23.5.2019 | 22:42
Sæstrengir í sjónmáli
hvað sem líður málþófi Miðflokksins á Alþingi.
Eftir næstu kosningar munu hlutföll þingstyrks og pólitískt landslag hafa breyzt nægilega til þess að sæstrengshugmyndum og framtíðarhorfum sameiginlegs orkumarkaðar hafi vaxið nægilegt ásmegin til grundvallarbreytinga á íslenskum orkumarkaði. Allir fyrirvarar sem menn eru að tala um núna sem góða og gildandi munu ekki koma til frekari álita á næsta áratug.
Orkuverð til almennings mun hækka verulega í takt við almennt orkuverð á markaðssvæðinu.En önnur lífskjör geta einnig batnað til mótvægis því. Hvernig verðhækkunum verður við komið hjá stórnotendum á Íslandi veit ég ekki svo gjörla en hef heyrt að á næsta áratug opnist samningslegar leiðir til slíks.
Eftir er að hanna sæstrengi af þeirri miklu gerð sem til verksins þarf. En líklega munu menn velja tveggja strengja útfærslu með viðkomu hjá frændum vorum í Færeyjum. Framhaldið þaðan er líklega erfiðara en leysist óháð Brexit sem öðru.
Líklega mun verða tekið fastar á flóttamannastraumnum en verið hefur á Íslandi og endursending hælisleitenda mun verða hafin í takt við breytingar á stjórnmálasviðinu. Þannig má hugsanlega ná einhverjum böndum á fólksfjölgun í álfunni sem er alger nauðsyn eigi að stýra umhverfismálum með einhverjum hætti.
Nýtt hagvaxtarskeið hefst á Íslandi á þessum tíma með nýjum vatnsaflsvirkjunum og grunnvirkjum. Hugsanlega koma einnig sjávarfallavirkjanir til sögunnar. Ég er ekki trúaður á mikinn framgang vindorkuvera vegna fáránlegs vægis mótmælenda af öllum gerðum og skiptir þá landfræðileg staðsetning mótmælandans afskaplega litlu máli miðað við hávaðastig það sem honum tekst að framkalla.
Allt þetta tel ég að verði að veruleika á næsta áratug. Á sama tíma hefur ESB gengið í gegn um vaxandi þrengingar svo að fylgi við inngöngu á Íslandi og upptöku evru mun hafa frekar minkað en ekki aukist. Ég tel því að Íslendingar muni enn hafa sína krónu í lok tímabilsins og standa utan ESB þó EES verði enn við einhverja heilsu.
Öll umræðan um 3. orkupakkann er því næsta brosleg í ljósi þess sem verða mun á næsta áratug þegar orkupakkar 4 og 5 hafa tekið gildi.
Hið pólitíska landslag á Íslandi mun breytast mikið þó ákvarðanataka af öllu tagi muni ekki hafa auðveldast verulega í landinu. Munar þar mestu að gömlu flokkarnir munu eiga meira undir högg að sækja en oft áður og getur kjölfestuleysi valdið óvæntum uppákomum víðar en varð um borð í Vasa-skipinu fyrir margt löngu.
En sæstrengir eru það sem koma skal og hugsanlega verða þeir einnig lagðir milli Grænlands og Íslands á þessu tímabili sem styrkir hinn sameiginlega orkumarkað enn frekar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Enginn stjórnmálaflokkur, sem á sæti á Alþingi, vill mynda ríkisstjórn með Miðfótarflokknum, ekki einu sinni Flokkur fólsins.
Þorsteinn Briem, 23.5.2019 kl. 22:47
Enginn stjórnmálaflokkur, sem á sæti á Alþingi, vill segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu, ekki einu sinni Miðfótarflokkurinn og Flokkur fólsins.
Og með aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu er landið de facto í Evrópusambandinu.
Þorsteinn Briem, 23.5.2019 kl. 22:51
Brímið ávallt málefnalegt á sinn hátt. Stragedían er einföld. Sæstrengur gengur af stóriðjunni dauðri og þar með fæst næg orka til útflutnings. Akranes, Austfirðir og fleiri í ruslflokk, en meðhlægendur og rassaaleikjur evræpustýrðrar raforkustefnu tryllast af kæti á feitum fyrirfram lofuðum styrkjum og sporslum sér til handa. Mörgu hverju í skattaskjólum. Góðu dagsverki skiluðu og fökk ðe pöblik! Bjarni Ben og Gulli utanríks sleikja feita pinna í ellinni á kostnað aumingjann í sama landi og þeir búa. Ekki víst að nágrannavarsln dugi mikið lengur hjá þeim aulum.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 24.5.2019 kl. 01:10
Færeyjar, Grænland og eftir Brexit Bretland standa utan við ESS og ESB. Væri um einhverja kvöð að ræða þá væri samt aldrei um neina kvöð á rafstreng til þeirra.
Orkupakki þrjú setur þeim sem eru tengdir á sameiginlega kerfið reglur en setur öðrum ekki neina kvöð að tengjast því. Sæstrengir, eða háspennulínur, gaslagnir eða hitaveitulagnir, verða því eftir sem áður ákvörðun sem hvert land tekur fyrir sig. Við munum hvorki þurfa að selja öðrum rafmagn né heitt vatn frekar en við viljum.
Orkuverð á markaðssvæðinu er frjálst þó hver framleiðandi geti aðeins haft eitt verð til heildsala, sama í hvaða landi hann er. Geti orkuveita Kaupmannahafnar keypt af okkur rafmagn þá verður það á sama verði og Orkuveita Reykjavíkur fær rafmagnið. Það getur verið á öðru verði en Kaupmannahöfn fær rafmagnið á frá Svíþjóð eða Þýskalandi. Það kallar ekki á neinar sjálfkrafa hækkanir eða lækkanir.
Vagn (IP-tala skráð) 24.5.2019 kl. 08:58
Vagn þú hefur trú á að við höfum eitthvað ákvörðunarvald. En við getum ekki ákveðið að sóttverja hrátt kjöt með frystingu eða geislun, þá má ekki neitt gera af sjálfsdáðum annað en EES ákveður. Af hverju gildir eitthvað annað í orkumálum?
Halldór Jónsson, 24.5.2019 kl. 12:57
Halldór, við getum auðveldlega ákveðið að sóttverja hrátt kjöt með frystingu eða geislun. Það er ekkert sem bannar okkur það. En við getum ekki mismunað framleiðendum sem allir uppfylla sömu skilyrði og staðla. Íslenskt kjöt fær enga sér meðferð og engar undanþágur frá þeim reglum sem við viljum setja. Sé kjöt sem uppfyllir sömu kröfur og við gerum til Íslenska kjötsins óhæft til manneldis þá er Íslenska kjötið það einnig. Í orkumálunum gildir svipað, við getum ekki veitt Íslendingum einhver sér verð og undanþágur. Og hvort sem það er rafmagn, fiskur eða kjöt þá er það okkar að ákveða hvort við stundum útflutning, orkupakkinn breytir engu í því. Ákvörðunarvaldið um hvað við setjum á sameginlega markaðinn er okkar og ákvörðun um verð er einnig okkar, en við getum bara ekki beitt ómálefnalegum mismununum og sérreglum fyrir íslendinga.
Vagn (IP-tala skráð) 24.5.2019 kl. 14:18
SÆSTRENGUR,ORKAN-OKKAR,bÆNDUR,GRÓÐURHÚS inni og utandyra og SJÁVARÚTVEGUR ERU AUÐÆFI OKKAR ÍSLENDINGA. ESB kemur HVERGI að NOKKRU GAGNI og fá HVERGI AÐ BORGA NEITT FYRIR ÍSLAND.
YFIRGEFUM ESB OG ALLT REGLUFLANIÐ OG ÁHÆTTUNA SEM FYLGIR ESB.
HÖLDUM ALLRI EIGIN-ORKU Á ÍSLANDI OG DREIFUM SJÁLFIR EFTIR ÓSKUM FYRIRTÆKJA OG ÞJÓÐA ERLENDIS.
VIÐ ÍSLENDINGAR LEGGJUM SÆSTRENGINN SJÁLFIR MEÐ "VATNSRÖRI" MEÐ KÖLDU EÐA HEITU VATNI, EÐA HVORUTVEGGJA, SEM GREIÐIR FYRIR ALLAN KOSTNAÐ. VIÐ ÞÖKKUM FYRIR "ÞREKIÐ OG ORKUNA" INNI Á ALÞINGI FRÁ ÖLLUM STJÓRNMÁLAFLOKKUM, SEM SINNA ORKUMÁLUNUM ÍSLENDINGA.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 24.5.2019 kl. 15:26
Varðandi sæstrengur til annara landa fyrir rafmagn frá Íslandi mun það vera áhugvert að tengja við Bretlandi fyrir þetta. Það væri bryn þörf fyrir kraftur þarna og tryggja góða inntektir hér.
Merry (IP-tala skráð) 24.5.2019 kl. 21:25
Donald J.TRUMP situr sem HEIÐURSGESTUR í JAPAN næstu 4 daga.
Hann er á leið til BRETLANDS fyrstu dagana í Júní. BRETARNIR eru á ÚTLEIÐ frá ESB og vandamálum Evrópu. Fleiri ESB lönd vilja fara úr VISTINNI frá ESB.
GAMAN og FRÓÐLEGT að SJÁ ÁHRIF LEIÐTOGANS Á ÍSLANDI. HEIMURINN DÁIR DUGNAÐARFORKINN HVAR SEM HANN SÝNIR SIG ERLENDIS.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 25.5.2019 kl. 17:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.