7.11.2019 | 09:50
Endurhlýnun, ekki hamfarahlýnun
segir Vilhjálmur Eyþórsson í merkri grein í Fréttablaðinu í dag.
Auðvitað er ólíklegt að vísindafólk á borð við Katrínu Jakobsdóttur eða Grétu Thunberg leiði hugann að slíkum upplýsingum og þarna koma fram, þá gæti verið að einhverjum af þeim 96.000(sic!) sem þeir segja að nenni að lesa Fréttablaðið, skjótist yfir þessa litlu grein.
Vilhjálmur segir:
"Það er skrýtið, að það þurfi mann eins og mig, mann utan úr bæ til að benda á hlut sem hefur verið fullsannaður og óumdeildur í meira en hundrað ár, nefnilega, að jörðin hefur verið að kólna og þorna í um átta þúsund ár. Raunar var lægsta punktinum í þessari kólnun náð um aldamótin 1900, þegar jöklar voru þeir mestu frá ísöld (jökulskeiði) en síðan hefur dálítil uppsveifla verið, um 0,8 gráður frá 1880.
Þetta ættu allir, sem titla sig vísindamenn og gefa yfirlýsingar um loftslagsmál að vita. Viti þeir þetta ekki eru þeir einfaldlega ekki marktækir. Og hvar í ósköpunum er þetta litla orð aftur? Af hverju tala allir, ekki síst þeir sem titla sig vísindamenn um hlýnun þegar rétt er að segja endurhlýnun? Málið er alls ekki umdeilt. En af hverju talar enginn lengur um það?
Það er ekki eins og það séu nein ný tíðindi að loftslag á jörðinni hefur verið að kólna og þorna í um 7-8 þúsund ár. Það var nefnilega fyrir langalöngu, um aldamótin 1900, sem Norðmaðurinn Axel Blyth og Svíinn Rutger Sernander gerðu grein fyrir rannsóknum sínum á gróðri í mýrum Skandinavíu með tilliti til loftslags fyrri alda og árþúsunda. Nýrri rannsóknir, m.a. á borkjörnum í Grænlandsjökli og Suðurskautslandinu, hafa síðan fyllt út í myndina en í raun litlu bætt við niðurstöður Blyth-Sernanders.
Má t.d. benda á ágæta bók Helga Björnssonar jöklafræðings, en þar kemur m.a. fram, að Vatnajökull fór fyrst að myndast um sama leyti og Forn-Egyptar reistu pýramída sína, þ.e. fyrir um 4.500 árum.
Það var fyrir rúmlega tíu þúsund árum, að jökulskildirnir miklu bráðnuðu og yfirborð sjávar hækkaði um marga tugi metra. Þetta flokkast undir mannkynssögu, ekki jarðsögu, eins og flestir halda, árþúsundir, ekki ármilljónir.
Loftslag á jörðinni hefur nefnilega verið að kólna og þorna síðan fyrrnefnd hamfarahlýnun náði hámarki fyrr 7-8 þúsund árum, en það tímabil nefndu Blyth og Sernander atlantíska skeið bórealska tímans sem einnig er nefnt holocen-hámarkið.
Þessi kólnun og þornun verður í sveiflum og rykkjum, en þrátt fyrir allar sveiflur og sveif lur innan í öðrum sveiflum kólnar og þornar jörðin hægt og sígandi og stefnir óhjákvæmilega í nýtt jökulskeið (ísöld), en þær eru þegar orðnar um 20 á ísöldinni miklu eða kvartertímanum, sem staðið hefur í 2,5-3 milljónir ára.
Ekkert bendir til annars en að okkar hlýskeiði muni ljúka eins og öllum hinum og það er nú þegar orðið sæmilega langt. Því væri vitlegra að búa sig undir hnattkólnun, ekki hnatthlýnun.
Með hækkandi hitastigi eykst rakadrægni loftsins mikið við tiltölulega litla hækkun. Ef loftslag skyldi hlýna mundi það því þýða stóraukna úrkomu, svipað og var fyrir 7-8 þúsund árum þegar Ísland var jöklalaust og Sahara gróin eins og aðrar eyðimerkur.
Hlýnun þýðir því stóraukið vatn, ekki síst á þurrlendum svæðum, öfugt við það sem fáfróðir kjánar ímynda sér. Nýlegar rannsóknir á NorðurGrænlandi og Svalbarða sýna, að á atlantíska skeiðinu uxu þar jurtir sem þurfa um sjö stiga hærri meðalhita en nú er þar. Þetta þýðir, að íshafið hefur verið að mestu íslaust a.m.k. á sumrin. Þó lifðu ísbirnir af og lifa enn þótt sum hinna ýmsu hlýskeiða hafi verið mun hlýrri en það núverandi.
Jörðin var sem aldingarður því hlýnun er öllum fyrir bestu, mönnum dýrum fuglum, fiskum, jurtum og öllu sem þrífst á jörðinni. Grænland var líka á sínum stað eins og Suðurskautslandið, þótt eitthvað kvarnaðist úr báðum, einkum Grænlandi og meðal sjávarstaða var aðeins einhverjum fáum tugum sentimetra hærri en nú.
Fyrir því eru nokkrar ástæður: Miklu meira vatn var bundið í gufuhvolfinu, sem stuðlar að lækkun sjávarmáls og ekki síður hitt, að þrátt fyrir hærri meðalhita var enn frost mestallt eða allt árið á hábungu meginjökla, en það er ákoma, þ.e. snjókoma umfram sumarbráðnun sem mestu ræður um vöxt og viðgang jökla. Miklu meiri snjór olli því hækkun jöklanna, þótt kvarnaðist úr nær sjávarmáli.
Um koldíoxíð vil ég þó segja þetta: Jurtirnar þurfa gífurlegt magn koldíoxíðs á hverjum degi til að vaxa og dafna, mynda nýjar frumur og vefi og nýtt súrefni. Þessi hringrás tekur aðeins fáein ár.
Raunar byggir C14 aldursgreining fornleifafræðinga einmitt á þeirri staðreynd, að þetta er hringrás sem sífellt endurnýjast, koldíoxíð eyðist og nýtt tekur við á innan við tíu ára fresti. Þannig hefur þetta verið í milljarða ára, síðan jörðin var ung. Þáttur mannanna hefur verið talinn um 3,2% af koldíoxíði gufuhvolfsins.
Koldíoxíð, náttúrulegt og manngert, er nú um 400 grömm í hverju tonni gufuhvolfsins og þar af er hlutur Íslendinga eitthvert brotabrotabrotabrot úr nanógrammi."
Það er svo ótrúlega furðulegt að til sé fólk sem horfir á örstutt hlýskeið í milljarða ára sögu jarðarinnar og alhæfir að allt sé að fara á hvolf vegna útblásturs koldíoxýðs manna.
Vilhjálmur á þakkir skildar fyrir að rifja þessar staðreyndir upp.
Við landnám var Vatnajökull í tveimur hlutum og nefndist þá Klofajökull. Lá þjóðbraut milli helminganna. Af hverju skyldi jökullinn hafa verið í þessum tveimur hlutum? Óhjákvæmilega mun minni en hann er núna.
Er hugsanlega aðeins endurhlýnun í gangi en ekki hamfarahlýnun af mannavöldum?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Reyndar varð ég að stytta greinina þrívegis og samt tók tæpa tvo mánuði að fá hana birta, enda gengur hún gegn hugmyndum semikommanna, sem ráða Fréttablaðinu. Hún er í fullri lengd á bloggi mínu, vey.blog.is
Hér er greinin í upprunalegri útfærslu: https://vey.blog.is/blog/vey/entry/2238952/
Vilhjálmur Eyþórsson, 7.11.2019 kl. 15:28
Góð grein Halldór Já Kata vísinda kona veit sjálsagt betur eða það heldur hún.
Valdimar Samúelsson, 7.11.2019 kl. 15:49
Vatnajökull var vissulega minni við landnám en hann er í dag. Munurinn er hinsvegar sá að þá var hann að stækka en er nú að minnka. En er Klofajökulsnafnið endilega vísbending um að hann hafi verið klofinn í tvennt? Hefði hann þá ekki verið skilgreindur sem tveir aðskildir jöklar og fengið þá tvö nöfn, rétt eins og Eyjafjallajökull og Mýrdalsjökull?
Emil Hannes Valgeirsson, 7.11.2019 kl. 21:11
Greinar og pistlar Vilhjálms Eyþórssonar eru vel fram settir, með skýrum rökum og vísunum í staðreyndir og þekktar niðurstöður. Nokkuð sem forsætisráðherfa Íslands skeytir litlu um, í ömurlegri tilraun sinni til að snúa úreltum sósíalískum hugmyndum sínum, undir handarjaðri Þistilfjarðarkúvendingsins, yfir í ofurskatta á almenning, í nafni hinnar nýju trúar. Trúar sem ætlað er að leysa af hólmi sósíalismann, en er engu betri.
“ Mergsjúgum almenning, svo við getum flogið á ráðstefnur á sagaklass, fimm stjörnu hótel með kavíar og kampavín í morgunmat. Ráðstefnur sem sjaldnast komast að annari niðurstöðu en þeirri, hvar halda skuli næsta fund um “hamfarahlýnunina” með tilheyrandi mengun.”
Þetta heimsendaspárlið á bágt og sennilega verður vitinu ekki með nokkru móti fyrir það komið. Þetta eru jú að mestu sósíalistar og kratar, sem fátt kunna annað en eyða peningum annara. Heimska þeirra er alger og sorglegt að horfa upp á að rökræður séu að mestu orðnar bannaðar um hlýnun jarðar, því fávísir stjórnmálamenn, opinmynntir fjölmiðlamenn og sænskir afvegaleiddir krakkakjánar hafa tekið yfir alla skynsamlega umræðu.
Hvet alla til að lesa grein Vilhjálms. Þar ritar maður af viti.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 7.11.2019 kl. 23:33
Rétta lýsingin er endurhlýnun.
Hamfarahlýnun er þegar fólk eins og gluggaskrautið
og sænska undrið, hleypur fram og hrópar úlfur, úlfur, úlfur.
Þá fer af stað hamfarhlýnun sem felst í þvi að hækka
álögur á almenning og skerða lifsgæði svo um munar.
CO2 sem er undirstaða alls lífs á jörðinni er sagt hættulegt
og fólk hrætt með því að segja að við eigum bara stutt eftir þrátt
fyrir að raunveruleg vísindi sýna allt annað.
Allt annað er bara náttúrleg og eðlileg endurhlýnun.
Svo einfallt er það.
Sigurður Kristján Hjaltested, 8.11.2019 kl. 08:45
Ef Vatnajökull var að stækka við landnám þá hefur verið að lækka hiti frá því sem var, sem segir að það var þá hlýrra áður fyrr. Þá er endurhlýnun réttari lýsing en hamfarahlýnun er það ekki?
Halldór Jónsson, 8.11.2019 kl. 10:08
Eftir síðasta jökulskeið var hlýjast fyrir um 5-8 þúsund árum og nánast engir jöklar á Ísland. Þau hlýindi voru þó af öðrum ástæðum heldur en hin hnattræna hlýnun sem er í dag.
Emil Hannes Valgeirsson, 8.11.2019 kl. 11:53
Þau hlýindi voru þó af öðrum ástæðum heldur en hin hnattræna hlýnun sem er í dag.
Hvernig veistu það?
Halldór Jónsson, 8.11.2019 kl. 13:40
Stutt svar. En vísindamenn eru nokkuð sammála um að hinar svokölluðu Milankovitch sveiflur, sem snúast um afstöðusveiflur jarðar gagnvart sólu, valdi hitafarsbreytingum á árþúsunda- og tugþúsundaskala og hefur áhrif á komu og endalok ísalda. Við lok síðustu ísaldar var t.d. halli jarðar í hámarki, í sveiflu sem spannar 41 þús ár og olli því að sólin fór hærra á loft að sumarlagi á norður- og suðurslóðum. Af sömu ástæðu færist heimsautsbaugurinn til smám saman til norðurs þar til hann fer að snúa til baka eftir um 10 þúsund ár.
Síðan má hafa í huga að:
"It is important that the climate change that occurs as a result of the Milankovitch cycles and the changes of the present day warming due to the enhanced greenhouse effect are not confused. These changes are on completely different time scales with the later happening in decades and the former over many thousands of years."
Slóð: https://medium.com/@pathackett/the-milankovitch-cycles-and-climate-change-today-7b424ba74113
Emil Hannes Valgeirsson, 8.11.2019 kl. 14:43
Virtur og sannur útskýrir Vilhjálmur Eyþórsson á mannamáli öllu um hita og kuldaskeiðin og Loftslagsmál.
Hvert ætlar ríkisstjórnin að senda skattpeningana vegna Loftslagsmála?.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 9.11.2019 kl. 00:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.