Leita í fréttum mbl.is

Trumpofobian

ríður húsum meðal góða fólksins á Íslandi með dyggum stuðningi RÚV.

Trump Bandaríkjaforseti fær lítinn frið eða rými á Íslandi fyrir sínar skoðanir eða aðferðir. Gunnar Rögnvaldsson rifjar upp nokkrar staðreyndir sem orðið hafa í hans forsetatíð á síðasta ár. aðeins:

"

Að gera Bandaríkin stór tókst vel á síðasta ári. Fleiri svona ár gera þau sannarlega mikilfenglegri

Á árinu 2018 urðu Bandaríkin stærsti olíuframleiðandi veraldar með því að framleiða 11,6 milljón tunnur af hráolíu á dag. Í fyrsta sinn síðan árið 1973, eru þau stærsti olíuframleiðandi heims. Frá því að Trump tók völdin jókst framleiðslan um 3 milljón tunnur á dag. Hann minnkaði flækjustig í reglugerðafrumskóginum og lét meira af landi ríkisins liggja lausara til notkunar

Á árinu 2018 urðu Bandaríkin stærsti jarðgasframleiðandi heimsins og næst stærsti kolaframleiðandinn

Á árinu 2018 urðu Bandaríkin sjálfum sér næg með orku og útflutningur olíu hefur farið úr 700 þúsund tunnum á dag upp í 2,3 milljón tunnur á dag í stjórnartíð Trumps

Á árinu 2018 stækkaði hagkerfi Bandaríkjanna um 1,7 billjón dali og varð þar með næstum tvöfalt stærra en það Kínverska. Það stækkaði um 3,4 plús 4,2 prósentur á tveimur síðustu fjórðungum ársins. Nú þarf þrjá Kínverja til að framleiða rúmlega helming þess sem einn Bandaríkjamaður framleiðir

Á árinu 2018 fór atvinnuleysi í Bandaríkjunum niður í 3,7 prósent og slíkt hefur ekki gerst allar götur frá 1969. Atvinnurekendur eru í fyrsta skiptið í manns minnum byrjaðir að leita eftir fólki, en ekki öfugt, og þrjár milljónir Bandaríkjamanna þurftu ekki lengur á matarmiðum frá ríkinu að halda. Átta milljónir manna misstu stöðu sína sem verandi fátækir miðað við stöðuna fyrir átta árum síðan. Þetta er hræðilegt áfall fyrir vinstrimenn, en hvað gera Demókratar í því? Jú þeir stunduðu eyðileggingar, hvern einasta dag ársins 2018

Á árinu 2018 sögðu Bandaríkin sig frá Parísasamkomulagi um fúpp og fídus, og gerðu betur í þeim efnum en flestir þeir sem þar sitja og fróa sér efnahags- og málefnalega á kostnað skattgreiðenda

Á árinu 2018 varð ekki stríð á milli Bandaríkjanna og Norður-Kóreu. Kjarnorkuvopnaprófanir hættu og engum eldflaugum var skotið á loft né yfir nágrannalönd þess

Á árinu 2018 hrundi NAFTA ekki eins og fjölmiðlar og vinstrimenn messuðu. Samið var um viðskipti á milli þriggja landa Norður-Ameríku á ný

Á árinu 2018 hrundi NATO-ekki. Evrópuríkin "segjast" ætla að taka meiri þátt í að verja sig og börn sín. Þetta er síðasti sénsinn sem Bandaríkin geta gefið NATO-löndum Evrópu, því að Bandarískur almenningur, sem nýtur ekki veisluhalda NATO-elíta Evrópu, er orðinn næstum því 100 prósent viss um að NATO sé gildra sem Evrópa er að reyna að læsa Bandaríkin föst í. Flækjustigið í NATO er slíkt að varla er lengur víst að Bandaríkin fái að flytja hermenn og hergögn frá Normandí um Þýskaland og til austur-vígstöðvanna. Það eina sem eftir er af gamla NATO eru Bandaríkin, Pólland og Rúmenía. Það er að segja Bandaríkin í Póllandi og Rúmeníu, tvíhliða

Á árinu 2018 var í fyrsta sinn ráðist í það þarfa verk að byrja að meðhöndla Kína sem terrorríki í viðskiptum, alþjóðlegri sambúð og pólitískum tilvistarmálum heimsins

Á árinu 2018 var með morði á Jamal Khashoggi reynt að brjóta í spað hið óformlega anti-Íran bandalag Bandaríkjanna, Saudi Arabíu, Ísrael og Sameinuðu furstadæma Arabíu og annarra. En það tókst ekki

Á árinu 2018 var Donald J. Trump með miklu meira flygi og vinsældir meðal kjósenda en Angela Merkel, Theresa May og Emmanuel Macron höfðu í sínum löndum

Á árinu 2018 héldu vestrænir fjölmiðlar áfram miðilsfundum í sjálfsmorðsherbergjum sínum

Á árinu 2018 voru grunngildi Bandaríkjanna endurreist meira á einu ári en ef til vill nokkru sinni áður: Ríkið og hið opinbera, fékk mun meira og fastara þá stöðu grunaðs aðila og sakbornings sem stofnun Bandaríkjanna snérist um að yrði ávallt staða þess í þjóðfélagi Bandaríkjamanna. Að ríkisstjórnin hafi ávallt þá stöðu og virki það illa að hún láti borgarana í friði. Alveg þveröfugt við Evrópuaðalinn, sem býr svo vel að stór hluti almennings skríður enn um á jörðinni kyssandi dugleysi hins opinbera og ömurleika þess - og sé eins og dópistinn, öskrandi á enn meiri dugleysis-pyntingar hins opinbera. Ýmislegt fleira má nefna árinu 2018 tekna, fyrir Bandaríkin

Er ekki kominn tími á að Íslendingar ræði Bandaríkjamálin af fullu viti á ný?"

Trump forseti er í einelti hjá góða fólkinu á Íslandi sem er haldið Trumpofóbíu á háu stigi án rökrýni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 3420478

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband