Leita í fréttum mbl.is

Píratasiðferðið

er fyrirsögn á athyglisverðri grein Sirrýar Hallgrímsdóttur í Fréttablaðinu í dag.

Hún segir:

"Flestir telja sig hafa góð prinsipp en þeir eru kannski færri sem standa við þau þegar á reynir. Og það er einmitt þá sem prinsippin skipta máli, hverju við erum tilbúin að fórna til vegna þeirra.

Á þetta reyndi á Alþingi nú í vikunni. Píratarnir hafa farið fremstir í f lokki þeirra sem telja Alþingi siðlaust og vonlaust. Þeir voru því fullir vandlætingar yfir því að tiltekinn Miðflokksmaður, sem hafði orðið sér til skammar á Klaustri og fengið ávítur frá siðanefnd Alþingis, yrði formaður í nefnd.

En þeir ákváðu að greiða ekki atkvæði gegn honum og hafa borið fram óvenju hreinskipta skýringu á þeirri ákvörðun.

Ástæðan fyrir því að þau láta Bergþór yfir sig ganga segja þau vera að meirihlutinn á þinginu hafi hótað því að ef stjórnarandstaðan leysti ekki sjálf úr sínum málum myndi hún ekki fá formennsku í tveimur öðrum nefndum.

Það hefði þýtt að Þórhildur Sunna, sem fyrst íslenskra þingmanna var ávítuð af siðanefnd, fengi ekki nefndarformennsku.

Það var því úr vöndu að ráða fyrir Píratana. Annars vegar prinsipp um að vondir menn eins og Klaustursmenn ættu ekki að stýra nefndum Alþingis og hins vegar valdastaða í þinginu.

Niðurstaðan liggur nú fyrir. Í stað þess að standa á prinsippinu og neita að bera ábyrgð á nefndarformennsku Bergþórs og gefa þar með eftir nefndarformennskur þá völdu Píratarnir stólana og stöðutáknin.

Auðvitað er það síðan sérstakt umhugsunarefni að Píratar telji eðlilegt að Þórhildur Sunna sé heppileg til að stýra þingnefnd.

En þá verða menn að muna að Píratasiðferðið nær ekki til Píratanna sjálfra, bara allra annarra."

Er þetta eitthvað sérstakt við Pírataflokkinn? Er þetta nokkuð annað en sönnun þess að Píratar eru ekki hótinu betri eða flekklausari en aðrir stjórnmálaskúmar sem eru oft boðnir og  búnir til að að selja ömmu sína fyrir eigin hag og vegtyllur.

Er Þórhildur Sunna eitthvað betri eða heilagri en hinir?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Píratar bókuðu mótmæli en greiddu ekki atkvæði, enda áheyrnafulltrúar og ekki með atkvæðisrétt. Það að að Sirrý Hallgrímsdóttir fordæmi Pírata fyrir að greiða ekki atkvæði gegn formensku Bergþórs í nefnd þar sem Píratar hafa ekki atkvæðisrétt segir allt sem segja þarf um siðferði Sirrýar. Og að þú takir málflutning hennar upp án þess að kynna þér sannleiksgildið segir margt um þig.

Vagn (IP-tala skráð) 21.9.2019 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 67
  • Frá upphafi: 3418299

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband