Leita í fréttum mbl.is

Mannhelgi

eins og landhelgi er gott hugtak sem ég les ´hjá Ómari Ragnarssyni.

Mannhelgin er 2 metrar og landhelgin er 200 sjómílur. "Mannhelgisbrot" í dag.

Víðir Reynisson klykkti út í lokaorðum sínum í dag, að mannhelgina, sem er 2 metrar, bæri að virða. Hárrétt orð hjá honum: Mannhelgi.

Já, vel orðað hjá honum og vel við hæfi að nota heitið mannhelgi um þau sjálfsögðu mannréttindi að hver maður eigi rétt á því samkvæmt sóttvarnarlögum og mannréttindaákvæðum, að maður, hugsanlega spúandi frá sér drepsóttarveiru, komi ekki nær en í tveggja metra fjarlægð. 

Þessir tveir metrar skuli skilgreinast sem mannhelgi á sama hátt og að fiskveiðilögsagan eða landhelgin, sé 200 sjómílur, sem er sama og 370 þúsund metrar. 

Brot á lögunum eru þá mannhelgisbrot og landhelgisbrot. 

Síðuhafi sá núna síðdegis, að fimm menn fóru inn í opna búð í Kringlunni og stóðu þar með tveimur öðrum viðskiptavinum svo nálægt tveimur afgreiðslumönnum, að þarna voru níu manns að brjóta tveggja metra mannhelgisregluna af alefli. 

Ábendingum til fólksins um eðli málsins á þessum stað var þurrlega tekið en það byrjaði þó að tínast í burtu.  "

Mér sýnist að fólk sé að slakaá í sóttvörnum of snemma. Við erum í miðri orrahríðinni og ekkert má útaf bera.

Málið er óleyst og heimurinn er á leið lóðbeint til andskotans ef ekki finnst antidote.

Mannhelgi verður lítils virði ef allt fer í stríð og upplausn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Virðum MANNHELGINA 2metrar á milli manna. Höldum þessu fram á haustið. Víðir er góður og Ómar Ragnarsson gott skáld og bestur með dóttur sinni að sýna Landið OKKAR í sjónvarpinu.

ÍSLAND hefur sannað sig varðandi alla eigin framleiðslu. Bændur, Gróðurhús, Sjávarútvegur og öll útiræktun undirstrikar ÖRYGGI, ÓMENGAÐAR MATVÖRUR þar sem ÍSLAND er í fyrsta flokki á góðum verðum

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 17.4.2020 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3418237

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband