Leita í fréttum mbl.is

Hversvegna getur Sjálfstæðisflokkurinn?

ekki komið fréttum af árangri sínum í stjórnarstörfum síðastliðin ár til skila?

Hversvegna stóreykur Samfylkingin fylgi sitt á sama tíma án þess að hafa nokkurs staðar að komið?

Er ekki eitthvað stórkostlegt að hjá Sjálfstæðisflokknum?

Forystan, þingliðið, allt saman verklaust í útbreiðslumálum  og vesælt? Hangir þarna eins og í einhverri ferð án fyrirheits.

Hrífur ekki fólk með sér? Talar þetta fólk ekki af sannfæringu fyrir flokkinn og þátt hans í daglegu lífi?

Eyjólfur Árni Rafnsson og Halldór Benjamín Þorbergsson skrifa í Morgunblaðið um þann efnahagslega árangur sem Íslendingar hafa náð á síðustu árum þegar Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í stjórn en Samfylkingin hvergi nálægt komið. Þessir menn eru ekki að skrifa fyrir Sjálfstæðisflokkinn heldur aðeins að skýra frá staðreyndum.

Þeir skrifa:

" Í dag minnast Samtök atvinnulífsins að 20 ár eru liðin frá stofnun þeirra með samruna Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambandsins.

Með stofnun samtakanna var brugðist við breytingum og viðhorfum sem kölluðu á endurmat á starfsháttum og skipulagi samtaka atvinnurekenda. Verkefnið var að atvinnulífið öðlaðist öflugan málsvara sem talaði einum rómi varðandi mikilvægustu hagsmunamál þess, ekki aðeins kjaramálin heldur ekki síður skattamál, reglusetningu og önnur mikilvæg málefni varðandi starfsumhverfið.

Alþjóðavæðing og áhersla á markaðslausnir teygðu anga sína hingað til lands af fullum krafti eftir aðild Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið árið 1993.

Breyttar samkeppnisaðstæður knúðu sífellt á aukna hagræðingu í rekstri fyrirtækja. Atvinnulífið þurfti samtímis að aðlagast hraðfara tækniþróun og síauknum eftirlits- og gæðakröfum stjórnvalda innanlands og í milliríkjaviðskiptum.

Hagsmunasamtök atvinnurekenda hlutu að semja sig að þessum nýja veruleika. Þegar litið er til baka á síðustu tvo áratugi kemur í ljós mynd af dæmalausu framfara- og velmegunarskeiði.

Þrátt fyrir bankahrun og efnahagskreppu á miðju tímabilinu hafa helstu mælikvarðar á efnahagslegan árangur þróast á mun betri veg en hjá nágrannaþjóðunum.

Síðastliðin 20 ár hefur hagvöxtur á Íslandi verið 3,3% á ári að meðaltali samanborið við 2,0% í OECDríkjunum og 1,4-2,4% á öðrum löndum á Norðurlöndunum.

Verðmætasköpun á íbúa 2018 í bandaríkjadollurum var fjórðungi meiri á Íslandi en að meðaltali í OECD-ríkjunum og hærri en í Danmörku, Finnandi og Svíþjóð. Ísland var í fimmta sæti meðal OECD-ríkja.

Kaupmáttur launa óx um 55% og kaupmáttur lægstu launa um 76% frá 1999-2019.

Slík kaupmáttaraukning er fáheyrð og margfalt meiri en meðal annarra OECD-ríkja.

Verðbólga hefur verið við markmið Seðlabankans í fimm ár og stýrivextir hans eru í sögulegu lágmarki.

Vinnutími styttist að meðaltali um fjórar stundir á viku frá 1999-2019 samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Það gerðist án afskipta löggjafans eða kjarasamninga.

Jöfnuður er meiri á Íslandi og fátækt minni en á öðrum löndum á Norðurlöndum samkvæmt mælikvörðum sem OECD birtir.

Þrálátur viðskiptahalli áratugum saman er að baki og mikill viðskiptaafgangur hefur verið í viðskiptum við útlönd síðustu ár.

Ísland er ekki lengur skuldsett heldur á nettóeignir í útlöndum. Lífeyriskerfið er sjálfbært og Ísland betur í stakk búið fyrir hækkandi meðalaldur en aðrar þjóðir.

Staða þjóðarbúsins og lífskjör almennings eru með fádæmum góð. Verkefnin framundan markast af því að viðhalda þeirri eftirsóknarverðu stöðu og þar skiptir samkeppnishæfni atvinnulífsins öllu máli.

Það þarf að lækka skatta, einfalda reglur og taka upp skilvirkara vinnumarkaðslíkan þannig að það verði eftirsóknarvert og arðbært að reka fyrirtæki á Íslandi, þrátt fyrir háan launakostnað."(leturbreytingar eru bloggarans)

Af hverju getur Sjálfstæðisflokkurinn ekki upplýst almenning um þátt sinn í þessum árangri?

Af hverju vex fylgi Samfylkingarinnar á þessum tíma en Sjálfstæðisflokkurinn fer bara niður í skoðanakönnunum?

Hversvegna getur Sjálfstæðisflokkurinn ekki náð til fólksins?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Við hverju býstu, Halldór minn, þegar formaður flokksins svíkur sinn eigin landsfund og þjóðina alla ítrekað í stærstu hagsmunamálum eins og um Icesave og þriðja orkupakkann og beitir flokksaga til að teyma samþingmenn sína með sér nauðuga viljuga út í sömu ófæruna? Niðurstaðan: Flokkurinn, sem þú mærir sem mest, er að festast í minna en 20% fylgi!

Jón Valur Jensson, 17.10.2019 kl. 18:10

2 identicon

SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN VAR STOFNAÐUR FYRIR ÍSLAND OG LÝÐVELDIÐ.

VIÐ ÁTTUM FULLVELDIÐ FRÁ 1918. HANS AARBOE CLAUSEN LANGAFI MINN SAT VIÐ HÆGRI HLIÐ JÓNS SIGURÐSSONAR FORSETA Í KAUPMANNA-HÖFN VIÐ UNDIRBÚNING FULLVELDISINS ÁSAMT FLEIRUM ÍSLENDINGA.

ÞETTA LAS ÉG Í SMÁSÖGUM ÓSKARS CLAUSEN FRÆNDA MÍNS, EN HANN VAR BRÓÐIR ÖMMU MINNAR RAGNHEIÐAR CLAUSEN, SEM VAR DÓTTIR HOLGER P.CLAUSEN STÓRKAUPMANNS, F.01.08.1831 Í ÓLAFSVÍK. D.31.05.1901. HANN VAR ÞINGMAÐUR SNÆFELLINGA 1880-1885. 

HOLGER P.CLAUSEN ÁTTI FYRRA LÍF OG EIGNAÐIST SÍNA FYRSTU EIGINKONU BARBÖRU COOK CLAUSEN, ER HANN LAUK VERSLUNARSKÓLA Í LIVERPOL, EN ÞAU EIGNUÐUST 4 MANNVÆNLEG BÖRN (2 DÆTUR OG 2 STRÁKA)OG FLUTTU TIL MELBORN Í ÁSTRALÍU.

HOLGER ER KALLAÐUR AFTUR TIL ÍSLANDS TIL AÐ SINNA VERSLUNUM HANS AARBOE FÖÐUR SÍNS. HANN SNÝR AFTUR HEIM TIL ÍSLANDS, "SORGMÆDDUR" OG GIFTIST GLÆSILEGRI DÓTTUR SÉRA ÞORKELLS EYJÓLFSSONAR, GUÐRÚNU ÞORKELSDÓTTUR FRÁ STAÐARSTAÐ, RÉTT VIÐ BÚÐIR Á SNÆFELLSNESI. VIÐ ÞEKKJUM ÖLL "GLÆSILEGU" CLAUSENANA OG ÍÞRÓTTAHETJURNAR. ÞAU ÁTTU MINNST 10 BÖRN GUÐRÚN OG HOLGER P.CLAUSEN.

KÆRI HALLDÓR. ÉG FÓR AÐ MÁLA Í ELLINNI OG DÓTTIR MÍN GAF VINKONU SINNI Á HÓTEL HÚNA ÞETTA MÁLVERK FRÁ VÍK Í MÝRDAL. AÐ ÁRI LIÐNU STOPPUÐU HJÓN Á HOTEL HÚNA FRÁ ÁSTRALÍU. ÞAU SÖGÐUST EKKI ÆTLA AÐ YFIRGEFA ÍSLAND NEMA AÐ FÁ AÐ HITTA "LISTAMANNINN", EN ÉG HEF ALDREI LÆRT AÐ OLÍUMÁLA.      

ÞETTA ÆVINTÝRI ENDAR UM LANGAFA HOLGER P.CLAUSEN, AÐ HANN LOFAR AÐ FINNA FÓLKIÐ MITT, CLAUSENANA, Í ÁSTRALÍU.

GEGNUM LÍFIÐ Í JÓLABOÐUNUM OG HEIMSÓKNUM FÉKK MAÐUR "EKKERT" AÐ VITA UM FYRRA LÍF LANGAFA OG ÁSTRALÍU OG BÖRNIN HANS. SÍÐAN KOMU SVÖRIN OG LÍKA FRÁ ÞVÍ OPINBERA.

ÉG HLÓ OG TÁRAÐIST VIÐ SVÖRIN OG LÍF ÞESSARA CLAUSENANA SEM FÆDDUST Í ÁSTRALÍU OG ÉG VISSI ALDREI UM.

HEFUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN YFIRGEFIÐ KJÓSENDUR SÍNA?. ÞETTA MÁ EKKI BREYTAST Í HAGSMUNAHÓP EÐA FERÐAHÓP.

ÉG TAPAÐI MÉR KÆRI HALLDÓR ÞEGAR ÉG DATT INNÁ ÞESSAR HUGSANIR, SEM ENGINN HEFUR GAMAN AÐ. ÞAÐ MÁ SLEPPA ÞESSUM LÍNUM.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 17.10.2019 kl. 23:54

3 identicon

Hans Aareboe CLAUSEN langa langaafi minn fæddist á ÍSLANDI og Holger P. CLAUSEN langaafi fæddist líka á ÍSLANDI.

Þeir gáfu hesta til Kóngsins í DANMÖRKU og seldu HÁKARLALÝSI til 30 ára til að lýsa upp torg og stræti við konungshöllina og nærliggjandi götur.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 18.10.2019 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3418229

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband