Leita í fréttum mbl.is

Carbfix

er heiti á dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur sem O.R. var að stofna á kostnað viðskiptavina sinna og eigenda.

Stofnun og rekstur myndarlegs fyrirtækis hlýtur að kosta myndarlegar upphæðir í forstjóra, stjórn,jeppa, húsnæði, risnu og alls sem slíkum rekstri tilheyrir. Allt þetta fé kemur frá orkukaupendum sem eiga ekki í önnur hús að venda með sínar þarfir.

Fyrir þá sem ekki vita er tilgangur fyrirtækisins CarbFix að dæla CO2 og H2S frá Hellisheiðarvirkjun niður í í jörðina þar sem lofttegundirnar ganga í samband við jarðlög og verða að bergi.

1/3 af heildarmagni CO2 sem stígur frá virkjuninni sem er einhver 34.000 tonn á ársgrundvelli, hefur verið fangað á þennan hátt og gert að bergi. 

Þetta er stöðug vinnsla og hefur tekist mæta vel. Þetta er vissulega vísindalegt afrek sem ekki á sinn líka.

Upp úr Kötlugíg, sem hefur ekki gosið í eina öld, stíga einhver 20.000 tonn af CO2 á hverjum sólarhring til viðbótar við H2S og fleiri lofttegundir. Það má gera ráð fyrir að upp úr öðrum eldgígum í hvíld, eins og Holuhrauni, Eyjafjallajökli og Mið-Atlantzhafshryggnum,  stígi talsvert  magn slíkra lofttegunda en mér eru ekki kunnar neinar tölur um slíkt. En ég veit að ekkert félag er að fanga þá loftmassa né að dæla þeim niður í berggrunna landsins og hafsins.

En tölurnar um magnið virðast manni vera svo stjarnfræðilegar að varla er að búast við að þau fjárútlát af skattfé sem nú renna til CarbFix,muni skipta sköpum í baráttu stjórnvalda við það sem þau forsætisráðherra og Gréta Thunberg nefna hamfarahlýnun jarðar af mannavöldum.

Og CO2 er byggingarefni lífsins á jörðinni. Það gerir jörðina grænni og án þess vex enginn gróður.Og án gróðurs vöxum við menn ekki. Vatnsgufan í andrúmsloftinu stjórnar miklu meira en CO2 um útgeislun jarðar af orku sem sólin sendir henni.

En tízkan einblínir á orðið kolefnisfótsporið án þess að prédikararnir geri frekar grein fyrir því en verðleggi losunarheimildir á því efni eftir sínu höfði. Hvar skyldi  gjaldkeri Kötlu vera til húsa?

Carbfix er tæknilegt verkefni sem vekur aðdáun fyrir hugvit og hvað ekki er hægt að gera fyrir peninga.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hefur MIÐFLOKKURINN frétt af stofnun CARBFIX?.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 28.12.2019 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418164

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband