Leita í fréttum mbl.is

Vinstri hræsni

birtist virkilega tært í grein frænda míns Guðmundar Andra Thorssonar í Fréttablaðinu í dag:

"Mike Pence er öfgamaður sem kennir sig við kristna trú en boðar fábreytni, umburðarleysi, bókstafstrú og óttastjórnun. Í orðum sínum og verkum hefur hann beitt sér gegn réttindum kvenna og hinsegin fólks.

Þó að auðvitað þurfi að sýna embætti varaforseta Bandaríkjanna kurteisi hljóta gestgjafar Mike Pence að taka á móti honum beinir í baki.

Þess er vonandi að vænta að íslenskir ráðamenn minni Pence á það verðmætamat á manneskjum sem samfélag okkar grundvallast á: virðingu og umburðarlyndi, frelsi einstaklingsins og sjálfsákvörðunarrétt fólks yfir eigin líkama og lífi.

Vonandi munu íslensk stjórnvöld líka færa í tal við hann þá mannvonsku sem lýsir sér í að skilja börn frá fjölskyldum sínum, og geyma við óboðlegar aðstæður. Og loks hljótum við að vænta þess að útskýrt verði fyrir honum hvernig hamfarahlýnun ógnar lífi á Jörðinni.

Nú er árið 2019. Hafi Bandaríkjamenn einhvern tímann verið útvörður lýðræðis og mannréttinda í heiminum, sem svo sannarlega er umdeilanlegt, þá er það að minnsta kosti liðin tíð. Herlið hér á landi með Donald Trump sem æðsta yfirmann er ekki til þess fallið að vekja öryggiskennd.

Þarf aðild okkar að Nató og þátttaka okkar í alþjóðlegu samstarfi um varnir sjálf krafa að tákna hernaðarlega viðveru Bandaríkjamanna hér? Varnarsamningurinn frá 1951 kann að vera formlega enn í gildi en Bandaríkjamenn hættu einhliða að uppfylla hann árið 2006. Þeir fóru. Viljum við þá aftur?

Þó að Íslendingar eigi aðild að Nató – og við séum mörg sem teljum að þjóðin eigi að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi og gangast undir skuldbindingar sem því fylgja – þá er ekki þar með sagt að Bandaríkjamenn eigi að standa hér fyrir hernaðaruppbyggingu, til að styrkja stöðu sína í kapphlaupi við að græða sem mest á hamfarahlýnun Jarðar."

Hann sleppir því nefnilega alveg að Merkel Þýzkalandskeisari var algjör bandamaður Pence og Jóns Vals í fóstureyðingamálum.Hún er formaður í Kristilegum flokki.  Síðasta setningin er svo augljóslega staðlausir stafir að ég nenni ekki að ræða hana. Og sama gildir um innganginn sem fjallar um skepnuskap Pence.

Vinstri menn eins og Guðmundur frændi geta aldrei fjallað nem um þá hlið mála sem þeim hentar sjálfum.

Þannig birtist mönnum vinstri hræsnin daglega.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þú ferð inn á vef Alþingis og lest jómfrúarræðu Guðmundar Andra á þingi munt þú ábyggilega hugsa: Á þessi maður erindi á Alþingi?Svarið verður örugglega: Nei. 

Örn Johnson (IP-tala skráð) 22.8.2019 kl. 22:52

2 identicon

VINSTRI HRÆSNI: Guðmundur Andri Thorssonar fer ofurhátt gegn vara forseta USA MIKE PENSE, sem hann segir KRISTINN ÖFGAMANN, sem boðar FÁBREYTNI,UMBURÐARLEYSI,BÓKSTAFSTRÚ og ÓTTASTJÓRNUN. MIKE PENSE er GÓÐHJARTAÐUR KRISTINNAR TRÚAR og er á MÓTI FÓSTUR EYÐINGUM.

Það er hátt skotið fyrir frú Katrínu forsætisráðherra,sem ætlar frekar að flýja Land til að hitta samferðakonur sýnar frá ESB löndum, sem ÍSLAND er EKKI hluti af. Það er lítið um yfirskot í KRISTINNI trú á ÍSLANDI,sem má vissulega má ATHUGA?.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 23.8.2019 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband