Leita í fréttum mbl.is

Bréf frá Örnólfi Hall

barst mér með skarplegum athygasemdum arkitektsins um umferðarmálin við Hörpu.

"UMFERÐARKAOSIÐ & T- TENGING GEIRSGÖTU, KALKOFNSVEGAR og SÆBRAUTAR :
Vegagerðin sá um gatnahönnun þarna og hafði sveigju á Geirsgötu yfir til Sæbautar. 
Umferðarverkfræðingur þar á bæ sagði undirrituðum að Vegagerðin hefði ekki verið hrifin 
að þurfa að breyta Geirsgötu-sveigjunni yfir í T-tengingu að ósk ráðandi afla. 
-En auðvitað þrýsti Mammonsveldi Landsbankans á stækkun lóðar fyrir framan auðjöfrahótelið 
(sem er nú komið óralangt fram úr áætlun í tíma og kostnaði (sbr.Mbl/ses)).
-Vegna sérerinda fer undirritaður þarna um í taxa vikulega og er farinn að kynnast ástandinu. 
Aðspurðir taxabílstjórar fara ófögrunum orðum um umferðarteppuna á álagstímum.
Þeir segja hvað stangist á annars horn: van-og illa stillt umferðarljós, illa áttaðir ökumenn,
 strætisvagnar á sérmerktum leiðum og svo vegvilltir, hikandi og skelfdir túristar og aðrir 
vegfarendur. 
Nb: Svo ekki sé talað um umsögn taxafarþega á gráu byggingarbáknunum sem voma þarna yfir.

 

UMFERÐARSÉRFRÆÐINGUR GAGNRÝNIR ÚTFÆRSLU GATNAMÓTANNA :

Í fjölmiðli nýverið átaldi hann aðstandendur (borgin) um mistök í útfærslu gatnamótanna. - 
Sérfræðingar höfðu bent á að best væri að leggja Sæbraut og Geirsgötu neðanjarðarstokk (ma. sjá í Hörpusamkeppni) 
vegna gífurlegrar aukningar umferðar til vesturs og uppbyggingar þar. -Það má bæta því við að Seltirningar kvarta nú sáran um teppuna.

-Sá ágæti sérfræðingur segir svo að allar stokkalausnir séu dauðadæmdar með bílakjöllurum undir götunum.

SAMGÖNGUSTJÓRI BORGARINNAR SVARAR GAGNRÝNI ÁÐURNEFNDS:

Geirsgatan var ekki lögð í stokk og unnið er með hana á yfirborði segir sá ágæti forsvarandi. 

Getur ekki sagt til um hvort vænlegt hefði verið að setja hana í stokk á sínum tíma. - Allt verði gert til að laga málin. -Segir tæknilega alveg hægt að breyta bílakjallara í stokk sem er þvert á að sem áðurnefndur sérfræðingur sagði ??

Es: Það má geta þess að Páll Torfi Önundarson var með sveigða Geirsgötu í stokk með sinni grænu fallegu
lausn neðan Arnarhóls.

Es: Hvað verður um hina margrómuðu ´borgarlínu' þarna í vesturátt ?

Es: Hér kemur svo hin mjúka sveigjutenging Geirsgötu eins og Vegagerðin vildi helst hafa.- Landsbankabáknið var minna (mynd til vinstri) --
En svo (mynd til hægri) er T-tengingin sem skapar öll vandræðin -og Vegagerðin vildi helst ekki hafa. :( En Landsbankabáknið vildi meira pláss og auðvitað fékk ´Chef' -arkitekt Mammon að ráða !!
 
ÖH33
 
 
 
 
 
 
 
 

 

 

ÖH22


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband