Leita í fréttum mbl.is

Hvassahraunsflugvöllur

er mátulega kominn á dagskrá þegar Dagur B. Eggertsson ætlar að senda þjóðinni reikning fyrir flugvöll ofan á kvikuhlaupinu við Grindavík en hirða sjálfur söluhagnaðinn af Vatnsmýrarlóðunum.

Það er sama hvaða tillögur koma frá meirihlutanum sem stýrir Reykjavík. Þær eru alltaf þær seinheppnustu sem hægt er að finna. Sé það Bragginn, viðhald fasteigna, myglur eða stytting leikskólatímans vegna álagsins sem hann er á börnin og starfsfólkið.Það brotlendir allt á Hvasshraunsflugvelli ofan á eldfjallinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það kemur Degi ekkert við hvort ríkið vilji byggja flugvöll svo lengi sem það er ekki í Reykjavík. Hvassahraunsflugvöllur er ekki ákvörðun Dags og kemur ekki til neinnar afgreiðslu hjá Reykjavíkurborg.

Reykjavíkurflugvöllur er í Reykjavík og því vinnur Borgarstjórn Reykjavíkur eftir þeirri ákvörðun og þeirri niðurstöðu kosninga að hann skuli fara. Þegar það var ákveðið var Dagur nýútskrifaður læknir og starfaði á Ísafirði.

Vagn (IP-tala skráð) 27.1.2020 kl. 19:26

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvassahraunsflugvöllur er einungis á dagskrá vegna fjandskapar Dags við Reykjavíkurflugvöll.Mikill meirihluti landsmanna vill Reykjavikurflugvölll þar sem hann er

Halldór Jónsson, 28.1.2020 kl. 08:51

3 identicon

Hvassahraunsflugvöllur er einungis á dagskrá vegna þess að ríkið vill flugvöll í eða nálægt Reykjavík. Flestir Reykvíkingar, eins og flestir landsmenn, finndu ekkert fyrir því alla sína ævi þó hann væri á Hellu eða Höfn. Umferð um flugvöllinn er minni en á kjúklingaveitingastað.

Dagur er eins sekur í flugvallarmálinu og Boris í Brexit málinu. Í einu kosningunni sem fram hefur farið, í því sveitarfélagi sem fer með skipulagsvald á svæðinu, kusu íbúar þess sveitarfélags að flugvöllurinn færi. Mörgum þykir rétt og æskilegt að farið sé eftir niðurstöðum kosninga, sama hvort þær snúast um Reykjavíkurflugvöll eða Brexit. Og Reykvíkingar hafa ekki kosið flokka í borgarstjórn sem lofa að flugvöllurinn fari ekki.

Skoðanir fólks á skipulagi í öðrum sveitarfélögum en þeirra egin er ekkert sem skiptir máli. Keflvíkingar ákveða ekki hvort hringtorg sé á Akureyri, Hvergerðingar ekki hvar Ísfirðingar setja niður skíðalyftur og Borgfirðingar ekki hvort flugvöllur sé í Reykjavík. Jafnvel þó Keflvíkingum þyki óþægilegt að aka um hringtorg þegar þeir koma til Akureyrar og Hvergerðingar vilji ekki þurfa að klifra upp uppáhalds brekkuna sína þegar þeir koma til Ísafjarðar að skíða.

Þannig eru staðreyndirnar. Sama hvort maður er fylgjandi eða andvígur. Þetta er það sem er að ske. E.t.v. hefði verið betra ef Dagur og Boris hefðu hundsað vilja kjósenda. En það væri undarlegt að telja það rétt að fara eftir kosningum og rétt að fara ekki eftir kosningum. Og ýmist lofa eða formæla þeim sem virða niðurstöður kosninga.

Vagn (IP-tala skráð) 28.1.2020 kl. 20:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 3419866

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband