18.4.2020 | 13:15
Komdu þá með hvönnina
dr. Sigmundur.
Þú skrifar athyglisverða grein í Morgunblaðiðblaðið í dag:
"Fyrir skömmu birtist ágæt grein: Ætihvönn gamalt pestarlyf eftir Þorvald Friðriksson fréttamann þar sem hann bendir á gamalt viðtal við Margréti Guðnadóttur, prófessor og veirufræðing. Hér viljum við taka undir hvatningu Þorvaldar og hvetja menn til að nýta sér íslenskar lækningajurtir sem finnast víða í íslenskri náttúru.
Veiruvirk efni í jurtum
Nú er mikið rætt um kórónaveiru, COVID-19, og hefur hún breiðst út og valdið farsótt sem herjar á heimsbyggðina alla. Slíkar farsóttir gerðu mikinn usla á árum áður og varnir eru litlar enn í dag.
Það mun taka tíma að þróa og framleiða hentug lyf og munu ekki allir hafa aðgang að þessum lyfjum.
Þegar slík vá herjar er vert að huga að því hvernig hægt er að efla varnir líkamans á annan hátt, t.d. með því að leita að náttúrulegum veiruvörnum.
Í náttúrunni finnast veiruvarnir sem plöntur hafa þróað en plöntur hafa eigin varnarvopn sem þær hafa þróað á milljónum ára. Þessar veiruvarnir eru margskonar lífvirk náttúruefni sem finnast bæði í grænmeti og ávöxtum og í ýmsum lækningajurtum, m.a. í ætihvönn, blóðbergi og vallhumli.
Til dæmis hefur verið sýnt fram á að ef sellerí er sýkt með veiru þá er framleiðsla á fúranókúmarínefnum örvuð mjög í jurtinni og bæla þessi efni veirufjölgun í jurtinni. Fúranokúmarín eru mikilvæg efnavopn jurta og hefur verið sýnt fram á að þessi efni hafa einnig áhugaverða lífvirkni í mönnum.
Með því að neyta jurta sem hafa veiruvirk efni eða heilsubótarefna sem unnin eru úr þessum jurtum má hugsanlega draga úr áhrifum veirusýkinga. Í ætihvönn eru mörg veiruvirk efni.
Imperatorin er fúranókúmarín sem mikið er af í ætihvönn. Þetta efni hindrar t.d. fjölgun á veiru sem veldur eyðni.
Flavonoídar er stór flokkur lífvirkra efna og eru sum þessara efna virk gegn veirum. Í ætihvönn, vallhumli og blóðbergi eru efni sem hefta vöxt á kvefveirum. Gömul hefð er fyrir því að nota blóðberg við kvefi og flensu. Ekki hefur tekist að bera kennsl á öll veiruvirku efnin í þessum jurtum.
Hagnýtum þekkingu og reynslu fyrri kynslóða
Notkun ætihvannar til lækninga á sér langa sögu. Í Norður-Evrópu töldu menn hvönnina vera eina mikilvægustu lækningajurtina. Auk þess að vera mikilvæg matjurt á Norðurlöndum og Bretlandseyjum var lækningamáttur hvannarinnar vel þekktur meðal norrænna manna. Öll jurtin var notuð til lækninga, bæði laufið og ræturnar sem mátti geyma þurrkaðar árum saman, einnig safaríkir og meyrir blaðstilkarnir svo og fræin sem þroskast síðsumars.
Ætihvönn var talin geta læknað fjölda sjúkdóma. Vallhumall er önnur mjög öflug lækningajurt sem er töluvert mikið notuð, m.a. í græðandi smyrsl.
Náttúra Íslands hefur upp á að bjóða fjölda áhugaverðra lækningajurta, bæði í sjó og á landi, og ættum við að nýta þær betur til að styrkja heilsuna og skapa úr þeim aukin verðmæti. Heimildir: Aniviral potental of medicinal plants against HIV, HSV, influenza and coxsackievirus: Adam M. et al. Phytother. Res. 2018: 32(5): 811-822. Antiviral herbs-present and furure. Huang J. et.al. Infect. Disord. Drug Targets. 2014: 14(1):61-73. Imperatorin Inhibits HIV-I Replication through an Sp1-dependent Pathway. Rochio Sancho et. al. J. Biol. Chem. 2004. 279, 37349-3735."
Geturðu skaffað mér fúranókúmarín dr. Sigmundur? Ég myndi byrja á því að gamma það í mig strax því það er oft gott sem gamlir kveða.
dr. Kári klári verður ekki lengi að finna hvort veirunni líkar við hvönnina.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:30 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
fiski
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
jvj
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko
Athugasemdir
Ég dái alla, sem hafa ofurálit á HVÖNNINNI. Ungur drengur hjá ömmu og afa í VÍK í MÝRDAL bjuggum við til flautur í hrapinu við Reynisfjallið þar sem allt iðaði af Lunda og fuglalífi.
Það var frekar sorglegt þegar SAGA-PRO breytti útliti pillukassanna, sem umluktu pillurnar og HVÖNNINA, sem var svo dæmalaust falleg í litum . Landafunda ÍSLENDINGARNIR fluttu HVÖNNINA með sér til GRÆNLANDS, sem var hugsuð til lækninga.
Við þökkum Dr.Sigmundi í "HVÖNNINNI" og vonum það besta í samvinnu með góðum Kára í IE.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 18.4.2020 kl. 15:51
RUV og góða fólkið hefur harðbannað þessa lækningarjurt
því hún hefur þann fylgikvilla að draga úr Trump hatri
spurðu bara þá sem hafa neytt hennar
Grímur (IP-tala skráð) 18.4.2020 kl. 16:24
Með því að neyta jurta sem hafa veiruvirk efni eða heilsubótarefna sem unnin eru úr þessum jurtum má hugsanlega draga úr áhrifum veirusýkinga. Með því að ganga í ósamstæðum sokkum má hugsanlega draga úr áhrifum veirusýkinga. Viðbótin "hugsanlega" fjarlægir sönnunarbyrðina og gerir allar fullyrðingar gildar.
Í ætihvönn eru mörg veiruvirk efni, en ekkert í því magni að gagnist gegn veirum eftir neyslu. Klínískar rannsóknir hafa ekki sýnt fram á neina virkni ætihvannar gegn veirum, krabbameini eða bakteríum hjá mannfólki, þrátt fyrir sögusagnir og gamlar kerlingabækur.
Fúranókúmarín er efnið sem orsakar blöðrur og útbrot á húð hjá þeim sem snerta plöntur sem innihalda það í einhverju magni. Fúranókúmarín getur aukið virkni eða hindrað virkni margra lyfja, meðal annars blóðþrýstings lækkandi lyfja, ofnæmis og krabbameinslyfja. Fúranókúmarín er að finna í sítrónuberki og greip ávöxtum.
Sölumenn snákaolíu, fæðubótarefna og gervivísinda fara mikinn þessa dagana og sjá gullið tækifæri til að selja sínar gagnslausu vörur sem mögulega lækningu eða vörn. í örvæntingu og fáfræði láta margir blekkjast.
Vagn (IP-tala skráð) 18.4.2020 kl. 17:15
Hér eru stór orð. málið er að ef lyfinu er safnað úr plöntum, sem allir mega nýta, þá er ekki hægt að fá einkaleyfi á lyfinu.
Sá sem getur framleitt það ódýrast fær söluna.
Ef þú færð einkaleifi á lyfi, þá getur þú lagt 1000% +++ á lyfið.
Er það þessvegna, að ekki má nota hydroxychloroquine, er það sama og klórókín sem tölvuþýðing notar og hýdroxýklórókín segir orðabókin?
Hýdroxýklórókín er framleitt í stórun stíl, og notað til að drepa vírusa? ásamt öðrum hreinsiefnum. Þess vegna er hýdroxýklórókín mjög ódýrt.
Skrifað var að pillan kostaði 5 cent, 0,05 $ dollar, dalur.
Egilsstaðir, 18.04.2020 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 18.4.2020 kl. 23:42
Fjalla Eyvindur og Halla voru í útleggð á fjöllum við HVANNA LINDIR um 20 ár. Þar er nefndur Eyvindarhver. Eitthvað HOLLT hefur haldið þeim lifandi auk heitra HVERA. Ég vonast til, að ÍSLENDINGAR eigum enn HVANNALINDIR?.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 19.4.2020 kl. 11:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.