Leita í fréttum mbl.is

Jón Gunnarsson

ritari Sjálfstæðisflokksins var á fundi með flokksmönnum í Kópavogi nú rétt áðan.

Hann hvatti men til að lesa stjórnmálaályktun Flokkráðsfundar flokksins þar sem fram kæmi hvað áunnist hefði fyrir aðild flokksins að ríkisstjórnum síðan 2013.

Nú væri bankakerfið skroppið niður í brotabrot af fyrri stöðu en staða Seðlabankans væri gerbreytt. Fyrir hrun var gjaldeyrisvarasjóðurinn kannski einhverjir tugir milljarða og talað var um þá að að taka hundraðmilljarðs lán til að styrkja hann. Nú væri forðinn 850 milljarðar og skuldir ríkisins hefðu lækkað um 35 milljarða. Skattar hefðu lækkað stórlega og tryggingagjaldið væri 18 milljörðum lægra núna en það sem var.

Það væri of lítið talað um þennan árangur sem skilaði sér beint í kaupmáttaraukningu fólksins.

Jón minnti fundarmenn á að þingmenn flokksins væru aðeins 16 af 63 og við værum í ríkisstjórnarsamstarfi við 2 aðra flokka.Okkur væru því takmörk sett.

Þrátt fyrir það hefði okkur tekist að fá í gegn ýmislegt af okkar stefnumálum, hamlað gegn skattahækkunum sem hefðu annars orðið og fleira í þeim dúr.

Jón minnti á að Bjarni Benediktsson hefði ítrekað reynt að fá menn til að  leggja Bankasýslu Ríkisins niður en aðrir flokkar hefðu hindrað það. Afleiðingin væri sú að útþensla eins og bygging nýrra höfuðstöðva Landsbankans væri stjórnlaus vegna armslengdar bankans við framkvæmdavaldið sem Bankasýslan orsakaði.

Jón sagði að nú væri loks kominn flötur á að stöðva fjandskap Borgarstjórnar Reykjavíkur gegn einkabílnum og að bygging  mislægra gatnamóta við Bústaðaveg væru í augsýn.En meira þyrfti  auðvitað til.

Jón lagði áherslu á þýðingu þess að flokksmenn sneru bökum saman við úrlausn mála. Orkupakkinn hefði reynst flokknum erfiður en stefna flokksins væri sú að ganga ekki í ESB  né afsala yfirráðum yfir orkuauðlindum landsins.

Hann sagði að Þórdís Kolbrún  væri búin að undirbúa orkustefnu fyrir Ísland sem skort hefði. Sjálfur teldi hann tímabært að ráðast í Hvammsvirkjun í Þjórsá sem væri tilbúin til  útboðs.

Fjörugar umræður urðu á fundinum sem var fjölsóttur að venju. Jón Gunnarsson flutti enda sitt mál af mikilli festu og þekkingu við góðar undirtektir viðstaddra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

JÓN GUNNARSSON BERST FYRIR ÍSLAND eins og ÁSMUNDUR FRIÐRIKSSON Á SUÐRUNESJUM, TVEIR "SANNIR" ÚR SJÁLFSTÆÐISFLOKKNUM.

Þjóðvegirnir hafa engin takmörk frá fjöru til fjalla. Þeir eru víðáttu laggðir fyrir OKKUR ÍSLENDINGA. Erlendir ferðamenn verða að hafa bílpróf til að aka á vegunum OKKAR.

Eyðum ekki miljörðum í nýja vegi fyrir "FERÐAMENN" og tökum EKKI VEGA-T O L L A eða skatt á STÓR REYKJAVÍKUR SVÆÐINU.

TÖKUM gjald í öllum jarðgöngum, sem skapa ÖRYGGI, stytta leiðirnar og SPARA eldsneyti/BENSIN.

INNHEIMTUM kr.5.000 af hverjum erlendum ferðamanni, sem hefur náð 12 ára aldri, fyrir það ÖRYGGI, sem þeir hafa á ÍSLANDI. ÞETTA ER ÓDÝRT SANNGJARNT GJALD AF FERÐAMÖNNUM.

MUNDU Jón Gunnarsson ágætur: ENGA TOLLA Á VEGAKERFIÐ OG ÞAÐ SÍST Í REYKJAVÍK. SLÁTRIÐ BORGARLÍNUNNI Í "BRANDARA-BORGINNI"OG KOMIÐ UPP SORPSTÖÐ EINS OG Á AMAGER Í DANMÖRKU, SEM AUKÞESS GEFUR OKKUR EXTRA RAFORKU. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 12.10.2019 kl. 17:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband