Leita í fréttum mbl.is

Íran, nýtt nasistaríki

og Khameini er nútíma Hitler sem er tilbúinn í hvaða glæpaverk sem er með byltingaverðinum sem er beinn arftaki SS-sveitanna.

Reiner Heydrich lifir góðu lífi í nýjum yfirlýsingum varnarmálaráðherra stjórnarinnar um að jafna TelAviv og Haifa við jörðu.

Írönsk stjórnvöld eru nasistaríki sem  engin leið er að tjónka við.Af þeim stafar stórhætta fyrir allt mannkyn.  Geðbilað trúarofstæki við stjórn Íran gerir Persneska ríkið að ósnertanlegri einingu meðal þjóða,-Paría ríki.

Ef ekki væri fyrir Trump og Bandaríkin væri mannkyni mikill vandi á höndum gagnvart nútíma nasistaríkinu Íran.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Halldór 

Þessi General Wesley Clark hérna gæti örugglega bent þér á hver er og hefur verið hefja stríð þarna í Miðausturlöndum, og/eða hver er og hefur verið eins og Adolf Hitler. Hann Wesley karlinn heldur reyndar uppi síðunni www.stopiranwar.com

KV.  

Image result for we will invade 7 countries

Sjá hérna einnig  Wesley Clark Told The Truth

KV. 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 11.1.2020 kl. 18:19

2 identicon

Undarlegt að sjá þig tala illa um Hitler og nasista eins og hugarfar þitt almenn er. Þú kemur mörgum á mikið óvart með því. Vonandi er þetta upphaf hugarfarsbreytingar.

Vagn (IP-tala skráð) 11.1.2020 kl. 20:00

3 identicon

Ásælni hefur lengi þekkst meðal Breta og Bandaríkjanna í auðlindir Íran. Gegndarlaust arðrán nefndra stórvelda gekk svo langt að stjórn landsins voru þeim handgengin eða hreinlega leppar. Byltingin 1979 var svar Írönsku þjóðarinnar til BNA og arðránið var stöðvað. Síðan hefur Íran verið á svarta listanum og sætt stöðugum þvingunum og árásargirni að hálfu BNA og fylgjenda þeirra. Stefna BNA er að ná aftur óheftum aðgangi í auðlindir Íran. 

Petrus (IP-tala skráð) 11.1.2020 kl. 20:16

4 identicon

Mjög góðir pistlar hjá þér.

Stebbi (IP-tala skráð) 12.1.2020 kl. 00:00

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Halldór minn.

Þessi færsla er fyrir neðan vitsmuni þína.

Sem er það alvarlega við hana, það þarf fífl til að taka undir, en til þess er fórnað ævi og æru.

SEm skynsemisveru.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 12.1.2020 kl. 01:47

6 Smámynd: Snorri Hansson

Hallldór Þessi pistill þinn er bull. Lestu betur  Þorsteinn Sch Thorsteinsson,  og Petrus .

Snorri Hansson, 12.1.2020 kl. 01:54

7 identicon

Ólíkt forverum sínum hefur Trump margoft lýst yfir að hann vilji draga USA út úr hernaðaraðgerðum í fjarlægum ríkjum.

Burtséð frá öllum hagsmunum þá hefur oft verið ætlast til að USA skakki leikinn þegar SÞ mislíkar aðgerðir einhverja ríkja. 

Grímur (IP-tala skráð) 12.1.2020 kl. 03:15

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Veistu það Vagn að ég nenni varla mikið lengur að lesa þetta  frá þér ef þú þarft alltaf að vera svona óþverralegur

Halldór Jónsson, 12.1.2020 kl. 11:35

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar, etr Íran lýðræðisríki í þínum augum?Khameini friðarpostuli? Ayjatolla Khomeini góðnmenni? Fólkið einhuga á bak við þá?

Halldór Jónsson, 12.1.2020 kl. 14:03

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar Geirsson, hvað segir þú um að hlusta á Wesley Clark áður en að þú fordæmir mínar skoðanir á Íran?

Halldór Jónsson, 13.1.2020 kl. 15:05

11 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Wesley Clark er demókrati þannig að það hlýtur að vera allt rétt og satt sem hann segir, eða hvað?

MAGA

Með kveðju frá Montgomery Texas í 16C kuldakasti.

Jóhann Kristinsson, 13.1.2020 kl. 22:33

12 identicon

Íran er "lýðræðisríki", allir fá að kjósa til þings, konur og karlar. Hængurinn er bara sá að frambjóðendurnir verða að njóta velþóknunar múllanna.

Ég hugsa mér þá samlíkingu að þeir einir mættu bjóða sig fram til Alþingis sem, t.d. Steingrímur Sigfússon, Bjarni Benediktsson, Sigm. Davíð Gunnlaugsson eða kannski Frú Agnes biskup gæti sætt sig við.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 13.1.2020 kl. 23:09

13 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Halldór.

Fyrirgefðu hvað ég kem seint inn, hef verið upptekinn í öðru en tölvunni.

Ef út í það er farið þá held ég að leitun sé að manni sem fyrirlítur klerkana í Íran eins og ég.  Hef haft það álit lengi, en sannfærðist endanlega þegar óvart rakst ég á mynd á netinu sem sýndi aftöku á konu, sakaða um framhjáhald, og hún var grafin í jörðu og grýtt.

Eiginlega fyrirlít ég aðeins meira klerkaveldið í Sádí Arabíu, og þá undanskil ég ekki glæpahyskið í Norður Kóreu, eða minna glæpahyski í Kína og víðar þar sem stjórnarhættir einkennast af kúgun og ofbeldi.

Það náttúrulega í fyrsta lagi réttlætir ekki að vestræn ríki taki upp svipaða hegðun, eða bullið taki yfir umræðuna.

Þar þurfum við að gæta að okkur Halldór.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 14.1.2020 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband