Leita í fréttum mbl.is

Veður Bjarni reyk?

hvað varðar 3. Orkupakkann þegar hann skrifar svo:

 

"Innleiðingin verður á öllum orku­pakkanum gagnvart ESB:

Því fer víðs fjarri, að ein sam­eig­in­leg frétta­til­kynn­ing ís­lenzks ráð­herra og eins fram­kvæmda­stjóra ESB hafi nokkra laga­lega skuld­bind­ingu í för með sér fyrir Evr­ópu­sam­band­ið (ESB).
Að undan­skilja gerð nr 713/2009 við inn­leið­ingu Al­þing­is á ESB-Orku­bálki #3 hefur þess vegna ekkert laga­legt gildi gagnvart ESB. 


Þetta þýðir, að ESB-gerð, sem brýtur gegn Stjórnarskrá að mati Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst, verður innleidd í lög á Íslandi samkvæmt Evrópurétti. ESB verður óbundið af þeim fyrirvara Alþingis að skilja gerð 713/2009 frá innleiðingu Orkubálks #3 í EES-samninginn.


Sæstrengsfjárfestar munu geta sótt um leyfi til Orkustofnunar fyrir sæstrengslögn til Íslands, eins og ekkert hafi í skorizt, þ.e. eins og enginn fyrirvari þessu lútandi hafi verið settur í íslenzk lög. Af munu hljótast málaferli, sem aðeins geta endað á einn veg.

Réttur vettvangur breytinga/aðlögunar fyrir EFTA-ríkin:

Að gera lögformlegt samkomulag við ESB um að fella niður heila gerð í heildstæðum ESB-lagabálki fyrir innleiðingu í einu EFTA-landi er ómögulegt á símafundi. Yfirlýsing samþykkt á símafundi hefur aðeins pólitíska þýðingu hér innanlands, en alls enga réttarlega þýðingu eða skuldbindingu fyrir ESB.
Eini rétti formlegi vettvangurinn fyrir slíka undanþágu eru samninga­viðræður í Sameiginlegu EES-nefndinni, þar sem saman koma fulltrúar allra viðkomandi EFTA-landa og ESB. Breytingar, sem út úr slíkum samninga­viðræðum kynnu að koma, þurfa síðan að hljóta samþykki Fram­kvæmda­stjórnar­innar, Ráðherra­ráðsins og ESB-þingsins. 


Við þessar aðstæður er ekkert til, sem hægt er með réttu að kalla „orkupakka á íslenzkum forsendum“. Með því er slegið ryki í augun á fólki með lögfræðilegum loftfim­leikum hér innanlands.

Sæstrengurinn „Ice-Link“:

Í umræddri fréttatilkynningu ráðuneytanna (UR, ANR) 22.03.2019 stendur: „Á sameiginlegum þing­flokks­fundi stjórnar­flokkanna 20. marz sl. var ákveðið að draga til baka umsókn um sæstrengs­verkefnið IceLink inn á fjórða PCI-listann (e. Projects of Common Interest). Hefur erindi þess efnis þegar verið sent.“ Núgildandi PCI-listi er nr 3, ekki nr 4, og gildir hann fram á árið 2020. 


Hvers vegna var ekki óskað eftir að fjarlægja „Ice-Link“ af núgildandi lista ? Það er vegna þess, að slík beiðni myndi engin áhrif hafa. Beiðni ríkis­stjórn­ar­innar er ekki einu sinni nægjanleg til að forðast, að „Ice-Link“ fari á nýja listann árið 2020. Þótt hann fari út af fjórða listanum, getur hann farið inn á fimmta listann 2022. Hvaða réttmætur hagsmuna­aðili sem er, getur óskað eftir því við ACER/ESB, að „Ice-Link“ eða t.d. „Ice-Ire“ (sæstrengur til Írlands) fari inn á PCI #4, t.d. raforku­fyrirtækið E´ON eða annar sæstrengs­fjárfestir. Þótt beiðni ríkis­stjórnar Íslands verði vafalaust vegin og metin, hefur hún ekki neitunar­vald um málið.


Það er ekki sopið kálið, þótt í ausuna sé komið, því að í Kerfisþróun­ar­áætlun ESB er gert ráð fyrir „Ice-Link“, og hann er einnig í samevrópskri heildaráætlun (energy corridors) fyrir orkuflutninga. Þar eru mörg samþykkt skjöl og formleg ferli, sem við eiga, svo að áhrif íslenzku ríkisstjórnarinnar eru takmörkuð. Þessi beiðni frá Íslandi dugar ekki endilega til að hindra, að strengurinn fari inn á PCI#4.

Hreinar línur:

Sú leið, sem ríkisstjórnin ætlar að fara í orkupakka­málinu, er ófær, af því að hún brýtur EES-samninginn og er þar með á skjön við Evrópurétt. Annaðhvort verður þingið að samþykkja Orkupakka #3, eins og hann kom frá Sameiginlegu EES-nefndinni, eða að hafna honum alfarið. Það er ekki hægt að samþykkja aðeins hluta af honum, en hafna eða fresta hinu. 


Afleiðingin af þessu er sú, að hagsmuna­aðilar, t.d. Vattenfall í Svíþjóð, geta kært ólögmætan gjörning Alþingis (að Evrópurétti) fyrir ESA, og þá mun þessi innleiðing hrynja, eins og spilaborg, og eftir mun standa í íslenzkri löggjöf Þriðji orkumarkaðs­laga­bálkurinn án nokkurrar undantekningar, þ.á.m. sá hluti hans, sem 2 af 4 lagalegum ráðgjöfum utanríkis­ráðu­neytisins töldu brjóta í bága við Stjórnarskrá Íslands. 
Þar með virðist einnig myndast grundvöllur fyrir málshöfðun á hendur ríkinu fyrir íslenzkum dómstólum fyrir stjórnar­skrárbrot.

Bjarni Jónsson rafmagnsverkfræðingur."

Fyrir mér er þetta einfalt:

3. Orkupakkinn fjallar um þá stefnu ESB að koma á viðskiptum með orku eins og með aðra vöru og þjónustu sem er megininntak ESB. Hvernig getum við verið að skuldbinda okkur til slíks samstarfs ef við ætlum ekki að lifa eftir því?

Til hvers erum við þá að vera í þessu EES samstarfi ?  Bara til þess að njóta þess sem okkur passar en hafna hinu? Er það okkur sæmandi?

Hvaða hag höfum við af því að undirrita yfirlýsingu um að koma á evrópskum orkumarkaði ef við höfum ekki sannfæringu fyrir réttmæti þess markaðar?

Annaðhvort höfum við hagsmuni af því að selja orkuna hæstbjóðanda eða við höfum ekki hagsmuni af því þar sem almenningur gæti þurft að greiða hærra verð fyrir kílówattið meðan ríkissjóður ,þjóðarbúið og Landsvirkjun hagnast á meira því?  

Almenningur og stóriðjan greiði meira til ríkisins sem selur orkuna.Samanlagður hagnaður af orkuframleiðslu verði meiri. 

Hverjir eru þá kostir þess að stóriðja sé fremur staðsett hérlendis en erlendis? Hugsanlega margir. En hefur þeim þá ekki fækkað um einn sé orkan á sama verði? 

Fylgja því þá ekki afgerandi kostir að unnið sé úr raforkunni á Íslandi fremur en annarsstaðar? Stóriðja, gagnaver, vetnisframleiðsla, áburður svo dæmi séu tekin?

Eru Bjarni Jónsson og fleiri að vaða reyk með því að leggja til að við samþykkjum ekki 3. orkupakkann né aðra slíka meðan kostir útflutnings raforku eru ekki augljósir?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Bjarni er ekkert að vaða reyk. Hann hefur bara ómakað sig við að kafa vel ofan í eðli þessa samnings og hvernig það eru embættismenn sem teyma okkur sífellt lengra út í foraðið. Það sem nú er að verða að veruleika, var samþykkt í EES nefndinni fyrir nokkrum árum, þar með að fara í Ice-link verkefnið. Að snúa ofan af öllum samþykktum EES nefndarinnar mörg ár aftur í tímann jafngildir uppsögn EES samningsins.  Og hvað þá með aumingja Norðmennina sem stóla á okkur að samþykkja þessa orkutilskipun?  Norðmenn selja alla sína olíu og núna umfram raforku til ESB. Þeir anda líka ofan í hálsmálið á ríkisstjórninni að samþykkja þetta svo það öðlist lagagildi.  

Það sem þarf að gera er að segja upp EES samningnum og semja upp á nýtt.  En ég er ekki að sjá grasrót sjálfstæðisflokksins taka svo róttæka ákvörðun.  Miklu líklegra að þið samþykkið froðubúninginn sem búið er að pakka málinu í. Og fatta svo eftir nokkur ár að þið voruð öll blekkt.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 29.3.2019 kl. 11:12

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Mögulega svo

Halldór Jónsson, 29.3.2019 kl. 15:14

3 identicon

VEÐUR BJARNI REYK?. VONANDI EKKI-varðandi ORKUPAKKA 3 og fleira, sem glutrast varðandi "sameign" ÍSLENDINGA. Landshlutar,Blávatnsár,Firðir og FOSSAR eru seldir erlendum AUÐKÝFINGUM. Fyrrum XD kjósendur fylkja EKKI lengur liði.

Rafmagnið úr BÆJARLÆKNUM frá gáfubræðrunum á KVÍSKERJUM vakti athygli í ÖRÆFASVEIT og á öllu Landinu stuttu eftir 1900. Eigandinn í ÞAKGILI setti upp eigin orku úr bæjarlæknum. Okkar næstu skref eru hugsanlega VIFTUR á hvern bæ og hús.

SAMEIGINLEGA EIGUM VIÐ ÍSLENDINGAR AÐ GREIÐA ALLAN KOSTNAÐ VIÐ SÆSTRENGINN AÐ VIÐBÆTU VATNSRÖRI FYRIR HEITT EÐA KALT VATN til viðbótar. MEÐ VATNINU GREIÐUM VIÐ ALLAN KOSTNAÐ AF SÆSTRENGNUM Á 20 ÁRUM OG VERÐUM SAMEIGINLEGA ÖLL RÍK MEÐ "ÓDÝRT" RAFMAGN OG HITA FRÁ OKKAR EIGIN ORKUVERUM.

SEGJUM OKKUR FRÁ GETULEYSI OG REGLUFARGANI ESB, EES OG SCHENGEN..  ÞAÐ GENGUR EKKI AÐ EIGA LANDAMÆRI VIÐ MIÐJARÐARHAFI FYRIR FÁMENNI OKKAR ÍSLENDINGA.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 29.3.2019 kl. 15:47

4 Smámynd: Halldór Jónsson

 Á síðasta landsfundi voru línurnar lagðar með eftirfarandi samþykkt: „Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins.“ Samþykktinni var beint gegn þriðja orkupakkanum. Þeir sem halda því fram að þessi samþykkt hafi verið sett fram af einhverju handahófi og tengist ekki þriðja orkupakkanum skulu skýra sitt mál. 

Halldór Jónsson, 29.3.2019 kl. 16:21

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Slagkraftur Sjálfstæðisflokksins er að engu orðinn, verði 3. orkupakkinn látinn rúlla gegnum Alþingi. Við sem fram að þessu höfum treyst forystu flokksins megum líka skammast okkar svolítið. Þetta fallega, gáfaða unga fólk sem vonir okkar voru við bundnar, voru úlfar í sauðagæru og Trojuhestar andskotans. Flokkur sem afnemur málfrelsi félaga sinna, skellir skollaeyrum við grasrótinni, er ekki í góðum málum. Þar verður engum öðrum um kennt en afvegaleiddri forystu, í yfirþyrmadi sjálfsánægju með eigin gjörðir og algera viðurstyggð á gildum flokksins sem þau lugu að okkur að þau stæðu fyrir. Leynikratapakk er sennilega réttnefni á núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins!.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 30.3.2019 kl. 01:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband