Leita í fréttum mbl.is

Egilsbræður

fara nú mikinn í þjóðmálabaráttunni.Skrifa skammir á Miðjuna og víðar um alla sem nálægt þjóðamálabaráttu hægra megin frá koma. 

Svo stórkostlegir öfundarkommar og þjóðfélagsillgirnispostular eru þeir Egilsbræður orðnir,stórflinkir atvinnuskríbentar og fyrrum auðvaldsþý sjálfir, að stjórnmálamenn samtímans verða brátt að gera sér ljósa hættuna sem stafar af slíkum áróðursmönnum sem skrifa daga og nætur Trumpískar falsfréttir undir yfirskini stéttabaráttunnar fyrir bættum kjörum. 

Það væri samt illa komið fyrir fólki ef það sæi ekki glytta í þá pólitísku eiginhagsmuni bræðranna undir yfirskini réttlætisins sem þeir hampa nú hæst á vettvangi hins nýja sameinaða fjáraflaflokks Alþýðu, Sósíalistaflokksins, sem Gunnar Smári hefur á stofn sett. Hugsjónabísness í stíl bandarískra helvítisprédikara sem gera það gott meðal trúgjarnra eins og hún Joyce Meyer gerir betur en margir aðrir. Jimmy Hoffa og fleiri slíkir fundu líka peningalyktina af verkalýðsfélögunum í Bandaríkjunum fyrir margt löngu og spiluðu á kerfið og gera víst enn.

Það er ekki nýtt undir sólinni að slíkir gáfnafantar ráðist til atlögu við pyngjur fátækra undir yfirskini mannkærleikans. Það virðast þeir Egilsbræður í Sósíalistaflokknum hafa komið auga á eins og Lenin forðum í Rússlandi þegar hann frelsaði fátæka frá kúgun keisarans.

Egilsbræður eru greinilega á leið með að verða leiðtogar í hinni beittu baráttu fyrir bættum kjörum sjálfra sín og alþýðunnar. 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Það eru þrjú þúsund milljónir krona í verkfallssjóðum Eflingar. Það má nú taka að sér ýmis ráðgjafastörf fyrir brot af þeirri upphæð. Skrifa greinar og pistla og rukka fyrir. Það mætti líka leggja á borð félagsmanna nokkrar máltíðirnar fyrir þessa upphæð. Greiða af lánum, leigu og annað sem til fellur.

 Gera almennir félagsmenn Eflingar sér grein fyrir þeim fjármunum sem dregnir hafa verið af þeim og bíða nú sósíalískrar liðveislu og föðurlegrar ´´umhyggju´´fjögurra blaða smárans?

 Vonandi eru nægilega margir borgandi meðlimir Eflingar það vel þenkjandi að bremsa forystuna örlítið af og sjá til þess að fyrrum rassasleikjur auðvaldsins, sem nú titla sig sósíalista, komist ekki með krumlurnar í sjóði félagsins. Félagsmenn Eflingar eiga ekki skilið að verða arðrændir af skítbuxum, sem enn anga af táfýlu á tungunni, undir skítugum skóm auðvaldsins og kalla sig í dag sósíalista. Svei þessum rottum!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 15.2.2020 kl. 21:14

2 identicon

ENGINN mælir með VERKFÖLLUM og SOCIALISMA fyrir ÍSLAND. Hann er BÖL allra LANDA.

Það er stutt í "ÁTÖK" í EVRÓPU og á NORÐURLÖNDUM vegna "STJÓRNLEYSIS" ESB manna í BRUSSEL. Þeir eru herlausir og varnarlausir og treysta á GASIÐ OG ELDSNEYTIÐ frá RÚSSUM. Kappinn og LEIÐTOGINN í USA bjargar EVRÓPU að lokum.

VANDINN í þessari launabaráttu var "stórhækkun launa og fríðinda Embættis og Alþingismanna"... 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 16.2.2020 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418164

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband