Leita í fréttum mbl.is

Innviðir eða þjóðarsjóður?

er spurning sem virðist ná að komast að hjá ráðamönnum eins og Sigurði Inga.

Af honum segir svo:

"Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarmálaráðherra, telur að til greina komi að arður af orkufyrirtækjunum verði notaður til að byggja upp og treysta raforkukerfið. Hann gagnrýnir líka að einstaklingar geti staðið í vegi fyrir lagningu raflína þegar líf og öryggi fólks sé í húfi.

 

„Á liðnum árum höfum við látið orkufyrirtæki eins og Rarik borga arð í ríkissjóð. Ég tel að það eigi að skoða það núna hvort að þeim peningum sé ekki betur varið í að byggja upp öryggi fyrir landið allt“ segir Sigurður.

Líf og öryggi í húfi

Sigurður Ingi gagnrýnir líka að einstaklingar geti staðið í vegi fyrir því að raflínur séu lagðar.

„Ég verð bara segja alveg eins og er að þegar einhverjir einstaklingar, sem jafnvel búa ekki á svæðinu, setja fyrir sig sjónmengun af einhverjum línum, þegar líf og öryggi samborgara þeirra sem búa í samfélaginu er í húfi, þá held ég að það fólk verði að hugsa sig um,“ segir Sigurður Ingi."

Hvort hugnast mönnum þessar hugmyndir betur eða hugmyndir um að flytja arðinn af orkufyrirtækjunum til ávöxtunar úr landi i banka í Ásíu? Flytja þjóðasjóðinn svo beint til baka í neyðarráðstafanir í innviðum Íslands?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það eru ekki til peningar til að byggja sjúkrahús með vitrænum hætti og af myndarskap, það eru ekki til peningar til að bæta vegakerfið eða grafa veggöng og það eru ekki til peningar til að styrkja orku kerfið.

En það eru til næg efni til henda Reykjavíkur flugvelli og byggja nýjan við hliðina á Keflavíkurvelli og Sigurður Ingi skrifaði undir að Reykjavíkur flugvelli yrði hent af því að Dagur sagði honum að gera það. Menn flitja ekkert flugvöll.

Enda ætlar Sigurður Ingi að taka stóra stökkið og rukka veg skatta með myndavélum og bíl eigendur eiga að borga fyrir það tjón sem ríkið hefur valdið með því að stela vega fé sem borgað hefur verið í áratugi.

Bjarni Ben vill safna í þjóðar sjóð, en með öll þau verkefni sem við blasa þá er varla viturlegt að safna í sjóð handa ríkinu til að stela eins og gerst hefur með vega féð.

Hrólfur Þ Hraundal, 14.12.2019 kl. 13:06

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Hrólfur,

ég get ekki séð að við tveir eigum að neita okkur um að fá orkuöryggi núna til þess að einhverjir ófæddir Íslendingar,, eða aðfluttir, geti tekið peningana sem Bjarni ætlar að taka af okkur og flytja í bankann sinn í Asíu, af því að einhver vandræði hafi komið upp hjá þeim, löngu eftir að við erum dauðir?

Af hverju sparaði Hannes Hafstein ekki við sig og eftirlét okkur peningana til að borga Icesave þegar Bjarni vildi borga þá sátt? Hefði verið réttlæti í því?

Mér finnst grunnhugsunin skökk að ein kynslóð eigi að spara peninga fyrir þá næstu. Hún á að einbeita sér að byggja upp landið og innviðina og skila landinu betra í hendur næstu kynsllóða eins og verið hefur frá örófi alda. Ekki að fara að braska með skattfé og arð af auðlindum.

Halldór Jónsson, 14.12.2019 kl. 13:20

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Er ekki smá hugsanavilla þarna hjá ráðherranum?  Landsnet sér um lagnakerfið. Selt sérstaklega frá hinu opinbera að boði EES orkupakka.  Er leyfilegt að ríkið styrki einkafyrirtæki? 
Hins vegar er ég sammála því að stofnun þjóðarsjóðs er ekki tímabær núna þegar fjármagnið vantar í flutningsuppbyggingu.

Kolbrún Hilmars, 14.12.2019 kl. 13:28

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Hvorki landeigendur né einstaklingar eða umhverfisverndarfólk hafa lagst gegn viðhaldi og uppbyggingu á þeim línum og kerfum, sem hafa verið biluð síðustu sólarhringa og eru sum enn biluð á fimmta degi frá byrjun óveðursins. 

Þvert á móti eru það rekstraraðilar þessara kerfa, sem hafa vanrækt viðhald og endurnýjun, en lagt ofuráherslu á risavaxnar stóriðjulínur. 

Á leiðinni milli Blönduvirkjunar og Fljótsdals hefur ekkert verið að óveðrinu, en á þeirri leið hafa einstaklingar og samtök reynt að fá eitthvað af línunum í jörð; nokkuð, sem Landsnet hefur ekki mátt heyra, þótt með því sé einfaldlega girt fyrir tjón ofanjarðar, eins og sífellt plagar landsmenn.  

Ómar Ragnarsson, 14.12.2019 kl. 15:14

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Sjaldan veldur einn þá tveir deila Ómar.

Halldór Jónsson, 15.12.2019 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband