12.9.2019 | 13:04
Þorvaldur leiðréttir "staðreyndir"
frá OECD í Fréttó í dag því honum líka ekki niðurstöðurnar.
Hann hefur lengi verið áhugamaður um gengisfellingar eins og faðir hans sem tók þátt í mörgum slíkum. Nú skortir gengisfellingar til að lagfæra tölur OECD um lífskjör Íslendinga.En alþýðuvinir vilja ætiíð skammta almenningi sem naumast og draga fé til sjálfs sín í nafni samneyslunnar.
Prófessor doktor Þorvaldur segir m.a.:
"Flókalundi
Samtök atvinnulífsins birtu í fyrri viku furðufrétt sem hefst svo: Meðallaun á Íslandi voru hæst meðal OECD-ríkjanna árið 2018. Meðallaunin voru 66.500 Bandaríkjadollarar en næst komu Lúxemborg með tæplega 65.500 og síðan Sviss með rúmlega 64.000 dollara. Meðallaun á öðrum Norðurlöndum voru allmiklu lægri eða rúmlega 55.000 í Danmörku, 51.000 í Noregi og 44.000 í Svíþjóð og Finnlandi. Samtökin tilgreina Efnahags- og framfarastofnunina í París (OECD) sem heimild.
Þau virðast trúa því eins og Viðskiptaráð gerði 2008! að Íslendingar hafi nú aftur stungið Bandaríkin, Lúxemborg og Sviss af í efnahagslegu tilliti, að ekki sé talað um Norðurlönd. Samtökin virðast nú, eins og Viðskiptaráð 2008, telja Ísland standa þeim framar á flestum sviðum. Sem sannara reynist
Réttar upplýsingar (SIC! Hvaðan fengnar?) frá OECD birta aðra mynd af málinu. Skv. þeim var landsframleiðsla á mann á Íslandi 2018 ofan við Danmörku, Svíþjóð og Finnland, já, en auðvitað langt fyrir neðan Lúxemborg, Írland, Sviss, Noreg og Bandaríkin.
Staða Íslands er þó ofmetin í þessum samanburði OECD þar eð gengi krónunnar er of hátt eina ferðina enn og á því trúlega eftir að lækka með minnkandi útflutningstekjum og draga Ísland niður eftir listanum sem mælir framleiðsluna í dollurum. Ekkert nýtt í því.
Við bætist að landsframleiðsla á hverja vinnustund er skárri mælikvarði á lífskjör í samanburði við nálæg lönd þar eð þá er fyrirhöfnin á bak við framleiðsluna vinnan! tekin með í reikninginn.
Skv. tölum OECD er Ísland í miðjum hlíðum á þennan kvarða með 68 dollara á tímann á móti 74 dollurum í Bandaríkjunum og 77 í Danmörku 2018.
Einnig í þessum samanburði er staða Íslands þó ofmetin bæði vegna þess að gengi krónunnar er nú of hátt eins og ég var að segja auk þess sem nýtt og mun lægra mat á vinnutíma Íslendinga sem Hagstofa Íslands birti fyrir kjarasamningana í vor leið vekur ekki tiltrú.
Hagstofan lítur nú svo á að vinnuvikan á Íslandi 2018 hafi að jafnaði verið 31 stund miðað við 47 vikna vinnu á ári á móti 30 stunda vinnuviku í Danmörku og Noregi, 34 stundum í Svíþjóð og 35 í Finnlandi.
Þessar nýju tölur Hagstofunnar um Ísland sem OECD hefur tekið upp hráar stangast á við fyrri upplýsingar og einnig það sem augað sér eða þykist sjá á vettvangi. Við höfum séð stöðu Íslands ofmetna áður, síðast með miklum hvelli 2008. En Samtök atvinnulífsins virðast sitja föst við sinn keip eins og ekkert hafi í skorizt...."
Framhaldið er svo venjubundinn rógur um Bandaríkin sem ég nenni ekki að hafa eftir.
En ef manni líkar ekki eitthvað í tölfræðinni þá bara leiðréttir maður tölurnar eins og IPCC gerir til að færa sönnur á hamfarahlýnunina svo að Katrín geti skattlagt alþýðuna á Íslandi.Þorvaldur er ekki ónýtur í að leiðrétta tölur hvaðan sem þær koma.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:08 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 3419716
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Svo menn haldi ekki að ég sé með einelti á prófessor doktor Þorvald Gylfason er rétt að halda til haga eftirfarandi athugasemd sem birtist í 17.sept.í FréttÓ eftir Konráð Guðjónsson hagfr.Viðskiptaráðs og Ádísi Kristjánsdóttur hjá SA:
+Reglulega er fullyrt að á Íslandi ríki mikill ójöfnuður, að launahækkanir renni fyrst og fremst til „auðvaldsins“ og lífskjör séu því lakari en hagtölur segi til um. Raunveruleikinn er þó annar. Á Íslandi eru lífskjör góð, kaupmáttur launa hæstur meðal iðnríkja og Prófessor misskilur hagtölur Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands Ásdís Kristjánsdóttir forstöðumaður efnahagssviðs SA jöfnuður óvíða meiri. Þrátt fyrir það er of oft reynt að draga fram aðra og dekkri mynd. Nýverið skrifaði Þorvaldur Gylfason, hagfræðiprófessor, grein þess efnis að Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands „sætu föst við sinn keip“ að halda því fram að við Íslendingar værum meðal fremstu þjóða þegar kemur að lífskjörum. Það kann að vera skoðun prófessorsins á ofangreindum samtökum liti málf lutning hans en engu að síður vekur það undrun að prófessor við æðstu menntastofnun landsins skuli ítrekað í umræddri grein mistúlka hagtölur OECD og draga fram illa rökstuddar ályktanir og einfaldlega rangfærslur. Í fyrsta lagi dregur Þorvaldur upp þá mynd að samtökin séu viljandi að „blekkja“ almenning með því að birta OECD samanburð á meðallaunum kaupmáttarleiðrétt, þar sem Ísland er í efsta sæti. Ekki er alveg ljóst hver blekkingin er því það er einfaldlega staðreynd að kaupmáttur launa á árinu 2018 var sá hæsti á Íslandi meðal OECD-ríkja. Telur Þorvaldur að réttara sé að horfa til landsframleiðslu á mann, sem vissulega er einnig góður mælikvarði á lífskjör. Þá er einnig rétt sem haldið er fram að Ísland sé ekki efst meðal OECD-ríkja miðað við þann mælikvarða, heldur í 7. sæti. Þorvaldur virðist út frá þessu draga þá ályktun að það sé rangt að halda því fram að við stöndum framarlega í efnahagslegu tilliti. Það sem hins vegar Þorvaldur minnist ekki á, vísvitandi eða ekki, er launahlutfallið sjálft. Launahlutfall er mælikvarði á það hversu stór hluti af verðmætasköpun rennur til launþega. Staðreyndin er sú að launahlutfallið á Íslandi um 64% á árinu 2018 og er það hæst meðal annarra OECD-ríkja, næst á eftir kemur Danmörk með hlutfallið í rúmlega 60%. Með öðrum orðum rennur hvergi stærri hluti af verðmætasköpun efnahagslífsins til launþega en á Íslandi. Hátt launahlutfall fer því nokkuð langt með að skýra muninn á því af hverju kaupmáttur launa er hvergi meiri en á Íslandi en landsframleiðsla á mann „aðeins“ sú sjöunda hæsta í þessum OECD-samanburði. Við erum í fremstu röð á báða mælikvarða þegar allar breytur eru teknar inn í jöfnuna. Þorvaldur virðist einnig telja að framleiðni á Íslandi, hvort sem horft er á landsframleiðslu á mann eða vinnustund sé ofmetin út af háu gengi krónunnar í gögnum OECD og röngum vinnustundum. Þetta er ekki heldur rétt ályktun. Í tölum OECD kemur skýrt fram að gögnin eru kaupmáttarleiðrétt (PPP) sem þýðir að leiðrétt er fyrir gengi og verðlagi. Þá eru nýjar tölur Hagstofunnar um vinnustundir nær því sem þekkist í nágrannaríkjunum en engu að síður véfengir Þorvaldur þær án röksemda. Mikilvægt er að byggja ályktanir um þróun launa og lífskjara á sem bestum hagtölum og forðast eftir fremsta megni að draga fram innihaldslausar ályktanir. Þó enginn haldi því fram að Ísland standi fremst á öllum sviðum stendur Ísland framarlega á mörgum sviðum, sem er fagnaðarefni. Við getum verið stolt af þeim árangri sem hefur áunnist en eigum alltaf að stefna að því að gera enn betur, einkum þar sem við stöndum ekki framarlega. Efnahagsleg hagsæld byggir á því að hér vaxi og dafni blómleg fyrirtæki sem skapa aukin verðmæti sem landsmenn njóta góðs af í formi bættra lífskjara. Róandi að því mikilvæga markmiði sitjum við því sannarlega föst við okkar keip."
Halldór Jónsson, 17.9.2019 kl. 07:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.