Leita í fréttum mbl.is

Til hvers þá er EES?

úr því að ESB efnir ekki sinn hluta. En við hinsvegar lepjum allt hundflatir sem það réttir okkur. Auk þess að hafa minnkað markaðinn um fimmtung með BREXIT.

Stjórn­völd hafa átt í viðræðum við Evr­ópu­sam­bandið frá því á ár­inu 2017 um að ís­lensk­ar sjáv­ar­af­urðir njóti fulls toll­frels­is inn á innri markað sam­bands­ins í gegn­um aðild Íslands að EES-samn­ingn­um en til þessa hafa þær viðræður hins veg­ar ekki borið ár­ang­ur.

Þessi staða varð Guðlaugi Þór Þórðar­syni ut­an­rík­is­ráðherra að um­tals­efni á fundi EES-ráðsins í Brus­sel á dög­un­um hvar full­trú­ar Íslands, Nor­egs, Liechten­stein og Evr­ópu­sam­bands­ins fögnuðu 25 ára af­mæli EES-samn­ings­ins sem tók gildi árið 1994.

Fram kom í frétta­til­kynn­ingu frá ut­an­rík­is­ráðuneyt­inu að Guðlaug­ur Þór hefði ít­rekað þá skoðun ís­lenskra stjórn­valda á fund­in­um að fullt til­efni væri til þess að Evr­ópu­sam­bandið bætti markaðsaðgang fyr­ir ís­lensk­ar sjáv­ar­af­urður með því að fella niður tolla.

Ráðherr­ann hefði enn­frem­ur bent á að á síðustu árum hefði orðið stefnu­breyt­ing í fríversl­un­ar­viðræðum Evr­ópu­sam­bands­ins hvað varðar sjáv­ar­af­urðir. Sem EES-ríki ætti Ísland ekki að þurfa að sæta hærri toll­um en ríki sem stæðu utan innri markaðar­ins.

Vísaði Guðlaug­ur Þór þar til þess að Evr­ópu­sam­bandið hef­ur á und­an­förn­um árum samið um víðtæka fríversl­un­ar­samn­inga til að mynda við Kan­ada og Jap­an þar sem gert er ráð fyr­ir 100% toll­frelsi fyr­ir sjáv­ar­af­urðir, en EES-samn­ing­ur­inn kveður ekki á um fullt toll­frelsi.

Ráðherr­ann gerði þessa stöðu einnig að um­tals­efni í ræðu á mál­stofu í Há­skól­an­um í Reykja­vík um EES-samn­ing­inn 6. fe­brú­ar á þessu ári þar sem hann sagði Evr­ópu­sam­bandið hafa þrá­ast við að veita Íslandi fullt toll­frelsi fyr­ir sjáv­ar­af­urðir í gegn­um samn­ing­inn.

„Það er einnig okk­ar mark­mið að koma á fullri fríversl­un með fisk en ESB hef­ur þrá­ast við að fella niður tolla á til­tekn­ar fiskaf­urðir,“ sagði Guðlaug­ur Þór í ræðu sinni, en sér­stök tolla­kjör inn á markað Evr­ópu­sam­bands­ins voru ein af for­send­un­um fyr­ir því að Ísland gerðist aðili að EES-samn­ingn­um fyr­ir um ald­ar­fjórðungi síðan."

Ísland kyssir vöndinn hjá ESB og Gulli með betlistaf í hendi í von um að ESB standi við sitt.Er EES nauðsynlegt af því bara að hann er bestur í heimi og non est disputandem í Sjálfstæðisflokknum? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 3418332

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband