Leita í fréttum mbl.is

Langafi aftur

varð ég aftur í gær þegar þessi litli prins kom í heiminn. Sonur Unnars Freys Jónssonar,Halldórssonar og Guðrúnar konu hans.unnarsson

Þetta er alltaf stóratburður í lífi hvers manns. Því þegar maður lítur til baka þá liggur eiginlega ekki eftir mann nokkur skapaður hlutur sem máli skiptir annar en sá að hafa fært genom forfeðranna fram um eina kynslóð.

Ég er svo hamingjusamur að eiga fjölda af  barnabörnum  og núna 3 langafabörn, öll hvert öðru yndislegra.

Getur maður óskað sér neins betra? Skiptir annað einhverju máli í þessu lífi?

genome1Þetta lítur svona einhvernvegin út líffræðilega.

Í hverjum frumkjarna, eru 2x23 svona chromosomasett,  eitt frá hverju foreldri sem er genom lífverunnar.

Þetta eru mjög langar DNA mólekúlakeðjur sem spinnast saman í tvöföldum helix sem eru tveir gormar sem snúast hvor á móti öðrum.

Þversniðið sést á ljósmynd Franklins sem sýnir að tilgáta Watsons um helixinn var rétt.

.Þétta eru gífurlega flókin fræði sem líklega dr. Kárihelix  "klári" Stefánsson skilur mest í af Íslendingum.

Sem dæmi um það álit sem Kári nýtur í vísindaheiminum er að Watson fjallar um hann á tveimur blaðsíðum í bók sinni DNA.

Erfðafræðin er fyrir mér líklega ein merkasta vísindagrein sem mannkynið hefur fengist við. Í gegn um hana munu lækningar á krabbameini og ýmsum öðrum sjúkdómum koma.

Er ekki makalaust að menn geti séð fyrir virkni yfirborðs á sameindunum sem enginn sér?

Chymeric Antigen Receptors,CAR-T lyfin sem eru í þróun og verða bráðum framleidd sem krabbameinslæknislyf  á þeim grunni.

Eitt afbrigði í samsetningu litningsins getur ráðið  öllu um heill og hamingju lífverunnar.  Íslensk Erfðagreining getur greint þetta í sumum tilvikum fyrirfram og sagt fyrir um óorðna hluti í lífinu.

Innan tuttugu ára og kannski mun fyrr verður trúlega búið að finna þessi lyf við krabbameinum sem eru núna lítt læknanleg.Hugsanlega verða notaðar bakteríur til að flytja ný DNA inn í vírusana sem líklega orsaka flest krabbamein og útrýma meininu sem þeir valda að sögn dr.Luksas.  

Það var að mínu viti mikil ógæfa að Gagnagrunnur á Heilbrigðissviði skyldi ekki hafa fengið að fullvinnast vegna músarholusjónarmiða og kjaftæðis um persónuvernd. Mér finnst að heilsufarsupplýsingar séu ekki einkamál neins þar sem samfélagið situr endanlega uppi með vandmálin og verður að borga fyrir þau. En fíflin fengu að ráða eins og fyrri daginn og tækifærið gekk úr greipum.

En það er mikil upphefð að verða langafi hvað sem öllu öðru líður.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þormar

Þú ert ríkur maður, Halldór!

Til hamingju.

Hörður Þormar, 5.4.2019 kl. 20:05

2 identicon

Til hamingju

Er þetta líka ekki eini ríkidómurinn sem maður skilur eftir hér á jörðinn allt hitt mun mölurinn og ryðið granda

Grímur Kjartansson (IP-tala skráð) 5.4.2019 kl. 20:26

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Þið hafið rétt fyrir ykkur báðir, Takk fyrir kveðjurnar. Ég er ekki minna ríkur og Warren Buffet ef út í það er farið

Halldór Jónsson, 5.4.2019 kl. 23:41

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Til hamingju, Halldór. Sjálfur hef ég eignast 31 beinan afkomanda, 7 börn, 21 barnabarn og 3 barnabarnabörn, en hið fjórða á leiðinni. Þetta er mesta hugsanlega ríkidæmið, þótt í dag séu liðin rétt 36 ár frá fæðingu fyrsta barnabarnsins, hins eina sem ekki fékk að lifa nema nokkra daga. 

Ómar Ragnarsson, 6.4.2019 kl. 07:16

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Ómar, ríkidæmi okkar er óendanlegt.

Halldór Jónsson, 6.4.2019 kl. 08:22

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Glæsilegt Halldór - og ég óska þér og ykkur til hamingju!

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 6.4.2019 kl. 08:48

7 identicon

TIL HAMINGJU HALLDÓR OG ÖLL ÞÍN FJÖLSKYLDA MEÐ EINN KAPPANN TIL VIÐBÓTAR FYRIR ÍSLAND OG ALHEIM.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 6.4.2019 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 3418323

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband