Leita í fréttum mbl.is

Ríkisvæðing vændis

var hugtak sem ég heyrði hinn skarpa lögmann Pétur Gunnlaugsson á Útvarpi Sögu velta fyrir sér.

Hann rifjaði upp setningu laganna um vændiskaup á Alþingi sem gerðu vændissölu löglega en vændiskaup glæpsamleg. Vændiskonan má selja sína þjónustu og má svo kæra kaupandann sem þá skal fyrir opið glæparéttarhald með tilheyrandi. Hann nefndi hinn þekkta siðgæðispostula Ágúst Ólaf sem einn flutningsmanna,  Álfheiði Ingadóttur og  einhverja fleiri sem flutningsmenn frumvarpsins sem þingheimur hafði samþykkt líklega án þess að hugsa.

Lögin gera erlendum vændiskonum, sagði Pétur,  sem eru jafnvel fórnarlömb mansals, kleyft að flykkjast hingað í viðskiptaerindum. Þær mega selja að vild án refsinga. Þær mega hinsvegar kæra viðskiptamenn sína að vild.

Arnþrúður útvarpsstjóri taldi í sama  þættinum að næg eftirspurn væri hérlendis eftir slíkri þjónustu. Enda ekki ólíklegt ef athugað er hversu mjög útbreidd þessi kynferðislega áreitni sem MeToo konurnar tala um, virðist vera. Flestir karlmenn virðast eftir lýsingunum þannig  vera einhverskonar klámruddar sem misnota allar konur sem þeir koma höndum yfir.

Svo sagði hún Arnþrúður líka að vændiskonur vildu jafnvel viðskiptin sjálfar, sem auðvitað gæti komið  mörgum á óvart. Mér fannst Pétri fipast við þessa yfirlýsingu Arnþrúðar og það hvarflaði að mér hvernig mönnum eins Ágústi Ólafi eða þeim í siðferðisnefnd Samfylkingarinnar gæti orðið við við svona yfirlýsingar.

Á þeim lagasetningartíma var rætt um að gera vændi löglegt sagði Pétur. En vændi er elsta iðngrein heimsins eins og Arnþrúður benti Pétri á. Hann taldi hugsanlegt að samþykkt frumvarpsins að sænskri fyrirmynd hefði verið mistök þingmanna sem hefðu hugsanlega ýtt á vitlausan hnapp.

Ég myndi gjarnan vilja trúa því þar sem lögleiðing vændis  hlyti að gera allt eftirlit auðveldara og afglæpavæðingu vændiskaupa þar með líka og vinna gegn mansali. En lagasetningin sjálf finnst mér svo hreint heimskuleg þar sem hún hefur þveröfug áhrif við það sem flutningsmönnum gat gengið til. Hún stuðlar að auknu framboði vændis og glæpum  eins og Pétur bendir á.

Þjóðverjar telja sig vita að lögleiðing vændis dragi úr vissum tegundum glæpa gegn konum. Enda á Svíþjóð víst heimsmetið í nauðgunum um þessar mundir en okkar löggjöf er að sænskri fyrirmynd. En hvergi eru líka múslímskir innflytjendur fjölmennari en í Svíþjóð og þeir eru ekki uppaldir við að sýna konum mikla virðingu. Auk þess telja þeir hugsanlega villutrúarkonur eiga ekki betra skilið en nauðgun.

En í alvöru þarf ekki að endurskoða þessa sænsk-íslensku löggjöf og gera vændið alveg löglegt í stað þess að gera söluna löglega en kaupin glæpsamleg?

Sem mér finnst ekkert annað vera en heimskuleg ríkisvædd vændisstarfsemi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þessi lög gerðu lögregluna náttúrlega að melludólgum.

Ásgrímur Hartmannsson, 3.2.2019 kl. 13:23

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Halldór þetta eru með skrítnustu lögum sem hafa verið samþykkt á Íslandi en ég held að ísland eigi met í svona lögum þar sem einum er leift en öðrum ekki. Svipað og einn fær leifi til að drepa en sá sem var drepin mátti ekki verja sig. Ég veit það ekki en undarlegt samt.   

Valdimar Samúelsson, 3.2.2019 kl. 15:13

3 Smámynd: ÖGRI

Það sem ég hefi sem liðveisla flóttamanna á vegum Rauða Krossins verið um að kynnast múslimum þekki ég fáa sem sýna konum þvílíka virðingu . Konan er blómið þeirra sem þeir gæta einsog dýrmætasta fjársjóðs síns .

ÖGRI, 3.2.2019 kl. 15:53

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Konum af þeirra trúflokki. Ég hef hvergi séð í slenskum konum sýnd önnur eins óvirðing og á flugvellinum í Dubai. Arabarnir virtu þær ekki viðlits í kioskinum þar sem þær vildu kaupa frímerki. Horfðu í gegnum þær með augljósri fyrirlitningu .Ég varð að kaupa frímerkin fyrir þær. Síðan fyrirlít ég fólk sem hegðar sér svona. Sem eru bara Arabar.

Halldór Jónsson, 3.2.2019 kl. 17:01

5 identicon

Sælir Halldór og Valdimar. Ég hef alltaf sett spurningu við þessi lög. En þau stangast ekki á við stjórnarskrána, hvað varðar þann einstakling sem selja sig: Í  75. gr. segir: "Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. ..."

En spurning er hvot lögin stangist á við stjórnarskrá skv. 65. gr. en þar segir: "Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. - Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna."

Ingibjörg Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2019 kl. 22:12

6 identicon

Eitt sinn var ég á fyrirlestri hjá lögreglumanni. Honum fannst að það ætti að sjónvarpa beint frá réttarhöldum yfir vændiskaupendum og hann stærði sig af því að hafa sannfært konur um að þær væru fórnarlömb mannsals. Maður fylltis óhug

Grímur (IP-tala skráð) 3.2.2019 kl. 22:54

7 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Í anda þessara fáránlegu laga, mætti alveg eins lögleiða sölu fíkniefna en handtaka aðeins neytendurna og rétta yfir þeim í beinni. Algerlega galið fyrirkomulag.

Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 3.2.2019 kl. 23:06

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Nafni minn að sunnan:

 "anda þessara fáránlegu laga, mætti alveg eins lögleiða sölu fíkniefna en handtaka aðeins neytendurna og rétta yfir þeim í beinni. Algerlega galið fyrirkomulag.

Góðar stundir, með kveðju að sunnan."

Athyglisveð tenging finnst mér jhjá þér.

Halldór Jónsson, 4.2.2019 kl. 10:43

9 identicon

Snerting við konu er gjarna bundinn hjúsksp og hjónabandi þeirra meðal múhamedstrúarmanna og líta þeir ekki til konu annars manns af virðingu við konuna . Það væri ágætt að þekkja rétt aðeins og hafa skilning á því sem maður er að tala um og nú er orðinn búsettur fjöldi múslima á Íslandi og því rétt að tala af ´ virðingu ´ um þá .

Helgi Ásmundsson (IP-tala skráð) 4.2.2019 kl. 11:08

10 identicon

Konur hafa ávallt ráðið ferðinni í ástamálum.  Þetta lærði maður í sveitinni. Tuddarnir bíða eftir atað og stund eftir hennar samþykki. Allt annað er áreiti. Arabar hafa annað lag en við á Vesturlöndum og eiga oft fleiri en eina eiginkonu. Þeir keyra líka konunum sínum og fara vel með þær.

Samanburður á vændis reglum og eyturlifjasölu er skemmtileg samlíking. Eigum við að fást við eyturlyfjasalann eða "sjúklinginn!, sem kaupir af honum.

Það leysir enginn þetta vændismál með reglugerðum og þá síst Alþingi, sem hafa alvarlegri mál á dagskrá eins og loftlagsmál, ESB miljarða kostnað með getuleysi Evrópumála, rafbílar og VEGASKATT fyrir aldraða og öryrkja. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 5.2.2019 kl. 08:22

11 identicon

Helgi Ásmundsson - https://www.mbl.is/frettir/erlent/2019/02/05/eg_mun_aldrei_gleyma/

Þetta er örugglega falslrétt, eftir því hvernig þú lýsisr múslimum.

Ert þú á einhverfu róli og í öðrum heimi?

valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 5.2.2019 kl. 12:51

12 identicon

Öllu er hægt að snúa á haus.

Lögin eru ósköp einföld. Vændi er ólöglegt í dag en litið er á vændiskonuna/karlinn sem fórnarlamb og er því ekki gerð refsing.

Svipaðar tillögur hafa komið fram varðandi fíkniefnaneyslu, þ.e.a.s. neyslan er ekki refsiverð þar sem litið er á fíkniefnaneytanda sem fórnarlamb, sala er aftur á móti refsiverð.

Ef vilji er að banna vændi þá er þetta skynsamlegasta leiðin. En hvort vændi eigi að vera löglegt eða ekki er allt önnur umræða.

Snorri (IP-tala skráð) 5.2.2019 kl. 13:18

13 Smámynd: Hörður Þórðarson

Já, Ogri, þeir passa konurnar sínar, skera af þeim vissa parta og sauma saman. Konunum er væntanlega með þessu sýnd mikil virðing. Þeir gæta kvennana mjög vandlega, rétt eins og þeir gæta öðrum eignum sínum, svo sem svínum, hundum og köttum. 

Varpandi vændislögin, fólk á að ráða yfir eigin líkama og það á ekki að refsa fullorðnu fólki fyrir að gera hluti með beggja samþykki. Allra síst eftir á, eftir geðþótta annars aðilans.

Hörður Þórðarson, 5.2.2019 kl. 18:34

14 Smámynd: Halldór Jónsson

Hörður, "Varpandi vændislögin, fólk á að ráða yfir eigin líkama og það á ekki að refsa fullorðnu fólki fyrir að gera hluti með beggja samþykki. Allra síst eftir á, eftir geðþótta annars aðilans."

Ef þetrta er yfirfært á fóstreyðingarfrumvarpið, þá er það ein aðal röksemdin að ráða yfir eigin líkama eða hvað?

Halldór Jónsson, 6.2.2019 kl. 06:47

15 Smámynd: Hörður Þórðarson

Að sjálfsögðu, Halldór. Fólk á ALLTAF að ráða yfir eigin líkama. Það á ekki að fara eftir geðþótta einhverra brjálaðra kellinga eða eftir sænskum lögum. 

Hörður Þórðarson, 7.2.2019 kl. 07:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband