Leita í fréttum mbl.is

Jöklahátíð

er haldin í dag. Sá fyrsti sem hverfur af þessari óværu Íslands á landinu er OKey-Jökull.

OKey, varð landið ekki bara byggilegra við þetta?.Ekki syrgi ég þessa snjóhrúgu frekar en Glámu eða skaflinn í Gunnlaugsskarði.

En hrúgan sem hét OK-Jökull var líklega ekki til við landnám þegar Vatnajökull hét Klofajökull og var í tveimur aðskildum hlutum vegna þess hlýskeiðs sem þá ríkti í þessu landi.

Þá voru framantaldir vísindamenn aðeins þanki Guðs og engin ráð voru þá tiltæk til  að skattleggja neinn til að standa fyrir nægilegri kólnun til að auka vöxt jökla sem nú teljast nauðsynlegir fyrir ferðamennskuna að minnsta kosti.

Oddur jöklafræðingur segir að Hofsjökull fari bráðum sömu leið og Okey-jökull.

Það ert mikið vel ef loftslag er að batna á þessu landi veðra og vindgangs. Landið hefur líka grænkað í seinni tíð og orðið byggilegra með hlýnuninni sem nú hefur staðið nú í nokkra áratugi.Uppúr 1960 man ég að hafís lá inn við Blönduós og tún grænkuðu ekki fyrir norðan.Þá voru þær Kata og Gréta ekki fæddar.

Hvað framhaldið verður vita engir aðrir en þeir pópúlisku vísindamenn sem nú yfirskyggja vitræna umræðu. En Katrín og kommarnir ætla að skattleggja fólkið svona til vonar og vara til að vinna gegn hnattrænni hlýnun af völdum aukins CO2 í andrúmsloftinu.

Sem eru að vísu fullyrðingar um hlýnun andrúmsloftsins af mannavöldum sem langt frá er samstaða um í vísindaheiminum að sé að eiga sér stað.

Nú er að hefjast sólsveifla nr. 25. Margt bendir til þess að hún geti líkst sólsveiflu 14 sem var mun kaldari.

sólsveifla25sósveifla 24

 

 

 

 

 

 

average-global-temperatureAllt þetta heimsendatal vísindamanna á borð við Gretu Thunberg, Katrínu Jakobsdóttur, Gunnars, umhverfisráðherra vors sem enginn kaus, og þeirra OKey-hátíðarmanna er með þeim hætti að ekki fylgir mikil sannfæringarkraftur fyrir venjulegt fólk fyrir ágæti trúboðsins.

 

Meðfylgjandi myndir sýna ágætlega hversu lítill maðurinn er og núið hans stutt í jarðsögunni.CO2 innihald í andrúmsloftinu hefur til dæmis ekki verið lægra í 800 milljón ár. Á þeim tíma gerðist jörðin græn og byggileg og hlýnunin um 1 gráðu á síðustu 200 árum hefur gert kleyft að standa undir fæðuframboði sem gerir jörðinni kleyft að fullnægja fæðuþörf fyrir marga milljarða fólks sem bæst hafa við til að rányrkja jörðina eins og nú stendur yfir.

Fólksfjölgun hjá þeim fátæku og menntunarlausu stefnir lífi á jörðinni til tortímingar á næstu öld ef ekkert verðu gert til að draga úr henni.

En að kaupa fólk til takmörkunar barneigna er það sem S.Þ þurfa að gera fyrir jörðina en ekki það koltvísýringsbull svokallaðra  vísindamanna sem við erum að moka fjármunum í núna. En þeir hafa sent frá sér ályktun um að breyta landi á stærð við Brasilíu úr akurlendi yfir í skóglendi til þess að minnka CO2 í andrúmsloftinu. Bullið er yfirgengilegt í ljósi mannfjölgunarinnar sem þarf mat. Og okkar Gunnar sem enginn kaus  ætlar að moka ofan í Flóaáveituna í sama tilgangi. 

Það er hátíð þegar Okey-jökull hverfur og Ísland verður byggilegra meðan Grænlandsjökull stækkar og þunginn þrýstir skriðjöklum í sjó fram sem hugsanlega fljóta til Blönduóss.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Já, það er bara frábært að losna við jöklana. Þá losnum við líka við fallvötnin og þurfum ekki að hafa frekari áhyggjur af þriðja orkupakkanum. Hver veit nema við losnum líka við sjávarútveginn, þegar fiskistofnarnir færa sig úr landhelginni vegna hlýnandi sjávar. Þá losnum við líka við bölvað kvótakerfið. Og að lokum mun flæði fólks frá suðlægum svæðum sem þurrkar og óáran gera óbyggileg losa okkur við alla íslenska sérvisku, sem sumir kalla þjóðmenningu. Farið hefur fé betra.

Eða, eins og meistari Altúnga sagði: "... þeir sem segja að allt sé í lagi eru hálfvitar; maður á að segja að allt sé í allrabesta lagi"

Þorsteinn Siglaugsson, 18.8.2019 kl. 13:05

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Í Mogga 1960 er lamentérað yfir þv´að OKey sé að hverfa.

"Myndin hér til hliðar sýnir vel hvernig komið er fyrir Okinu. Jökullinn hefur eyðst svo mjög að gígurinn er orðinn .iiiður nema í botninum og er hann nú fyrir utan fönnina. Á korti Þorvaldar Thoroddsen, sem gert var um 1890, er Okiö 35 ferkm. á stærð, skv. herforingjaráðskortinu frá 1910 er hann 15 ferkm. og skv. amerisku korti, sem gert var 1945 er jökullinn ekki nema 7 f erkm að f latarmáli.

Þess ber þó að geta að kort Þorvalðar Thoroddsen er ónákvæmt og ekki byggt á öruggum heimildum. $ Og enn minnkar Okið, eins »g myndin sýnir, sem tekin var úr lofti fyrir nokkrum dögum, er jöklarannsóknartneiin flugu yfir hálendið. Ný sigdæld Svo er hér önnur merkileg mynd, sem tekin var í sömu flugferð.

Hún sýnir hvað gerðtst uppi í Vatnajökli, norður if Grímsvötnum, þegar hlaup ið kom í Skaftá fyrstu dagana í sept. og brennisteinslyktin fannst víða á Norðurlandi. Eftir að hitinn þarna undir jöklinum hefur verið búinn að bræða talsvert vatnsmagn, hef nr það brotizt fram i Skaftá. Og þá hefur jökullinn yfir ilatVnum sigið og sprungið.

Myndin sýnir sigdæld þá srm þarna hefur myndast. Myndirnar tók Birgir Kjaran"

Þetta hefur allt verið að gerast síðan 1960 þegar ekki var búið að finna upp útblásturinn helur aðeins það að loftslag færi hlýnandi. Samt voru þarna mörg köld ár með hafís á Húnaflóa ár eftir ár og túnin gænkuði ekki á Norðurlandi. Vilja menn þetta ástand frekar en núverandi sprettu og búsææld?

100 fífl á OKey í dag fengu góða hreyfingu í það minnsta en komust ekkert hvað þekkingarauka á hitastigi jarðar varðar eða orsökum hita loftslagsins varðar.

Halldór Jónsson, 18.8.2019 kl. 19:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 3418332

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband