12.9.2019 | 12:03
Schengen og EES
er viðfangsefni kollega Friðriks Danielssonar í Fréttó í dag.
Hann segir:
"Einn af draumum ESB er bandaríki Evrópu; afnám landamæra milli ESB-landa, frjálsar ferðir, engin vegabréf. Gerður var samningur um afnám vegabréfa, Schengensamningurinn, sem átti að vera einn af hornsteinum sameinaðrar Evrópu. 22 af 28 löndum ESB urðu með. Og Ísland ánetjaðist 1996 enda í EES.
Eyríkin nágrannar okkar sem vita að þau eru ekki með nein landamæri heldur sjóinn sjálfan sem landmörk, Færeyingar, Grænlendingar, Bretar og Írar, héldu sig fyrir utan en vakta sínar strendur og flugvelli. Um tíma virtist vera hægt að ráða við framkvæmd samningsins. En eftir því sem flóttamannaþrýstingurinn frá fátækum löndum hefur aukist hefur komið í ljós að Schengensamningurinn var mistök.
Schengen þýddi fyrir þróaðri löndin að þau urðu að taka á móti mönnum með aðra menningu og atvinnuþekkingu frá ESB-löndum í suðri. Ýmis vandamál hafa fylgt, bæði hefur víða reynst erfitt að aðlaga innflytjendurna að aðstæðum í móttökulandinu, kostnaður skattgreiðenda orðið mikill og óöld og óöryggi aukist sumstaðar. En framan af virtist ástandið viðráðanlegt.
Það var svo flóttamannasprengjan úr suðri 2015 sem að lokum hleypti stjórn á fólksinnflutningum til og milli Evrópulanda í uppnám. Grikkland, Ítalía og Spánn áttu samkvæmt Schengen að vera framvarðalönd í suðri og sjá um stjórn á fólksinnflutningi á landamörkum Evrópu að Miðjarðarhafi. Sömu lönd áttu einnig að skrá flóttamennina og meðhöndla umsóknir þeirra, samþykkja eða hafna landvist á Schengensvæðinu. Settar voru sk. Dublinreglur um meðferð flóttamanna. Þær reyndust svo gallaðar að þær urðu til þess að opna öll Schengenlönd fyrir flóttamannaflóðinu.
Þegar flóðið var orðið að þjóðflutningum 2015 varð óframkvæmanlegt fyrir framvarðarlöndin að framkvæma skráningu og mat á öllum. Einfaldast fyrir þau var að sleppa flóttamönnunum stjórnlaust áfram til Norður-Evrópu en nýjar Dublinreglur opnuðu á það. Þá lenti á löndum þar að taka við þeim.
Flóttamannaflóðið reyndist framvarðarlöndum í suðri ofviða eins og við mátti búast. Merkel, talsmaður valdamesta lands ESB og þess með verstu múgsamviskuna, lét boð út ganga að Þýskaland mundi ekki vísa neinum flóttamönnum frá.
Þar með tóku langar raðir, mest ungir karlar, að þræða sig frá Miðjarðarhafi upp eftir Evrópu. Flóðið var slíkt að löndin á vegi þess tóku eitt af öðru að setja upp landamæragirðingar: Ungverjaland, Búlgaría, Austurríki, Slóvenía. Meira að segja góðu ömmur alls heimsins, Svíar og Danir, tóku aftur upp landamæraeftirlit. Þar með var landamæraleysi Schengen fyrir róða.
ESB-sagði Makedóníu að setja upp landamæragirðingu ESB á landamærunum við Grikkland sem yrðu ytri landamæri Schengen. Þar með var ekki aðeins að Schengenlöndin hefðu gefist upp við að halda Schengen gangandi heldur einnig höfuðpaurarnir í Brussel. Og Grikkland í raun rekið úr Schengen.
Flóttamannaflóðið dreifðist um Evrópu þar með til Íslands. Stjórnvöld gátu ekki stjórnað fólksinnflutningnum, enginn veit hvað margir komu eða hvernig þeir eru. Eymd fólks er oft notuð af gróðabröllurum og smyglurum sem erfiðlega reynist að stemma stigu við. Frá sumum stöðum eru það aðallega menn með fé milli handa sem komast til Vesturlanda.
En það kemur oft í hlut skattgreiðenda að útvega flóttamönnunum skjól og lífsviðurværi. Margir af flóttamönnunum halda sig saman í hverfum og illa ræðst við að koma þeim á vestrænt menningarstig og aðlaga þá móttökulandinu. Schengen samningurinn og Dublinarreglufenið reyndist byggt á óraunsæjum draumórum og hrundi til grunna. Og það sem verra var, tók með sér hluta af friðsæld og menningu Evrópu í fallinu.
Schengensamningurinn stjórnar ekki fólksfjölgun í fátæku löndunum og ræður ekki við vaxandi þrýsting fólks þaðan á að komast til Vesturlanda."
Hælisleitendavandinn og hysteríið sem fjölmiðlar framleiða í útvöldum tilvikum með skrækjum um mannúð, hungurverkföll í kúgunarskyni, allt eru þetta vandamál sem EES samningurinn er að færa okkur.
EES samningurinn og Schengen-afleiðan er löngu orðið Íslandi til skaða og okkur er best að vinna að því að losna úr hvorutveggja.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 3419716
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Er einhver flokkur á Alþingi með það á stefnuskrá sinni að segja upp Schengensamningnum??
Sigurður I B Guðmundsson, 12.9.2019 kl. 14:14
Vistin með ESB,var allt "óvart",sem enginn kaus fyrir 300 þús. "dýrmæta" smáþjóð norður í Atlantshafi. HÖFNUM EES og SCHENGEN og vinnum áfram með NATO og AMERIKU gegnum KEFLAVÍKURFLUGVÖLL.
Við erum einstök smáþjóð í heilbryggðu Landi með Langlífi. Eigum sterkustu menn og konur,sem kynna má með framleiðslu BÆNDA og sauðfjárrækt, útiræktun og GRÓÐURHÚSUM í miklu magni. SJÁVARÚTVEGUR,veiðar og vinnsla bera af á HEIMSVÍSU. VERJUM SÉRSTÖÐU ÍSLANDS. MAREL og ORKAN-OKKAR eru djásnið?.
Notum FLUGIÐ til ÚTFLUTNINGS...
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 12.9.2019 kl. 14:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.