14.4.2020 | 11:53
"..þegar stefnan er rétt."
Gamli bolsévikkinn Hjörleifur Guttormsson og stóriðjuskelfir seilist í COVID19 til að styrkja sérvisku sína í loftslagsmálum og kommúnisma allsherjar ríkisvæðingar.Hann minnir mig á það þegar einn flokksbróðir hans sagði við mig grafalvarlegur í VesturÞýzkalandi þess tíma þegar stúdentar ræddu um ástandið í AusturÞýzkalandi þar sem kommúnistaflokkurinn var eini leyfði stjórnmálaflokkurinn: Það þarf enga stjórnarandstöðu þegar stefnan er rétt. Kannski man einhver eftir Ulbricht fyrrum pútnahússtjóra og hans stjórnartíð?
Hjörleifur styður tillögur sínar og trúboð saman í nokkrum klausum:
Miklu skiptir að horft verði til allra átta um lausnir og ekki bara til skamms tíma. Í ársbyrjun lá fyrir að brýnasta verkefni alþjóðasamfélagsins og hvers þjóðríkis væri að taka ákvarðanir um bindandi stefnumörkun gegn hlýnun jarðar af mannavöldum. Veirupestin hefur að sjálfsögðu kallað á skjót viðbrögð en framhaldið þarf jafnframt að taka mið af aðgerðum gegn loftslagsvánni.
Við upphaf bankakreppunnar haustið 2008 vék ég að þætti nýfrjálshyggjunnar með þessum orðum: Helstu siglingaljós nýfrjálshyggjunnar hafa verið að láta markaðinn ráða för í smáu sem stóru, hafna ríkisafskiptum og einkavæða allt sem höndum væri komið yfir, jafnt almannaþjónustu, atvinnulíf og fjármálastofnanir. Hvaðeina sem staðið hefur gegn þessari hugmyndafræði hefur verið fordæmt, eftirlit og takmarkanir af hálfu hins opinbera, starfsemi frjálsra verkalýðsfélaga, að ekki sé talað um stjórnmálamenn sem staðið hafa fyrir önnur gildi.
Ekki dugði fjármálakreppan þá til þess að gripið væri til róttækra aðgerða gegn hnattvæðingu viðskiptalífsins sem leitt hefur af sér samþjöppun auðæfa og auðlinda á æ færri hendur. Spurningin er hvort kreppan sem nú er skollin á fær menn til að staldra við og taka upp önnur og vænlegri siglingaljós. Í nýjasta hefti The Economist (28. mars 3. apríl) segir m.a. undir fyrirsögninni Að byggja upp ríkisstoðir (Building up the pillars of state, s. 20-22): Ríkisstjórnir á Vesturlöndum beina nú gífurlegum fjárupphæðum til fyrirtækja, afhenda þeim gjafafé og ódýr lán í tilraun til að halda störfum og forða þeim frá gjaldþroti. Mikill meirihluti hagfræðinga styður þessar aðgerðir sem að nafninu til eru sagðar tímabundnar til að halda efnahagslífinu í öndunarvél þangað til farsóttin er liðin hjá og heiminum er ætlað að hverfa til fyrri hátta. Sagan segir okkur hins vegar að afturhvarf til aðstæðna fyrir-covid er ósennilegt Líkur eru á að tímabundin ríkisafskipti verði varanleg.
Mestu máli skipta til framtíðar litið ríkulegar endurnýjanlegar náttúruauðlindir til lands og sjávar, gott menntunarstig og öflug söfn og vísindastofnanir. Á þessum kostum þarf að byggja endurreisnina með sjálfbærni í huga á öllum sviðum og metnaðarfull markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofts.
Hjörleifur dregur þær ályktanir einar af heimsfaraldrinum að brautin til kommúnismans sé nú betur vörðuð en nokkru sinni fyrr með auknum ríkisafskiptum. Síðan grípur hann til trúarbragða sinna og Grétu Thunberg að heimurinn sé að farast vegna losunar CO2.
Merkilegt er að náttúrufræðingurinn láti sem hann hafi aldrei heyrt um þá vísindamenn sem færa gild rök fyrir því að hlýnun jarðar geti verið af öðrum orsökum og sé ekkert nýtt fyrirbrigði né óæskilegt í jarðsögunni eins og nafnið Klofajökull bendir til.
Nei: Niður með frjálst efnahagslíf og hagvöxt í heiminum. Niður með viðskiptafrelsi en treystum á ríkisvæðinguna.
Það er eins og Hjörleifur hafi ekki heyrt um að Sovétríkin séu liðin undir lok,Fidel Castro sé allur og Venezúela sé eins og hún er eftir Maduro og Chavez.
Það er engin þörf á stjórnarandstöðu þegar stefnan er rétt.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:06 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.3.): 6
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 3420483
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
fiski
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
jvj
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko
Athugasemdir
Blessaður Halldór.
Sem raungreinamaður veist þú að menn fengu ekki prófgráður með því að segja eftir á, ég hefði reiknað þetta og komist af sömu niðurstöðu, enda til dæmis hætt við að margar brýrnar hefðu hrunið ef burðarþolsútreikningar hefðu ekki verið reiknaðir fyrirfram.
Sama gildir um spádóma, ég man ennþá eftir nóttinni þegar kona mín hnippti i mig og sagði um einn frænda minn, hann á stelpu, og hún fæðist á kvennadaginn 19 júní, þá vissum við ekki um kyn, hvað þá fæðingardaginn, en allt gekk eftir.
Eftir Vestmannaeyjargosið steig margur fram og sagði, "mig dreymdi fyrir gosið", en fáar heimildir eru um að fólk hafi sagt frá draumum sínum eða skynjun fyrir gos.
Vísindin á bak við hlýnun jarðar vegna gróðurhúsloftegunda eru skýr, en jöfnurnar ófullkomnar því svo fáar breytur eru þekktar. Hitajöfnun jarðar, áhrif aukins raka í andrúmsloftinu, mótvægi lífsefnisins eins og Loftur heitinn kallaði koldíoxíðs, áhrif sólar, stöðunnar í vetrarbrautinni, stöðu vetrarbrautarinnar innan miðpunktsins sem allt snýst um og svo framvegis.
En lofhjúpurinn á sér skýringar, hann hitatemprar jörðina, og hinar svokölluðu gróðurhúsloftegundir leika þar stórt hlutverk, jafnvægi þeirra eru lífsskilyrði okkar.
Spádómar um hlýnun jarðar vegna þeirra eru allavega 30 ára gamlir, misgáfulegir, en á milli þeirra og hlýnunar jarðar er góð fylgni, merkilega góð miðað við allar þær breytur sem eru óþekktar.
Þú talar um aðrar orsakir Halldór, og þá sem raungreinamaður getur þú ekki vísað í eftirá spádóma líkt og miðlarnir forðum um Vestmannaeyjagos.
Hvar eru greinarnar, hvenær eru þær dagsettar, hvað spáðu þær, og hverjar voru þessar orsakir??
Að geta svarað þessum spurningum greinir bullið frá kjarnanum.
Og síðan má bæta við að Trump er alveg sammála gamla kommanum af Héraði um áhrif alþjóðavæðingarinnar, nema hann endurreisti innlendan kapítalisma á meðan gamli komminn ofan af héraði heldur ennþá að frjálshyggja sé sama og kapítalismi.
Trump veit betur en miðað við orð þín Halldór, þá virðist þú í það minnsta velkjast í vafa.
Samt Trumpisti.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 14.4.2020 kl. 18:29
Það er löng upptalning á vísindamönnum og skrifum þeirra. Curry, Lintzen, Svendmark, Sally Balunas, ég man bara ekki alla á þessari stundu. En það er haugur af mönnum sem hafa rannsakað málið vísindalega og vita meira en Gréta Thunberg og Hjörleifur. Spurðu til dæmis hann Ágúst H. Bjarnason rafmagnsverkfræðing um sólina og þá vísindamenn sem hann þekkir. Þá geturðu fengið nóg að hugsa um annað en að hlaupa eftir heimsendaspámönnum Ómar minn.
Halldór Jónsson, 14.4.2020 kl. 23:07
Blessaður Halldór.
Ég las reyndar pistil eftir Ágúst svo snemma sem 2013 eða kringum það að mig minnir.
Og ég las linka hans, og þá fékk ég nett sjokk, ég hélt að gagnrýnin byggðist á traustum fræðum, en allavega þeir sem hann vitnaði í voru augljós feik áróðursins sem grasserar þarna vestra í hægri kreðsunni.
Þegar fræði takast á, þá ferðu rétt með, þú tekur ekki bara með þær staðreyndir sem henta þér, hundsar hinar eða skrumskælir. Áróður fyrir fáfróða hefur ekkert með rökræðu vísinda að gera.
Maður þekkti kommana í gamla daga á þessu Halldór, þeir fóru aldrei rétt með.
Ég efa hins vegar ekki að þessir menn sem þú vitnar í séu mætir fræðimenn (að því gefnu að það séu ekki vísindamennirnir sem Ágúst lét blekkja sig) en ég spurði um fyrirfram fræði, ekki eftir á.
Þegar ég var að spá í þessu þarna um árið, þá las ég mér til um Danann sem var með sólarkenninguna, las rökræðu hans við skeptíska. Ég gat ekki betur sé en að hann hefði tapað þeirri rökræðu, gögn hans voru ekki nógu nákvæm eða góð. Þá gera menn annað af tvennu, endurskoða gögnin og rannsaka betur, sem er leið vísindanna, eða fara í fjölmiðla og væla yfir samsæri, sem er leið áróðursins og þá leið for Daninn.
Sem segir mér margt, því þó ég sé ekki raunvísindamaður þá hef ég lengi pælt í áróðri og ímyndunarsmíði.
Svo ég spyr aftur Halldór, hvar eru linkar á umræðu og kenningar fyrir hina hatrömmu pólitísku umræðu sem spratt upp um og uppúr aldamótunum. Verð að spyrja því þegar ég las mér til um þetta þá fann ég fátt annað en Danann, en ég var ekki að leita að því sem slíku, heldur að vega og meta rökræðuna.
Og Halldór minn, ég er enginn stuðningsmaður heimsendamanna, hvað þá hinnar svörtu frjálshyggju sem hefur hengt sig á Grétu, en ég rífst ekki við staðreyndir, ég tekst á við þær.
Og það er það sem mannsandinn gerir þegar hann bregst við drullunni af notkun jarðeldsneytis, hann finnur upp sparneytnari vélar, finnur upp mengunarvarnir á skorsteina iðnfyrirtækja og svo framvegis. Að ekki sé minnst á staðgengilstækni.
Glæpurinn er að hindra þá viðleitni.
Það gera annars vegar þeir sem eru í pólitískum forarpytti afneitunarinnar sem og þeir sem eru í illskupytti frjálshyggjunnar sem vill bregðast við mengunardrullunni með því að skattleggja fátækt fólk, venjulegt fólk, aftur fyrir steinöld.
Veit eiginlega ekki hvor skíturinn er verri.
En þetta er aukaatriði, ég bað um link á kenningu sem útskýrir hlýnun jarðar sem sannarlega er staðreynd, hver sem svo orsökin er.
Ef þú hefur hann ekki þá er það í góðu, en mér datt í hug að þú hefðir hann því ég veit að þú fylgist með.
Annars nær það ekki lengra.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 15.4.2020 kl. 07:11
Ertu bara ekki betri með að gúgla sjálfur, annað eins hefurðu sjálfur gert, Maður man ekki öll þessi nöfn sem maður er búinn að lesa.
Halldór Jónsson, 16.4.2020 kl. 00:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.