Leita í fréttum mbl.is

Af hverju að pynda sjálfan sig?

svona Helga Vala? Og af hverju að pynda okkur svona lesendur Morgunblaðsins með því að sjá þessa pistla þína?

 

" Frá því mér var úthlutaður rammi á tíu daga fresti á leiðarasíðu Morgunblaðsins, í aðdraganda þingkosninga 2017, hef ég iðulega verið spurð að því hvernig ég hafi geð í mér að skrifa í þennan fjölmiðil.Fyrirspyrjendur segja allir ástæðu spurningarinnar þá sömu.

Ritstjórinn sem stýrir þessu blaði hefur um áratugaskeið verið þess háttar gerandi í íslensku samfélagi að það er óásættanlegt að margra mati að kjörinn fulltrúi jafnaðarmanna á Íslandi, helsta óvinar ritstjórans fyrr og síðar, taki þátt í að fylla blað ritstjórans með orðum sínum.

Mín skoðun til þessa dags hefur verið sú að það skipti máli að boðskapur og stefna okkar jafnaðarmanna í Samfylkingunni berist sem víðast. Að þrátt fyrir ritstjórann, sem augljóslega hefur ekki það markmið að efla veg og virðingu Morgunblaðsins með setu sinni í ritstjórastól, sé það mikilvægt að þeir lesendur Morgunblaðsins sem eftir eru fái lesið það sem við höfum fram að færa.

Þá hef ég einnig sagt í vörnum mínum fyrir skrif mín í blaðið að þrátt fyrir ritstjórann starfi við blaðið fjöldi góðra blaðamanna, jafnvel afbragðs blaðamanna, sem sinna mjög vel t.d. mannlífs- og menningarskrifum sem og fréttaskýringum og það megi ekki gleymast.

Það fólk hefur á stundum átt alla mína samúð og á enn enda hlýtur starf þess og starfsaðstæður undanfarinn áratug á köflum að hafa verið afar flókin.

Fjölmiðlar gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki. Þeir eru ekki kallaðir fjórða valdið fyrir ekki neitt, því hin þrjú, löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald þurfa svo sannarlega á aðhaldi að halda. Fjórða valdið á líka að bera fram staðreyndir, upplýsa almenning og miðla áfram ýmiskonar fróðleik. En fjölmiðlar þurfa að fara vel með sitt vald og leita sannleikans í hvívetna.

Því miður þá hefur ritstjórinn og þeir sem honum hlýða á ritstjórn blaðsins fallið ítrekað á fagmennskuprófinu. Vilji ritstjórans til að afvegaleiða umræðuna, fara fram með hálfsannindi og rógburð, dylgjur eða níð hefur því miður dregið fjölmiðilinn niður á slíkt plan að enn á ný stendur maður frammi fyrir þeirri spurningu til hvers í ósköpunum maður er að taka þátt í pistlaskrifum í sama blað.

Tímasetningin er engin tilviljun enda hefur ritstjórinn um áratugaskeið beitt nákvæmlega sömu tækni. Það vita þeir sem starfað hafa með honum í stjórnmálum og víðar. Ef þú fylgir honum ekki í einu og öllu ertu á móti honum. Það er enginn millivegur og þá skipta staðreyndir eða sannleikur engu máli.

Tilgangurinn helgar meðalið, fjölmiðillinn Morgunblaðið er dreginn niður í svaðið með ritstjóranum og fjórða valdið skaddast. Eftir stendur viðfangsefnið, stundum laskað, stundum fíleflt en fjölmiðillinn og þar af leiðandi hið upplýsta samfélag ber skaðann. Helgavala@althingi.is"

 

Helga Vala flóttamannalögfræðingur hjá RauðaKrossinum skrifar þessa grein í blaðið á miðopnu í dag.Þar kemur fram að ritstjórinn hefur sjálfur boðið okkur lesendum í þessa veislu.Hann á því alveg skilið fáránlegan fúkyrðaflauminn sem frá þingmanninum þeysist. Hann bað um hann sjálfur og getur áreðanlega fengið meira ef hann biður vel.

Honum er ekki færðar þakkir frá mér fyrir þessa miðopnupistla frá þingmönnum sem ég met ekki mikils. Vonandi verður þetta til þess að við fáum minna að sjá af Helgu Völu framanfrá héreftir þegar Þingvallasvipurinn í sjálfspyndingunni þar var eiginlega okkur frekar að skapi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Andskoti ertu kreddufullur. Hvað um málfrelsi, ritfrelsi og fjölmiðlafrelsi? Hvað er pólitík í þínum huga? 

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 25.1.2019 kl. 12:34

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Hvað varð um færsluna þína sem kom áðan um að Helga Vala hefði plottað klausturfundinn með tölvupósti fyrsta júní? Það var svo ansi sniðug kenning, en nú er hún bara horfin...

Þorsteinn Siglaugsson, 25.1.2019 kl. 17:41

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Þorsteinn minn, ég tók hana upp af pistli frá Agli Helga eða einhverjum álíka held ég án þess að athuga dagsetninguna á pósti Hlegu Völu sem er mér til skammar og því eyddi ég henni út.

Halldór Jónsson, 25.1.2019 kl. 17:55

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er nóg á Helgu Völu lagt með því að vera eins og hún er

Halldór Jónsson, 25.1.2019 kl. 18:00

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

embarassed

Þorsteinn Siglaugsson, 25.1.2019 kl. 18:13

6 Smámynd: Haukur Árnason

"Tímasetningin er engin tilviljun enda hefur ritstjórinn um áratugaskeið beitt nákvæmlega sömu tækni."                 Hvað á hún við ? Einhver.

Haukur Árnason, 26.1.2019 kl. 01:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418201

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband