Leita í fréttum mbl.is

Stefanía skrifar

Jónasdóttir skorinort að vanda frá Sauðárkróki. Mér finnst rétt að sperra eyrun þegar þessi kona skrifar um fjölþjóðamál þar sem hún hefur langa reynslu af búsetu í Balkanlöndunum.

 

Hún segir:

 

"Stjórnmálafólk og menntaelítan eru upptekin af bókum og að varðveita tungumálið okkar, enginn að tala fyrir því að landið skuli ekki selt eða gefið. Já gefið, því að við hvern veittan ríkisborgararétt til handa farand- og flóttafólki, sem ætti að aðstoða heima fyrir og á þeirra slóðum, er verið að gefa af landi okkar.

10. desember 2018 verður í framtíðinni svartur dagur, þar sem íslensk stjórnvöld skrifuðu undir í Marokkó um frjálst flæði farandfólks, það er frelsi til handa fólki, sem kýs að flakka um heiminn í leit að betra lífi. Á ég að sjá til þess að þetta fólk finni sér betra líf?

Nei, það skal það gera sjálft og það í sínum heimalöndum. Því eru stærstu hóparnir karlmenn? Auðvitað kemur þessi samningur frá mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Séu SádiArabar í forsvari fyrir mannréttindaráðinu, hver segir þá að þeir nýti sér ekki pólitíska leið ásamt Merkel til opnunar inn í önnur ríki. Það er þegar búið að eyðileggja Evrópu. Allmargar, og þar á meðal stórþjóðir, hafa neitað undirskrift á þessum ömurlega samningi.

En örþjóðin íslenska skrifaði undir. Þetta mál var ekki rætt á Alþingi og þjóðin var ekki spurð hvort hún vildi vera skjól farandfólks.

Hvar er lýðræðið og hvar eru mannréttindi þjóðar? Það er ansi oft brotið á mannréttindum vesturvelda í þágu annarra þjóða. Enginn þingmaður eða þingkona sögðu nei við þessari undirskrift, með það í huga að vera kosin til að varðveita land og þjóð.

Við erum örþjóð, „stormur í vatnsglasi“ segir ung þingkona við fyrirspurn um þetta mál. Hún gerir sér ekki grein fyrir því að hún og hennar niðjar verði minnihlutahópur í eigin landi, þar til hún missir það svo alveg. Þegar hún verður á mínum aldri eftir um 45 ár verður Ísland ekki frjálst land. Því kunnið þið ekki að meta og varðveita það sem við eigum? Þið byggið allt á rangri hugmynd um að þið séuð heimsborgarar.

Annar þingmaður er orðinn þreyttur á því hversu fólk sé hrætt við útlendinga – hvaðan kemur svona bull? Þessum þingmanni er heldur ekki ljós ábyrgð sín og það að hafa efann að leiðarljósi til verndar landi og þjóð.

Ég endurtek: við erum örþjóð. Í fimmtíu ár hef ég verið meðal útlendinga og er enn; ég hef lært mikið því að ég horfi, hlusta og spyr, því að ég tala nokkur tungumál. Reynslan er að varast beri of mikla fjölmenningu, hana upplifði ég á Balkanskaga, þar sem hver togar í sína siði og einkenni. Það vill nefnilega svo til að ekki eru öll dýrin í skóginum vinir, mennsk erum við öll, en langt í frá bræður og systur.

Stjórnvöld, hafið það í huga og farið milliveg, gleypið ekki svona við öllu. Þið munuð ekki ráða við fjölmenningarmálin þegar fram í sækir.

Við sitjum uppi með forseta landsins, forsætisráðherra og menntaelítu, sem segir okkur það nýjasta, sem er: „Við verðum að deila fullveldinu með öðrum þjóðum og alþjóðastofnunum – það er að vera frjálst ríki.“

Hver fann upp þennan ömurlega frasa? Eitt er vitað: landamæralaus þjóð tapar landi sínu og einkennum – og það mun verða því að börnum okkar er ekki kennt eða innrætt í uppeldinu að þau eigi sér land og haf til að elska og varðveita. Auðvitað má ekki innræta föðurlandsást því að þá gargar hin ofurmenntaða elíta „popúlismi“.

Því fer sem fer og það má bæta við að það henti stjórnvöldum að stjórnast yfir þjóð sem alin er upp á stofnunum – ekki satt Svandís Svavars og VG? Og sé einhver ósammála eða óþekkur þá beitið þið bara einelti, það kunnið þið svo sannarlega á hinu háa, óhæfa Alþingi Íslendinga.

Sjáið þið ekkert athugavert við það að samfylkingarkona er sett fyrir nefnd sem á að taka fyrir siðferði pólitískra andstæðinga sinna? Og hún byrjar á að tilkynna okkur að þetta mál muni nú taka tímann sinn, auðvitað þarf að ná sér í laun, hvað annað! Ó, já, þið kunnið þetta.

Alþingi fær ekki mitt traust."

Ég hef ekki getað komið auga á kosti þess að Ísland skrifaði undir þessa yfirlýsingu í Marrakess. Ekki frekar en ég kem auga á kosti þess að skrifa undir 3. Orkupakkann á þeim forsendum að hann geti verið meinlaus fyrir okkur.

Til hvers eru stjórnvöld að skrifa undir samninga sem geta verið okkur skaðlausir en geta líka orðið okkur til tjóns. Fjölmörg ríki treystu sér ekki til að skrifa undir þennan gjörning í Marrakess.

Hversvegna skrifuðum við undir? Guðlaugur Þór hefur ekki svarað því.

Á meðan ég fæ ekki útskýringar og sannfæringu  tek ég undir það sem Stefanía Jónasdóttir frá Sauðárkróki skrifar,  sem þekkir þær þjóðir sem hvað mest stefna hingað óskyldu fólki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er stórkostlegt að sjá greinar Stefaníu Jónasdóttur frá Sauðárkróki varðandi frjálsan innflutning ólíkra hópa til fámenni Íslendinga.

Hún bendir réttilega á að gefa matvæli og aðstoð til ókunnra landa erlendis, frekar en að fylla landið okkar af ólíku fólki.  ESB hefur klúðrað ESB löndum af hreynu gáleysi og stjórnleysi. Síðasta gáfuspor ESB manna er að nota nýja innflytjendur frá alheimi til að uppfylla hinn nýja her Evrópu?. Við lifum í skrítnum heimi?.

Stefanía og allur almenningur hér heima hefði kosið það sama og Stefanía og Trump vestan hafs. HJÁLPA þeim heimavið

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 25.1.2019 kl. 13:26

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Rétt Gísli

Halldór Jónsson, 26.1.2019 kl. 12:54

3 identicon

Stefanía hefur sagt sanna sögu sína erlendis frá í 10-20 ár. Þetta ætti að vera skyldulesning á ALÞINGI fyrir konur og karla. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 26.1.2019 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3418260

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband