Leita í fréttum mbl.is

Tvíhjól eđa fjórhjól?

eru tíđrćddir valkostir Ómars Ţ. Ragnarssonar til ađ komast hrađar yfir landiđ.

Allur hrađi er hćttulegur. Ef mađur fer hratt ţá er hćtta af skyndilegri hrađabreytingu.Skrokkurinn á manni ţolir ekki mikla skyndilega breytingu á hreyfiástandi, Hann er fljótandi  ađ miklu leyti og ţví verđur ađ vernda hann fyrir höggum međ öllum ráđum. Alveg eins og plastpoka fullum af vatni.

Ómar Ţ.Ragnarsson er ţjóđareign. Hann er búinn ađ skemmta okkur ţvílíkt í mannsaldur ađ hann er hluti af tilverunni. Hann er hinsvegar mikill ćrslabelgur og glanni fram úr hófi. Einhverjum gćti dottiđ í hug ađ hann vćri ofvirkur, Frjósemi andans er ţvílík og líkamlegir og andlegir hćfileikar eftir ţví.

Ţađ fer ţess vegna í taugarnar á mér ađ hann skuli fara svo ógćtilega í umferđinni sem raun er vitni. Ţađ er eins og hann sćkist eftir hćttum. Sem Vice-Bloggkóngur á mbl.is skrifar hann langhunda um tvíhjól af öllum gerđum.Heldur ţeim ađ trúgjörnum međ útmálun kosta ţeirra ţó ađ hann viđurkenni ţćr kárínur sem hann og fleiri hafa orđiđ fyrir af slíkri notkun.

Hér koma glefsur úr skrifum Ómars:

"Sigurjón M. Egilsson slasađist illa   á vélhjóli á torginu ţegar hann féll á gölluđu og flughálu slitlagi fyrir fimm árum, missti vinnuna og er 75 prósent öryrki síđan. ...

Og ţađ mun vera slatti af fólki, sem hefur slasast ţarna vegna ţessara óafsakanlegu ađstćđna. ...

 

...En ţađ er engin leiđ ađ sjá ţađ fyrir hver meiđslin verđa nákvćmlega, ţví ađ menn geta lemstrast og brotnađ hvar sem er á líkamanum í vélhjólaslysum. ....

...Í tilfelli Sigurjóns voru ţađ hvorki ökklar né höfuđ, sem sködduđust, heldur rif og öxl.... 

... Síđuhafa er kunnugt um dćmi ţess ađ vélhjólamađur, sem kom óviđbúinn inn á slíkt slitlag, lenti í svo alvarlegu slysi, ađ hann glímdi viđ afleiđingarnar í áratug.... 

Annar ökklinn brotnađi svo gersamlega í mél, ađ ţađ ţurfti margar og ítrekađar ađgerđir til ađ koma honum í svipađ horf. 

 

Litlu munađi í ţví tilfelli, og um vélhjól gildir einfaldlega annađ en bíl; ţađ er bannađ ađ detta. Punktur. 

Síđan má bćta ţví viđ ađ síđuhafi axlarbrotnađi í upphafi árs vegna ţess ađ annar mađur á rafreiđhjóli hjólađi skyndilega í veg fyrir hann á hjólastíg, var ađalástćđan ađ vísu sú ađ mađurinn var upptekinn viđ ađ horfa beint niđur fyrir sig til ađ lesa af mćli (!) og sá mig ţví ekki koma á móti sér,  en útmáđar merkingar á miđlínu vegna viđhaldsleysis, sem voru horfnar ţar sem viđ mćttust,  voru međvirkandi orsök. "

Ótal sögur kann Ómar Ţorfinnur af vélhjólaslysum og örkumlum bćđi sjálfs sín og annarra. Samt heldur hann áfram ađ skrifa um vélhjól og reiđhjól og uppákomu ţeirra vegna. Ađallega vegna ţess ađ ţađ er hćgt ađ fara kílómetra eitthvađ ódýrara heldur en á bíl.

Ég er gamall mótorhjólamađur úr Ţýskalandi ćsku minnar. Ég man vel hversu dásamlegt ţađ var ađ ţeysa um skógana í sumarhitunum hjálmlaus og á skyrtunni. Algert frelsi og mađur var sćlli en oftar síđar á ćvinni. 

En ég veit ţađ líka eftir ţennan tíma ađ ţađ er ekki spurning um hvort, heldur bara hvenćr.

Ég geng í hringi enn ţann dag í dag  i kring um falleg hjól sem ég sé á götunni í ţögulli tilbeiđslu. Svo segi ég viđ sjálfan mig:

Ţví miđur minn kćri,  ţú hefur ekki ţroska til ađ fá ţér svona grip. Ţú vilt lifa helst í einu stykki međan ţú getur og minnist síđustu klessunnar minnar ţar sem ég lá í götunni í Stuttgart og hélt ađ svo vćri ekki lengur. Ţá komst ég samt óbrotinn á  lappirnar eftir ađ vegfarendur drösluđu mér upp.

Ţađ er ekki spurning um hvort  heldur bara hvenćr.

Ég ţekki marga mótorhjólakappa sem eru maskađir frá toppi til táar. Sumir eru löngu dauđir. 

Öll tvíhjól eru lífshćttuleg og hver sem getur á ađ vera minnst á fjórum hjólum til ađ vernda sitt eigiđ líf eftir föngum.

Ég skil ţig ekki Ómar minn af hverju ţú heldur ekki ţig viđ eitthvađ sem hefur reynst ţér hćttuminna en ólukki hjólin. Flugvélarnar, rallbílarnir fjallaklifur, ferđalög. Og alltaf ófullur!

Ţú ert okkur öllum dýrmćtur vegna ţess hvernig ţú ert og hefur veriđ.  Ekki gera ţér leik ađ ţví ađ svipta okkur hin öllu ţessu á andskotans fíflaríi á tvíhjólum ţegar ţú getur vel veriđ á fjórhjólum  eđa flugvél.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 3418430

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband