Leita í fréttum mbl.is

Verksviptingar strax

látum ekki verkalýðsfantana hafa allt frumkvæði.

Stöðvum þjóðfélagið á öðrum forsendum en að bara þeir stjórni aðgerðum.Látumþá finna til tevatnsins einu sinni.

Verksviptingarheimildir strax.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er ekki svolítið öfugsnúið að skammast yfir því að verkalýðsfélögin eyðileggi markaði og stöðvi þjóðfélagið með verkföllum og ætla svo að gera nákvæmlega það sama ? Á þetta að verða einhver keppni ?

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 19.3.2019 kl. 07:29

2 identicon

Halldór Halldór hvert ert þú kominn?cry

Halldór minn í hvaða hringdans ert þú nú kominn í == Þú ert margbúinn að tjá  þig hér á blogginu þínu  um ranglæti því sem felst í ofurfjármununum þeim sem ráðstjórnin tók til sín og kallar vinnulaun.

Eðlilegt er nú að þeir sem búið var af ráðstjórninni að setja í þá stöðu að laun þeirra dugði ekki fyrir framfærslu, berjist nú fyrir sínu daglega brauði.  Um þetta hefur þú skrifað og þá verið sammála þeim sem voru í veikustu stöðunni, en þá hlýtur að hafa verið annar taktur í þínum hringdansi en nú. Öllum sanngjörnum finnst eðlilegt að kröfur fólks miðist við að hafa sæmilegt lífsviðurværi. Hönnuður kjaradóms og upphaf ofurlauna til ráðstjórnarinnar leiðir til ófarnaðar. Ófarnaðarleiðin er leidd af Sjálfstæðisflokknum undir stjórn Bjarna Ben.

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 19.3.2019 kl. 11:52

3 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Sannir [grasrótar]Sjálfsstæðismenn kunna þetta.

Beita valdiinu, þegar hægt er að beita valdinu, vera bara á undan. 

"Stétt með sétt"...

Sigfús Ómar Höskuldsson, 19.3.2019 kl. 12:14

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Raunar vil ég að SA afsali sér samningsumboði og selji verkalýðsfélögunum sjálfdæmi um taxta.Á móti hafi þeir engann forgang til vinnu né heimild tl skylduaðildar.Sama með kennarana . Það mefgiráða réttindalausa eftir því sem skólastjórendur ákveða. Sömuleiðis útlendar ljósmæður 

Halldór Jónsson, 19.3.2019 kl. 23:18

5 Smámynd: Þórir Kjartansson

Ég tel það víst, Halldór, að þú sért sammála því að það er ekki hægt að lifa af 300þús. +/- á mán; í þessu þjóðfélagi okkar. Við þeirri staðreynd eru hvorki SA eða ríkisstjórnin að bregðast. Spila út svo aumum útspilum að það eykur bara pirringinn og reiðina sem fyrir er.  Meðan stórir hópar í þjóðfélaginu sjá ekki fram á neitt nema áframhaldandi fátækt og basl verður enginn friður

Þórir Kjartansson, 20.3.2019 kl. 08:44

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Þórir, er ég ekki að taka undir þín sjónarmið? Félögin setji taxtana sína og svo sjá mnenn til hvort einhverjir vilji borga þá eða semja við lægstbjóðendur. En þá gengur ekki að leyfa hömlulausan innflutning á fólki

Halldór Jónsson, 20.3.2019 kl. 09:18

7 Smámynd: Þórir Kjartansson

En hvað finnst þér um áhuga eða öllu heldur áhugaleysi ríkisstjórnarinnr til að koma að lausn þessara mála? Þar liggur mesti vandinn og við sem höfum verið í atvinnurekstri þekkjum það vel hvernig stjórnvöld hafa alltaf s.l. 25 ár tekið launahækkanir vinnandi fólks í hækkuðum sköttum, hækkuðu tryggingagjaldi, hækkun á lífeyrissjóðagjöldum og vaxtaokri. Allt mál sem aðeins er á færi stjórnvalda að leysa.  Og hvers vegna er innflutningur á fólki? Það er vegna þess að íslendingar eru orðnir of menntaðir og fínir með sig til að vinna þessi láglaunastörf. Kannski ekki undarlegt þar sem ekki er hægt að lifa af þeim launum sem þar bjóðast. En svo skal ,,menntun metin til launa" þó það sé kannski engin eftirspurn hjá atvinnulífinu eftir þessu hámenntaða fólki. Ætli að vandinn liggi kannski ekki í því að það eru orðnir alltof margir á of háu kaupi að vinna störf sem engri framlegð skila í þjóðarbúið. Það eru nefninlega skynsamleg takmörk á öllum hlutum.

Þórir Kjartansson, 20.3.2019 kl. 11:45

8 identicon

Tek undir með Þóri. Og varðandi " Menntun metin til launa " þá er eins hægt að halda því fram að erfið störf og sóðaleg séu einnig metin til launa. Það er svo að með 3ju. iðnbyltingunni hverfa mörg störf en ekki öll og þau verða bara að borga sómasamlega vegna þess að þau eru nauðsynleg til að atvinnulífið gangi smurt. Svo það er bráðnauðsynlegt fyrir SA og eins ríkisstjórnina að semja. Og svo ætla ég að endurtaka fyrri tillögu að Bjarna Ben sé vikið úr embætti og annar taki við Fjáarmálaráðherranum. Hann veldur enganveginn þessu starfi.

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 20.3.2019 kl. 12:01

9 identicon

Kjararáð er upphafið af öllu ósætti. Nú hefur það verið lagt niður eftir að "elítan" fékk ALLT sitt.

Vitið þið um aldraða og öryrkja,sem náð hafa kr.300.þúsund á mánuði?.

Ferðamenn eiga að bæta allt sem miður fer. Við erum ekki sátt við að græða vel heldur sitjum við eftir með GRÆÐGINA eina. Árið 2015 fóru gömlu hjónin norður og voru rukkuð um kr.4.400 fyrir þorsk á einn matardisk.

Stjórnlaus innflutningur á "ólíku" fólki er áhyggju efni fyrir fámenni ÍSLENDINGA. Við eigum nógan mat og blávatn til að gefa erlendis.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 20.3.2019 kl. 12:09

10 identicon

Sæll Halldór jafnan - sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór !

Tek ALAFRIÐ undir: með sjónarmiðum og áherzlum Þóris Kjartanssonar, sem ýmsum annarra, hér efra.

Þórir - rak jú, af myndarskap og ráðdeild, eitt stærsta fyrirtæki Skaftfellinga austur í Vík um árabil, og þekkir viðfangsefni umræðunnar því vel, frá öllum hliðum.

Það er orðið tímabært: að tjakka niður Tryggingagjaldið af fyrirtækjunum (úr þessum 6.6% sem nú eru cirka / a.m.k. niður í 1.5%:: hið mesta, t.d.) svo og LOKA á sjálftöku Lífeyrissjóðanna sjálfvirkrar, sem fram hefur farið í skjóli afglapa lagasetningar alþingis og stjórnarráðs með slíkri virkni, að forstjórar þeirra eru að verða ógangfærir undir sjálfum sér sökum bílífis og velmegunar prívat (standa á blístri, sumir kúluvambarnir), á kostnað eigenda sjóðanna:: viðfangsefni mitt, m.a., að kljást við þessi misserin, þó hægar gangi, en ég kysi.

Það er ágætt Halldór minn - að Bjarni Vel- lýgni Benedikts son og söfnuður hans, eru aðeins farin að þokast niður aðdáunar pallinn þinn þessa dagana, Verkfræðingur góður !

Með beztu kveðjum: suður til Flórída, sem víðar um grundir, af utanverðu Suðurlandinu, sem oftar /

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.3.2019 kl. 13:01

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Óskar Helgi

Þórir,  áhugaleysi ríkisstjórnarinnr til að koma að lausn þessara mála? Þar liggur mesti vandinn og við sem höfum verið í atvinnurekstri þekkjum það vel hvernig stjórnvöld hafa alltaf s.l. 25 ár tekið launahækkanir vinnandi fólks í hækkuðum sköttum, hækkuðu tryggingagjaldi, hækkun á lífeyrissjóðagjöldum og vaxtaokri. Allt mál sem aðeins er á færi stjórnvalda að leysa. 

Ég er áþví að ríkisvaldið eigi ekki að blanda sér í þessar kjaradseilur. Skattalækkanir eru kosningamál.

Verkalýðsfélögin eiga að fá sjálfdæmi gegn afsali á skylduaðild og forgangi til starfa hjá SA

Halldór Jónsson, 20.3.2019 kl. 14:13

12 identicon

Sæll Halldór.

Hélt fyrst að hinn slyngi verkfræðingur
hefðu brugðið sér í gerfi Egils á Borg en mig
grunar að ekkert ráð komi deiluaðilum betur
en einmitt þetta sem lagt er til: verkbann.

Rétt að hver reikni fyrir sig það dæmi til enda.

Þetta er eina tillagan til þessa sem ég hef heyrt sem
gæti breytt hlutunum umtalsvert frá því sem nú er.

Eitursnjallt!

Húsari. (IP-tala skráð) 20.3.2019 kl. 18:23

13 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk húsari

Halldór Jónsson, 21.3.2019 kl. 16:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418219

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband