Leita í fréttum mbl.is

Er byrjað á vitlausum enda?

í plastpokastríðinu hjá umhverfisráðherranum okkar?

Hann ætlar að gera mér ómögulegt að nota ruslafötuna mína eins og ég er vanur. 10 lítra plastfata sem ég klæði að innan með Bónuspoka sem ég loka svo með hnút og fleygi í heilu lagi. Ég mun verða að kaupa mér lager hjá Bónus áður en þessi della gengur í gildi hjá ráðherranum.

Í stað þess að gera það sem blasir við þá byrjar þessi ráðherra á vitlausum enda í þessu stríði.

Í plastinu er fólgin orka eins og í öllum úrgangi. Í fullkominni sorpbrennslu eins og er fyrirhuguð hjá Kölku held ég, er þessi orka sótt og notuð í þágu íbúanna til að hita húsin. Þess í stað urðar Sorpa sorpið á dýrmætu landi sem verður óbyggileg eyðimörk eftir. Þessu fíflaríi sorpurðunar er haldið áfram ár eftir ár.Orkan grafin niður ónotuð þó slíkt sé hvergi gert í siðmenntuðum þéttbýlum löndum af augljósum ástæðum.

Er ekki umhverfisráðherrann okkar sem enginn kaus að byrja á vitlausum enda með því að hamast gegn plastpokunum góðu og nauðsynlegu? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, Halldór, hann byrjar á vitlausum enda.

Svo er það hitt,

að hann er ekki lýðræðislega kjörinn.

Hann er búrakrati.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.2.2019 kl. 14:48

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ráðherrar teljast lýðræðislega kjörnir samkvæmt stjórnarskránni sem gerir ráð fyrir svonefndu fulltrúalýðræði. 

Ef út í það er farið eru Alþingismenn líka kjörnir með fulltrúalýðræði, því að það eru kjördæmisþing eða prófkjör sem raðar þeim á lista. 

Stjórnarskrá stjórnlagaráðs gerir ráð fyrir beinu lýðræði, beint í gegnum kjörklefann, en á slíkt mega ríkjandi valdaöfl alls ekki heyra minnst. 

Ómar Ragnarsson, 2.2.2019 kl. 15:06

3 identicon

Það er víst alveg áreiðanlegt. Hann gerir það vissulega. Ég veit ekkert, hvert hann eða þetta lið yfirleitt er að fara með þessum öfgum. Þau hefðu gott af því að lesa erlenda fjölmiðla endrum og sinnum, en ég las það fyrir nokkru síðan í Jótlandspóstinum, að þessir innkaupapokar séu ekki mestu mengunarvaldarnir, eins og fólk haldi. Þess vegna sé alveg óþarfi að skera upp herör gegn þeim. Það sé allt öðru vísi plast, sem er verið að tala um, þegar menn minnast á, að plast mengi. Ég held það líka, en þetta fólk eins og ráðherrann eru svo miklir fanatíkerar, að það ætlar allt plast óhæft og mestu mengunarvalda. Burt með það allt saman, segir fólkið. Svona fanatík og öll fanatík á hvaða sviði sem er er óþolandi og ílíðandi. Það er bara ekki hægt að tala við svona fólk með neinum sönsum. Því miður.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 2.2.2019 kl. 15:08

4 identicon

Fólk trúir þeim vísindum sem það vill

sbr. margir af þessum pastkössum neita að samþykkja aldursgreiningu á flóttamönnum út frá tönnum

Grímur (IP-tala skráð) 2.2.2019 kl. 15:54

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

''Verslanirnar segja bannið við að afhenda burðarpoka úr plasti án endurgjalds sem kemur til framkvæmda í sumar og endanlegt bann við afhendingu slíkra poka í ársbyrjun 2021 vera í takt við þeirra áherslur og eitthvað sem kallað hafi verið eftir.''

Heimir Lárusson Fjeldsted, 2.2.2019 kl. 15:59

6 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Hvenær hefur vinstrafólki tekist að byrja á réttum enda, Halldór?

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 2.2.2019 kl. 17:23

7 identicon

Bévítans vandamál, nú verð ég að kaupa mér lager af ruslapokum, eins og Halldór. Veit ekkert betra né skemmtilegra en að standa úti á svölum, nú eða úti á tröppum, og kasta tómum ruslapokum út í vindinn. Alveg eins og allir hinir Íslendingarnir. 

Þetta er náttúrulega ímyndin sem vinstrimenn og aðrir umhverfisöfgasinnar vilja mála upp. En er náttúrulega kolröng eins og flestar aðrar kenningar vinstrimanna. Plastpokar utan um rusl er hið besta mál, eins og þeir sem hafa búið erlendis vita, ef þeir hafa búið innan um villimenn sem kasta matarleifum og öðru illa lyktandi ógeði í sorprennur. Reyndar veit ég að húsfélög hafa tekið það til bragðs hér heima, að loka sorprennum, þegar erlendir hafa tekið upp þennan ósið og sullað viðbjóði um gólf og veggi á leið sinni að rennunum, sem þið getið líka ímyndað ykkur hvernig lykta.

Hvernig væri að við tækjum upp þann sið að hengja einn stjórnmála- eða embættismann á hverjum laugardegi, öðrum til varnaðar? Mér segir svo hugur, að allt ástand myndi snarskána á svona einni til tveim vikum, og gera hengingarnar aftur óþarfar.

Hilmar (IP-tala skráð) 2.2.2019 kl. 17:59

8 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Áður en plastpokar komu til var úrgangur settur í fötu sem yfirleitt stóð undir eldhúsvaski. Úrganginum í fötunni var síðar hent í ruslatunnu fyrir utan hús sem var útbíuð eftir allan úrganginn sem í hana var látið. Þetta fyrirkomulag á sennilega að taka upp aftur með tilheyrandi ógeði og subbuskap. yell

Tómas Ibsen Halldórsson, 2.2.2019 kl. 18:34

9 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ef mig mismimmir ekki voru ruslapokar/plastpokar ásamt PLASTruslatunnum sveitarfélaga helsta vopnið til þess að útrýma rottugangi. Tími rottunnar er líklega kominn aftur.

Kolbrún Hilmars, 2.2.2019 kl. 19:10

10 identicon

Enn ein tilskipunin frá ESB.  Stimpluð og samþykkt af vitleysingunum á þingi.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.2.2019 kl. 19:26

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvað skyldi ráðherrann segja við þjóðaratkvæðagreiðslu um plastpokana?

En hvað með sorpbrennsluna? Af hverju að jarða orkuna?

Dioxin-hræðslan?CO2 hræðslan?

CO2 hefur ekki veri lægra í andrúmslofti jarðar í 600 milljón ár.

Af hverju að afneita staðreyndum vegna gróðapungsins Al Gore sem fjárfestir mest í olíuiðnaðinum? Þessi milljóneri sem ferðast á einkaþotu í háloftunum og prédikar um CO2 á lendingarstöðum sínum?

Á að taka við öllu sem þessi framkvæmdastjóri Landverndar sem engin kaus boðar sem stórasannleik? Hvaðan kemur honum öll þessi óendanlega viska u, jarðarför ?

Frá AlGore og París?

Halldór Jónsson, 2.2.2019 kl. 19:44

12 identicon

Er löngu hætt að kaupa gulu Bónus-plastpokana og nota margnota poka við innkaup. Við matarinnkaup tæmast alls konar pokar og ílát sem ég nota undir sorp. En þar sem ég bý eru flokkunartunnur: fyrir dagblöð/pappa, gler og plast.

Ég nota umbúðir undan matvælum og öðru undir sorp. T.d. kaffopoka, drykkjarfernur, wc-plastpoka, o.fl. Nota breitt límband til að loka fyrir. Og alls konar matarúrgang er tilvalið að setja í drykkjarfernur, dalla undan skyri, smjöri, sósum ofl. Það er um að gera að nota ímyndunaraflið. Nota svo breitt málningarlímband til að líma fyrir litla poka sem ekki er hægt að binda fyrir.

Ingibjörg Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 2.2.2019 kl. 20:20

13 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll aftur Halldór

Hér í athugasemdum bryddar þú á öðru máli en bloggið fjallar um, þó vissulega ná tengdu. Þú nefnir sorpbrennslu og sorpurðun.

Þar komum við að málefni sem er sennilega alveg sér íslenskt og nokkuð víst að engum nema íslenskum stjórnmálamanni hefði dottið til hugar og þá hellst íslenskum stjórnmálamönnum sem enn rembast við þjónkun við kommúnismann. Reyndar er orðið erfitt að staðsetja íslenska stjórnmálamenn á þann gamla kvarða stjórnmála sem gilt hefur í meir en eitt hundrað ár, jafnvel fulltrúar gamla móðurflokksins eru farnir að horfa hellst til mikið á roðann í austri.

Fyrir nokkrum árum var sorpbrennsla bönnuð á Íslandi. Svo hart var gengið fram í því banni að sveitarfélög sem nýttu þann varma sem frá brennslunni kom uru að leita annarra leiða til að hita sundlaugar sínar og íbúðahús. Hjá sumum var eina leiðin að skipta yfir í olíu.

Allt sorp skildi urðað. Vandinn er sá að erfitt er að finna land fyrir slíka sorpurðun. Lyktarmengun fylgir gjarnan slíkri starfsemi, jafnvel þó eins vel sé staðið að verki og frekast er kostur.

Nú er sú staða komin upp að heilu landshlutarnir hafa ekki urðunarstað fyrir sitt sorp og Sorpa tekur ekki við öðru sorpi en því sem henni sannarlega ber, enda gengur hratt á urðunar svæði hennar. Þá var bara eitt í stöðunni, að flytja sorpið úr landi, með skipum yfir Atlantshafið. Nú er ég kannski ekki sleipur í reikningi, en það er útilokað að koma því í minn þykka haus að minni mengun verði til við slíkan flutning, en brennslu hér á landi. Þá erum við bara að tala um mengunina, sem var sögð ástæða fyrir lokun brennslustöðvanna hér á landi.

Við það bætist síðan að sú orka sem brennsluofnar gáfu af sér er ekki til staðar þegar sorpið er flutt úr landi.

Ofaná allan ósómann kemur síðan sú staðreynd að þegar sorpið nær landi ytra, er því samstundis keyrt í sorpeyðingarstöð sem BRENNIR helv... sorpið!!

Við Íslendingar eru alveg einstaklega heppin að eiga svona ofboðslega viturt fólk til að stjórna landinu - eða þannig.

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 2.2.2019 kl. 20:50

14 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Gunnar Heiðarsson og þið hin skynsömu.Þetta er verkurinn.

Alltaf byrjað í bullinu sem vinstri elítan er heltekin af. Það má ekki ræða neitt annað en það sem hún er búin að meðtaka.

Umhverfisráðherrann veit allt upp á sína tíu fingur en við hin ekki neitt. Hann ræður í skjóli Sjálfstæðisflokksins sem ég þekkti einu sinni sem fullveldisflokk en ekki EES flokk.

Halldór Jónsson, 2.2.2019 kl. 21:19

15 Smámynd: Halldór Jónsson

 Ég bjó í sama húsi og Arabar sem fleygðu öllu mmatarúrgangi út um þakgluggann þar sem hann rotnaði í snjógrindunum. Þeir frá Auturlöndum hafa yfirleitt allt aðra sýn á umhverfið en við hin.

En við munum læra af þeim með tímanum og eftir því sem þeim fjölgar meðal okkar gömlu Íslendingunum. Aðalatriðið er ekkert plast í sjóinn.

Nú eru að koma hingað 70 stykki af kvótaflóttamönnum sem eiga að   dreifast um landið. Samkynhneigðir frá Uganda og múuilímskir Sýrlendingar sem ekki er vitað hvort skilji ensku. Frábært skipulag elítunnar og helgu Völu hjá Rauða Krossinum.

Halldór Jónsson, 2.2.2019 kl. 21:28

16 Smámynd: Halldór Jónsson

Skyldi Umhverfisráðherrann geta frætt okkur a því hversu margar þyngdarprósentur einn Bónuspoki fullur af heimilissorpi er af heildaþyngd pokans sem fer í Sorpu? Eru ekki prómille-tala líklegri en prósenta?

Halldór Jónsson, 2.2.2019 kl. 21:32

17 identicon

Heyr, heyr Halldór!  Þessi búrakratakommi situr í skjóli Sjálfstæðisflokksins.  Ömurlegt.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.2.2019 kl. 21:59

18 identicon

Sæll Halldór, aftur.

Ég bjó í sama húsi og kristnir, sem fleygðu miklu útum eldhúsgluggann hjá sér sem snéri frá götunni. Þetta var við Miðjarðarhafið. Mig grunar að það hafi ekki verið nein sorphirða á svæðinu, enda stríð í landinu. Var þarna í stuttan tíma.

En ég treysti nýbúum á Íslandi alveg til þess að ganga vel um og setja ruslið í viðeigandi sorptunnur.

Ingibjörg Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2019 kl. 00:26

19 identicon

Ráðherrar eru ekki kjörnir Ómar. Þingmenn eru það og síðan ákveða stjórnmálaflokkarnir hverjir skipa ráðherraembættin. Ráðherrar eru framkæmdamenn ( starfsmenn)fyrir stefnu sem á að vera ákveðin af meirihluta þingsins en er reyndar ekki svo heldur ákveðin af stjórnmálaflokkunum með hrossakaupum. Að mínu mati á að ráða í þessi störf rétt eins og önnur störf ríkisins og þá fólk sem er hæft og hefur fulla kunnáttu til að gegna starfinu.

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 3.2.2019 kl. 09:38

20 identicon

Er núverandi stjórnarskrásvo slæm. Þarf bara ekki að fara eftir henni. Samkvæmt stjórnarskrá er hverjum íslendingi heimilt að bjóða sig fram til alþingis þegar uppfylgtum aldri er náð. Stjórnmálaflokkarnir hafa hins vegar breytt þessu sem gerir t.d mér það ókleyft. Annaðhvort þarf ég að leita á náðir einhvers stjórmálaflokks eða stofna nýjan( lista) og afla mér undirskrifta ákeðins hóps manna . Eigum við ekki bara að snúa okkur að stjórnarskránni aftur?   

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 3.2.2019 kl. 10:44

21 Smámynd: Halldór Jónsson

Við Sorpbrennslu  erlendis eftir útflutning á sorpinu bætist við útblástur flutningstækisins eða hvað?

Halldór Jónsson, 5.2.2019 kl. 08:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 3418235

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband