Leita í fréttum mbl.is

Brjálæði

er að hlusta ekki á aðvaranir vísindamanna við innflutningi fjölónæmra sýkla og vírusa.Svo segir í Morgunblaðinu á forsíðu:

"Karl G. Kristinsson, prófessor í sýklafræði og yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, leggst gegn þeim áformum að heimila innflutning á ógerilsneyddum mjólkurafurðum.

„Það bara má ekki gerast. Ég held að það sé ennþá möguleiki að bregðast við því,“ segir hann en fyrir liggur lagafrumvarp sem heimilar slíkan innflutning.

Að sögn Karls getur verið mæðivisnu veira í ógerilsneyddri sauðaog geitamjólk. „Í Evrópu, og nánast alls staðar í heiminum, er mæðivisnu veiran landlæg. Hún hefur ekki verið á Íslandi mjög lengi en hún barst til landsins 1933, með innfluttu sauðfé frá Þýskalandi. Hún dreifðist um allt land og tók langan tíma að uppræta hana.

Áður en tókst að uppræta veiruna hafði hún lagt að velli 150.000 kindur og þurfti að lóga 600.000 fjár.“ Hann segir íslenskt sauðfé mjög móttækilegt fyrir veirunni og ekki þurfi nema eina veiru til að sýkja sauðfé. Veiran hefur verið í Evrópu í árhundruð og því hefur sauðfé þar aðlagað sig veirunni. „Við viljum ekki fá þetta inn aftur.“ »1

Ég man vel þegar við vorum að drepa mæðiveikar rollurnar í Borgarfirðinum í stríðslokin með helgrímum. Þessir vesalingar börðust við að ná andanum og skulfu eins og hríslur.Þetta var skelfilegt að horfa á.

Nú á að fórna öllu öryggi fyrir skammtíma gróðasjónarmið kramara undir yfirskyni viðskiptafrelsis Evrópusambandsins. 

Það deyja núna 30.000 manns í Evrópu einni af völdum ónæmra sýkla.Hvað viljum við mörg dauðsföll hér?  Hvernig líst okkur á 10 Íslendinga á altari Bónusar og Krónunnar? 

Það er hreint brjálæði að hlusta ekki á vísindamenn okkar og taka áhættuna af dauðsföllum af þessum völdum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hafðu mikla þakkir fyrir þennan dúndrandi góður pistill.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.2.2019 kl. 23:14

2 identicon

Það er BRJÁLÆÐI gagnvart vatni,gróðurhúsum og jörð að flytja inn "mengað,lyfjað hrátt Kjöt og annan fögnuð",sem Landinu okkur gæti stafað ógn af til framtíðar. ALÞINGImenn verða að svara ÞESSU MIKILVÆGA máli fyrir ÍSLAND og aftur ÍSLAND, EN EKKI samkvæmt óskum ESB landa, sem ógnar fámenni okkar á flestum sviðum.

MÆLUM með íslenskum mat og drykkjarföngum fyrir erlenda ferðamenn meðan þeir dvelja á ÍSLANDI, sem er til tryggingar á ómenguðu Landinu okkar og á "gönguleiðum". Höfum sömu reglur um erlendar rútur á leið um landið borðandi íslenskan mat frá BÆNDUM og SJÁVARÚTVEGI.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 22.2.2019 kl. 23:57

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ísland verður fyrir stöðugum árásum um þessar mundir af erlendum öflum og handbendum þeirra hér heima fyrir.

Nú er það landbúnaðurinn, en ekki gleyma þriðja orkupakkanum og duldum Marokkó samningum og hvað með þennan stórundarlega sjóð sem til stendur að leggja tekjur landsvirkjunar í, örugglega til að stela fljótlega o.s.frv.?

Mögulega er þessi draumsýn Íslendinga um sjálfstætt stolt lýðveldi, nú á síðustu metrunum.

Jónatan Karlsson, 23.2.2019 kl. 09:32

4 identicon

Hvarð er til ráða ?  Við erum sokkin í djúp ESB.

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 23.2.2019 kl. 11:03

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Mælstu heilastur Halldór.

Viska gamalla beina mætti stundum vera viska þjóðar.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 23.2.2019 kl. 11:40

6 identicon

Fagur æskuhópur glókolla hamast nú á Austurvelli við að styðja LOFTSLAGSMÁLIN, sem hugsanlega er hluti af sköpuninni?. Svartar F O húfur og mótmæla skylti var mjög sýnilegt og virtist útfært af "sérfræðingum". Er þetta framtíðar hópur mótmælenda?. Hverjir leggja út fyrir kostnaðinum?.

Eru þetta ESB áhrifin í OKKAR fámenna Landi?.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 23.2.2019 kl. 12:33

7 identicon

Minnumst FARFUGLANNA erlendis frá,sem ætíð finna draumadalinn blávatnsána,grænmosann undir eggin sín og veru sína á Landinu OKKAR. ÍSLAND er enn ÓMENGAÐ og ennþá ÖRUGGT.Fuglarnir HREINSA sig og ná sér að fullu eftir langflugið til ÍSLANDS og njóta ÍSLENSKRAR náttúru, sem engu er lík.  Þess sama eigum við að mæla með við ERLENDA ferðamenn á leið til ÍSLANDS til að undirstryka ómengaða fegurð og öryggi matvæla hér norður í höfum.

Við eigum úrvals matreiðslumenn. Maturinn er dýr á vertshúsum. Margir vilja vita hvaðan KJÖTIÐ og SALATIÐ kemur frá Gróðurhúsum eða Útiræktað?. Ræðum langlífi ÍSLENDINGA og útskýrum að þessi veitingastaður selur eingöngu frá BÆNDUM og SJÁVARÚTVEGI.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 25.2.2019 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 3419710

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband