Leita í fréttum mbl.is

8 Gigaton

af kolum brenna í  kolakyntum raforkuverum heimsins á ári. Hvert tonn myndar 2.86 tonn af CO2 sem fer út í andrúmsloftið.Nærri 23 Gigaton af þeim 37 sem heimslosunin er sögð af mannavöldum.Náttúrlega uppstreymið af CO2 er áreiðanlega ekki minna en sú tala.

Íslendingar blása út 0.007 Gigatonnum af þessu byggingarefni lífsins á jörðinni sem CO2 er og hefur ekki verið lægra hlutfall af því í andrúmsloftinu á 600 milljón ára tímabili.Bara upp úr Kötlu stíga dag hvern 20 þúsund tonn af CO2 eða jafnmikið á ári og allir Íslendingar losa á ári hverju í sinni lífsbaráttu.

Er ekki Katrín Jakobsdóttir stórkostleg að leggja á okkur kolefnisskatta í því skyni að berjast við hamfarahlýnun jarðarinnar? 

Litla Ísland gengur fram fyrir skjöldu í baráttu hennar og trúarvísindanna með Grétu Thunberg gegn heimshlýnuninni. Umhverfisráðherrann okkar sem enginn kaus vill moka ofan í Flóaáveituna og aðra skurði til að styðja þessa baráttu.

Sagði ekki Bruno á bálinu: Oh, Sancta Simplicita.

Flytur ekki Steingrímur Jóhann bara hundraðmilljón kíló af kolum til Húsavíkur þar sem þeim er brennt án hreinsibúnaðar?

Maður verður vitlaus af öllum þessum núllum. En eru 8 Gt.ekki   8.000.000.000.000 kg af kolum ekki klumpur sem er í það minnsta kílómetri á kant eða slagar upp í Esjuna?

Hvað eigum við að borga fyrir 8 Gigatonn af kolum sem aðrir en við brenna alla daga?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í hinu mikla samhengi skiptir mengun okkar engu. Það er ekki okkar að vera fyrirmyndir. Rétt eins og að í hinu mikla samhengi skiptir engu máli þó við hættum að dæla peningum í gagnslausa gamlingja, bagga þjóðfélagsins. Við erum svo fá að við skiptum engu máli og ættum því hvergi að reyna að skara framúr. Heimurinn og gamlingjarnir koma okkur sem vinnum fyrir öllu okkar ekkert við og eru ekki okkar ábyrgð. Ríkar stórþjóðir geta staðið í framfærslu gamlingjanna og björgun heimsins, ekki við.

Vagn (IP-tala skráð) 27.9.2019 kl. 00:45

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Hann er ekki með öllum mjalla þessi AlGjör.

Helga Kristjánsdóttir, 27.9.2019 kl. 00:48

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Við verðum flest gamlingjar á einhverjum tímapunkti, mundu það Vagn.

Gunnar Heiðarsson, 27.9.2019 kl. 07:58

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll Gunnar Heiðarsson, of sjaldan heyrir maður í þér. Hvort eru venjulegir gamlingjar eða atvinnulausir dópistar verri fyrir þjóðfélög almennt? Og hini síðarnefndu verða svo líka gamlir og þá vilja þeir láta borga fyrir sig.En það eru ýmsir gamlingjar til sem eru nokkuð sjálfbjarga af því að þeir hafa haft fyrirhyggju. Og svo vilja margir þeirra vinna líka. 

Halldór Jónsson, 27.9.2019 kl. 09:58

5 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Heill og sæll Halldór.

Þar vandast nú málið. Þó gamlingjar kjósi að vinna áfram er slíkt einungis á færi örfárra. Hinir verða að býta í það súra epli að flestir atvinnurekendur hafa afskrifað þá. Þegar fólk er komið á sextugs aldur verður meiri áskorun hjá því að halda sinni vinnu, þar sem nánast útilokað er að finna atvinnurekanda sem tilbúinn er að leifa því að spreyta sig.

Og vissulega eru til gamlingjar sem hafa þá forsjá að geta séð fyrir sér sjálfir, eftir að vinnuævinni lýkur. En það er líka til gamalt fólk, sem hefur góða forsjá en ekki tök til að byggja undir sig til elliáranna. Gleymum ekki því fólki.

Mest er þó um vert að muna að vegna gamla fólksins erum við sem þjóð á þeim stað sem við nú erum, þrátt fyrir mikinn vilja sumra stjórnmálamanna til að rústa þeim lífsgæðum.

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 27.9.2019 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 64
  • Frá upphafi: 3418158

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband