Leita í fréttum mbl.is

Kemur mér þetta eitthvað við?

Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur skrifar í Mbl. í dag. Þar rifjar hann upp eftirfarandi:

"Á síðasta landsfundi voru línurnar lagðar með eftirfarandi samþykkt:

„Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins.“

Samþykktinni var beint gegn þriðja orkupakkanum.

Þeir sem halda því fram að þessi samþykkt hafi verið sett fram af einhverju handahófi og tengist ekki þriðja orkupakkanum skulu skýra sitt mál."

Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að samþykkja 3. orkupakkann.Hún gefur ekkert fyrir mínar skoðanir og fleiri sérvitringa.

Kemur mér þetta eitthvað við lengur?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jú. Svo sannarlega kemur þetta okkur öllum við hvar í flokki sem við stöndum eða utan flokka. Undirskriftalista hið fyrsta!

Sigurður Bjarklind (IP-tala skráð) 29.3.2019 kl. 17:17

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þú byrjar

Halldór Jónsson, 29.3.2019 kl. 19:33

3 identicon

Hver er tilgangurinn í því að innleiða þennan "orkupakka þrjú", hver er hagur okkar af því?

Eða erum við bara að gera þetta til þess að þóknast einhverjum, t.d. ESB?

Hvers vegna ætti þeim í ESB að vera svo umhugað um að við innleiddum þennan pakka að þeir beittu okkur þrýstingi til þess, mætti þeim ekki bara standa á sama?

Hvers vegna liggur svona mikið á að samþykkja einhverja þingsályktunartillögu sem skiptir engu máli? 

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 29.3.2019 kl. 22:28

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Held að "forystan" átti sig ekki allskostar á fjölda "sérvitringa" í Sjálfstæðisflokknum, nafni. Má vel vera að við séum síðustu Geirfuglarnir, til einskis nýtir og þar af leiðandi ekki áhlustunarverðir, en við erum eitt atkvæði hvor, meðan við drögum andann og komumst á kjörstað og sennilega hugsa margir sannir Sjálfstæðismenn á svipuðum nótum og við, hver með sitt atkvæði.

 "Forysta" Sjálfstæðisflokksins okkar er í dag orðin að duglausum eftirgjafaraulum, án nokkurra hugsjóna, sem lætur embættismannahyskið teyma sig á asnaeyrunum fram á hengiflug sjálfstæðisafsals. Draumurinn hjá þeim virðist vera sá einn orðinn sem kalla mætti "gnarrískur":

 Þægileg innivinna, bara stimpla pappíra að utan, fín laun, feit eftirlaun og engin ábyrgð á öðru en að horfa út um rassgatið á sjálfum sér og snúa sér á hina hliðina, með stimpil sér í hönd. Forysta VG og framsóknarportkonan sama marki brennd, "notabene".

 Skítt með rest. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 29.3.2019 kl. 22:50

5 identicon

Viðar Guðjónssen? Var ekki einhver nasisti með sama nafni sem bauð sig fram í einhverjum kosningum hérna um árið. Gott ef það var ekki sem oddviti í borginni. Þessi nafni hans hefur greinilega meira milli eyrnanna.

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 30.3.2019 kl. 07:42

6 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Er ekki ljóst að Gunnlaugur Þór vinnur fyrir ESB núna. Hversvegna voru engar konur spurðar um lagalegt álit um orkupakka 3 heldur 4 karlmenn svokallaðir lagaprófessorar.  

 

Getur Gunnlaugur eða einhver sagt, hvað skeður ef Orkupakki 3 er ekki samþykktur.  Er það ekki svarið sem við viljum.

 

Ef ekkert skeður hversvegna  orkupakka 3.

 

Svar: Enn ein dulin að 100% innleiðingu að ESB regluverkinu.

 

Hvar er Össur.

Valdimar Samúelsson, 30.3.2019 kl. 11:04

7 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Hvað fær Guðlaugur Þór og hans kumpán marga silfurpeninga fyrir að fara á bakvið Íslenskan almenning?

Besta svarið væri frá Guðlaugi Þór sjálfum, en ef hann þorir ekki þá væri gagn að svari frá þeim sem veit.

Hrólfur Þ Hraundal, 30.3.2019 kl. 11:31

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Kolbeinn Pálsson virðist vera sérvitringur:

ækkar Rafmagn verulega hér með Orkupakka 3. eða er pakkinn LANDRÁÐ??

Nú á að samþykkja svokallaðan orkupakka 3.
Af hverju? Hversu mikið hagnast land og þjóð á því??

Hvað græðir íslenska þjóðin? mun rafmagnsverð lækka í kostnaðarverð fyrir heimilin og minni fyrirtækin? Stórnotendur standi undir framleiðslu? Ódýrari orka fyrir grænmetisbændur??

Mun Ísland ráða án undantekninga raforkunni og raforkuverði? Annað er ekki í boði!!

Ef svo er er þetta frábært.

Ef rafmagnið mun hækka innan Íslands og Ísland missir stjórn er þetta ekkert annað en hrein og klár LANDRÁÐ.

Mæli með því að MERKT verði SÉRSTAKLEGA við alla þá alþingismenn og ráðherra, svo allir þeir sem samþykkja orkupakkann geti sótt um sinn sérstaka stað í HELVÍTI!!

Það er enn laust pláss þar samkvæmt evrópusambandinu!!

Halldór Jónsson, 30.3.2019 kl. 12:36

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvað kjörnir þingmenn Sjálfstæðisflokksins gera verður þaðsem ég hef mestan áhuga fyrir.

Svo verður fróðlegt að horfa upp á kommagreyin í VG. Miðflæokkurinn klikkar ekki. Hvað Píratafíflin gera veit enginn.

Halldór Jónsson, 30.3.2019 kl. 12:39

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Styrmir vekur athygli á mótsögnunum:

" Tómas sýnir síðan með skýrum hætti fram á, að í þessari sömu yfirlýsingu séu utanríkisráðherra og framkvæmdastjóri orkumála ESB í mótsögn við sjálfa sig, þegar …: „Sú fyrri segir, að málefni er varði sæstreng og tengingu orkumannvirkja yfir landamæri falli undir Eftirlitsstofnun EFTA (ESA). Sú stofnun er óháð ráðherravaldi á Íslandi.

Seinni fullyrðingin segir að „ákvörðunarvald um raforkustrengi milli Íslands og innri raforkumarkaðar ESB liggi alfarið hjá íslenzkum stjórnvöldum“ … Þessi málflutningur allur nálgast það sem Grikkir kölluðu til forna kakófóníu en Jóhann S. Hannesson heitinn nefndi óhljóm.“ Það verður fróðlegt að fylgjast með því, hvort einhver þingmaður tekur sér fyrir hendur að ræða þessar mótsagnir við viðkomandi ráðherra! "

Halldór Jónsson, 30.3.2019 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 3419710

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband