Leita í fréttum mbl.is

Stjórnmálakaffi

Pírata var haldið með liðugt tugi viðstaddra. Morgunblaðinu finnst það tíðindi að Píratar sem eru fulltrúar gagnsæis og heiðarleika demdu svívirðingum yfir hvorn annan og gáfu hvor öðrum einkunnir sem er varla forboði öflugs stjórnmálastarfs. 

Sjálfur stofnandinn Birgitta Jónsdóttir, Alþingistölvusérfræðingur og vinur Assange er lýst óalandi og óferjandi og er kosin frá.

"

„Ég upp­lifi ákveðið mann­orðsmorð hér í kvöld og það er ekki fal­legt.“ Þetta sagði Birgitta Jóns­dótt­ir á fé­lags­fundi Pírata í gær­kvöldi eft­ir að Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þingmaður Pírata, hafði meðal ann­ar sagt um Birgittu að hún byggi til „ósætti frem­ur en sætti og stærði sig af því“. 

Á fund­in­um voru greidd at­kvæði um til­nefn­ing­ar til trúnaðarráðs Pírata. Birgitta var til­nefnd en hlaut ekki nógu mörg at­kvæði eins og mbl.is hef­ur greint frá. Hinir tveir sem voru til­nefnd­ir voru samþykkt­ir. Þetta voru þau Agnes Erna Ester­ar­dótt­ir og Hrann­ar Jóns­son.

Helgi Hrafn fór ófögr­um orðum um Birgittu í ræðu sinni þar sem hann benti á að hún ætti ekki er­indi sem full­trúi flokks­ins í trúnaðarráði. Hann hvatti aðra til að kjósa hana ekki af feng­inni reynslu af sam­starfi með henni. „Birgitta býr til ósætti frek­ar en sætti og er al­gjör­lega ófeim­in við það og stær­ir sig af því. Hún krefst þess að aðrir leiti álits hjá sér en leit­ar ekki álits annarra. Hún gref­ur und­an sam­herj­um sín­um ef hún sér af þeim ógn. Hún hót­ar þeim ef hún fær ekki það sem hún vill.“ Þetta sagði Helgi Hrafn meðal ann­ars í ræðu sinni. 

Eft­ir að Helgi Hrafn hafði út­listað ókosti Birgittu steig hún sjálf í pontu. Hún sagðist meðal ann­ars ekki ætla að sitja und­ir þessu og viður­kenndi að hún væri slæm en ekki svona. Hún þakkaði jafn­framt þeim sem höfðu kjark til að til­nefna sig til starfa fyr­ir flokk­inn.   

Skömmu síðar fékk Þórólf­ur Júlí­an Dags­son orðið. „Þetta er ógeðsleg­asti fund­ur sem ég hef nokk­urn tíma verið á,“ sagði Þórólf­ur og með þeim orðum lýk­ur broti af upp­töku fund­ar­ins sem hægt er að sjá hér fyr­ir neðan. 

Birgitta hef­ur ekki viljað tjá sig við fjöl­miðla eft­ir fund­inn. 

Upp­taka af fund­in­um birt­ist fyrst á Vilj­an­um.  "

Það er naumast að fundur í lýðræðislegu saumaklúbbsígildi getur orðið ógeðslegur?Maður hélt að að væri hægt að hittast huggulega í kaffi og hlusta á t.d. Þórhildi Sunnu tala um Ásmund Friðriksson eða forsætisnefnd Alþingis? En svona stjórnmálakaffi kemur óvönum utanaðkomandi á óvart.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband