 10.1.2019 kl. 01:46

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Eftir höfðinu dansa limirnir. Með tíð og tíma læra limirnir öll réttu sporin og greypa þau í huga sér. Fylgnir sér í trúnni á góða stefnu og réttmæta, sem kemur öllum til góðs.  Þegar stjórnendur höfuðsins halda að þeir geti beint limunum í aðra átt, taka limirnir völdin og losa sig við höfuðið.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 10.1.2019 kl. 04:49

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þakka stórgóðan pistil.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 10.1.2019 kl. 07:03

4 identicon

Við erum hugsanlega á ögurstund með Landið okkar og flokkinn, sem flestir kusu og treystu varðandi sjálfstæði og fullveldi.

Dufferin lávarður sagði fyrir um 200 árum að ÞINGVELLIR væri helgur staður. Því sama trúa margir erlendir ferðamenn og við gamlir ÍSLENDINGAR trúum því sama.

ÍSLAND hrópar eftir þjóðernissynnuðum Leiðtoga, sem berst fyrir ALLA þjóðina utan SKIPANA frá reglufargani ESB landa.

Við viljum ekki vera HÚSKARLAR í eigin Landi.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 10.1.2019 kl. 12:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband