Leita í fréttum mbl.is

Óli Björn Kárason

er endalaust seigur við að boða fólki trú á Sjálfstæðisflokkinn og á aðdáun skilið fyrir trúmennskuna.

Óli Björn skrifa eina slíka grein í Moggann í dag. Hún endar svona:

"Við sem höfum skipar okkur í sveit Sjálfstæðisflokksins eigum að vera óhrædd við að taka varðstöðu fyrir atvinnulífið, ryðja brautina fyrir framtaksmanninn, tryggja stöðu sjálfstæða atvinnurekandans.

Við eigum að fjarlægja hindranir og byggja upp eftirlitsstofnanir sem vinna með atvinnulífinu og stuðla að heilbrigðri samkeppni, hvort heldur er á almennum markaði eða í opinberri þjónustu.

Barátta okkar á að snúast um að skapa umhverfi þar sem framtaksmönnum er umbunað en ekki refsað, þar sem árangur er eftirsóttur en ekki tortryggður – umhverfi þar sem fyrirtækin fá að blómstra."

Bravó fyrir hugsjónamanni eins og Óla Birni.

En hvernig er með framkvæmdina?

Styður Óli Björn 3. Orkupakkann og ACER?

Styður Óli Björn umhverfisráðherrann, þennan sem enginn kaus, þegar hann boðar nýtt ríkiseftirlitsapparat allra fretmála fyrirtækja og almennings fyrir loftslagsmál?

Verður það fyrirtækjunum î landinu til styrktar og lækkar ríkisútgjöld?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Vel sagt Halldór. Það virðist að flestir á Alþingi hafi svokallaða greiningu allt frá athyglisbrest niður í einhverfu og hér er ekki verið að gera grín heldur að segja að það er ekki pláss né staður fyrir fólk af þessum flokkum frekar en í stjórnklefa á flugvélum þegar rökhugsun er ekki til staðar.

Valdimar Samúelsson, 3.4.2019 kl. 17:34

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Að boða stefnuna er eitt. Að fara sjálfur eftir því er annað. Verður fróðlegt að sjá hvernig Óli Björn höndlar orkupakka þrjú. Þá mun koma í ljós hvort hugur fylgir máli, eða hvort annars margar þokkalegustu blaðagreinar hans eru bara prump og orðin tóm.

 Greiði hann atkvæði með pakkanum hefur hann afflokksvætt sjálfan sig og gengið til liðs við fullveldisafsalsödlin.  Sitji hann hjá telst hann einnig til sama hyskis, sem og ef hann verður fjarverndi.

 Greiði hann atkvæði gegn þessari fásinnu, telst hann áfram Sjálfstæðismaður. Það er allt eða ekkert í þessu máli. Það er ekki hægt að vera "semi" Sjálfstæðismaður!.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 4.4.2019 kl. 02:39

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Athyglisverð sjónarmið hjá ykkur báðum

Halldór Jónsson, 4.4.2019 kl. 02:45

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

 

Það er mikið gott í Óla Birni. Hann er t.d. sá eini sem ég man eftir úr þingliði Sjálfstæðisflokksins sem gagnrýnt hefur hina ranglátu kosningalöggjöf (ekki bara 5%-múrinn, heldur margt annað) sem hyglir stóru flokkunum.

En spurningar þínar, Halldór, þarna í lokin eru verðskuldaðar og eiga mjög vel við.

Tek undir með Halldóri Guðnasyni.

Jón Valur Jensson, 4.4.2019 kl. 07:09

5 identicon

Einhvern veginn þá finnst mér vanta inn í hugvekjuna hjá honum " Stétt með stétt" sem á að vera eitt af aðalsmerkjum sjálfstæðisflokksins. Sjálfur er ég hlynntari gömlu sjálfstæðisstefnunni sem Styrmir Gunnarsson hefur talað fyrir og skilaði flokknum um og yfir 40% fylgi á árum áður. En varðandi síðasta innlit mitt þá finnst mér nýju kjarasamningarnir vera stórt skref í þá átt sem ég var að tala um og kannski hefur verkalýðshreifingin gæfu til að vinna áfram með þessa nýju stefnu. Salek samkomulagið er hugsanlega inn í myndinni núna og kannski í náinni framtíð höfum við enga þörf á samninganefndum verkalýðsfélaganna og atvinnurekenda þegar uppfærsla allra kjarasamninga verður sjálfvirk. Sumum finnst þetta kannski draumsýn en það þarf alltaf drauminn fyrst áður en hann getur rætst. Hörður Ægisson og Páll Viljálmsson eru taparar dagsins og Páll ætti að skammast sín fyrir síðustu bloggfærslu. Þar bullar hann algjöra vitleysu um verðtryggingu sem sennilega byggist á eigin hyggjuviti.

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 4.4.2019 kl. 08:45

6 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Skildi Óli hafa undir höndum svör við spurningum sem hann spurði Ráðherra um ORKUPAKKA 3 á Alþingi

Eggert Guðmundsson, 4.4.2019 kl. 13:33

7 identicon

Þór Saari segir svo í athugasemd við umfjöllun Jóns Viðars Jónssonar á feisbókinni um þriðja orkupakkann:

"Það borgar sig bara að lesa plaggið eins og það kemur af kúnni. Sérstaklega 8. greinina í innganginum þar sem kemur skýrt fram

að stjornvöldum sé skylt að styðja við áform um flutning raforku milli landa.

Þessa stöku grein, sem þó skiptir mestu máli, hafa allir í öllum álitunum forðast að tala um.

(8) In order to secure competition and the supply of electricity at the most competitive price, Member States and national regulatory authorities should facilitate crossborder access for new suppliers of electricity from different energy sources as well as for new providers of power

generation."

https://eur-lex.europa.eu/LexUriServ/LexUriServ.do?uri=OJ:L:2009:211:0055:0093:EN:PDF

Í framhaldi af þessu má spyrja þeirrar spurningar af hverju allir þingmenn "Sjálfstæðisflokksins" forðast að viðurkenna að í þriðja orkupakkanum er beinlínis krafist að stjórnvöld styðji við raforkuflutninga á milli landa:

Á mannamáli, lagningu sæstrengs.

Segi svo enn og aftur, að þingmenn og ráðherrar eru gráðugar bleyður.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 4.4.2019 kl. 20:26

8 identicon

Tek svo alveg sérstaklega undir orð þín Halldór

og sérstaklega skelegga athugasemd nafna þíns Guðnasonar um að annað hvort er maður sjálfstæðismaður, eða ekki.

"Semi-Sjálfstæðismaður" er sá sem hvorki er heitur né kaldur og sem segir um í frægri og fornri bók, að þannig mönnum skuli skyrpa fram af tungu. 

Þannig skal opinbera svikarana.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 4.4.2019 kl. 20:38

9 identicon

Og nú skal það sagt þrennt og heilagt:

Hálfvelgjan er ætíð háttur svikaranna.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 4.4.2019 kl. 20:41

10 identicon

SKRIFARAR OG HUGSUÐIR fyrir sameiginlega ÍSLANDSORKU -LANDSVIRKJUN fá ÖLL prikin í dag og ábending Símons Péturs varðandi Þór Saari um sæstrenginn og orkumálin.

Síðan sitja menn undir því að vera kallaðir ÖFGASINNAR eða ÞJÓÐERNISPOPÚLISTAR og vera HÆTTULEGIR öllum viðskiptum við (ESB)EVRÓPUSAMBANDIÐ, SEM SKIPAR okkur TIL allra "verka",SEM ER HÆTTULEGT FYRIR OKKAR FÁMENNU ÞJÓÐ. Ég er stoltur af því að halda vel upp á "GÖMLU GILDIN" og hafa fengið að fæðast á ÍSLANDI. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 5.4.2019 kl. 12:27

11 identicon

Ég ítreka það sem stendur skýrum stöfum í inngangi að þriðja orkupakkanum:

"(8) In order to secure competition and the supply of electricity at the most competitive price, Member States and national regulatory authorities

should facilitate crossborder access

for new suppliers of electricity from different energy sources as well as for new providers of power generation."

Af hverju þegir Guðlaugur Þór um þetta?

Af hverju þegja allir þingmenn, þ.m.t. Óli Björn Kárason,

og ráðherrar "Sjálfstæðisflokksins" um þetta?

Hálfvelgjan er ætíð háttur svikaranna. 

Græðgi þeirra ræður ein för.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 5.4.2019 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 3418444

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband