Leita í fréttum mbl.is

Árið 2006

skrifaði Samorka skýrslu um viðbrögð við heimsfaraldri.

Samorka eru samtök orku-og veitufyrirtækja landsins. Þau hafa stjórn nýlega kjörna:

Aðalmenn

  • Helgi Jóhannesson, formaður
  • Berglind Rán Ólafsdóttir, varaformaður
  • Gestur Pétursson, meðstjórnandi
  • Guðmundur Ingi Ásmundsson, ritari
  • Kristín Linda Árnadóttir, gjaldkeri
  • Sigurður Þór Haraldsson, meðstjórnandi
  • Tómas Már Sigurðsson, meðstjórnandi

Varamenn stjórnar

  • Arndís Ósk Ólafsdóttir
  • Elías Jónatansson
  • Guðbjörg Marteinsdóttir
  • Gunnar Hrafn Gunnarsson
  • Hörður Arnarson

Stjórn kjörin á aðalfundi Samorku 10. mars 2020.

Merkilegt er að þessi samtök hafa lítt blandað sér í umræður um farsóttina. En þau hafa sannarlega hugsað fram í tímann þegar þau létu vinna þessa vönduðu skýrslu.

https://www.samorka.is/wp-content/uploads/2016/06/Vi%C3%B0brag%C3%B0sa%CC%81%C3%A6tlun-vegna-farso%CC%81ttar.pdf

Lokaorð hennar voru þessi:

"Það er mat sérfræðinga hérlendis og erlendis að heimsfaraldur inflúensu sé yfirvofandi þótt ekki sé unnt að segja til um hvenær hann skelli á eða út frá hvaða veirustofni hann muni þróast.

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur gefið út leiðbeiningar til þjóðlanda um viðbrögð og fjölmörg þjóðlönd hafa unnið viðbragðsáætlanir eða eru með þær í vinnslu. Yfirvöld þjóðlanda beina almennt þeim tilmælum til fyrirtækja og stofnana að þau geri ráðstafanir til að unnt verði að halda grunnstarfsemi þjóðfélagsins gangandi á meðan farsótt gengur yfir.

Eins og áður segir er vinna í fullum gangi í fjölmörgum starfshópum á vegum Ríkislögreglustjóra og Sóttvarnarlæknis og verður viðeigandi upplýsingum bætt inn í viðbragðsáætlun veitna þegar þær liggja fyrir.

Með þessari vinnu er Samorka að uppfylla ósk forsætisráðuneytisins frá 22. mars 2006 um gerð viðbragðsáætlunar vegna farsóttar (viðauki 4).

Veitufyrirtæki eru eindregið hvött til þess að útbúa eigin viðbragðsáætlun á grundvelli þessara gagna og nota hana síðan í fyrirhugaðri landsæfingu almannavarna snemma á næsta ári. Allar ábendingar um endurbætur á þessum gögnum eru vel þegnar og óskast sendar til Samorku.

Tekið verður tillit til þeirra við endanlega útgáfu skýrslunnar sem áætluð er um næstu áramót. Einnig geta veitufyrirtækin leitað til Samorku sé þörf frekari upplýsinga eða aðstoðar við gerð áætlunarinnar.

Full ástæða er til að taka málið alvarlega og halda þessari vinnu áfram af fullum krafti, þar sem spurningin er ekki hvort, heldur hvenær næsti heimsfaraldur gengur yfir."

"Forsendur ,,veitulíkansins” eru eftirfarandi: • Faraldur getur komið upp hvenær sem er á árinu.

• Ein bylgja sem gengur yfir á 12 vikum. • 50% þjóðarinnar veikjast á 12 vikum (150.000 manns). • 25% vinnufærra starfsmanna eru fjarverandi vegna hjúkrunar aðstandenda eða annarra orsaka af völdum faraldurs. • Tveggja vikna fjarvist þeirra sem veikjast.

• Sama sýkingartíðni í öllum aldurshópum.

• 1,5% af þeim sem veikjast deyja (2.250 manns). Að auki eru að jafnaði 16% starfsmanna fjarverandi af ýmsum orsökum og er tekið tillit til þess.

Gengið var út frá sambærilegri dreifingu yfir tímabilið 12 vikur og Norðmenn hafa sett fram í sinni þjóðaráætlun."

Nú erum við öll hissa og skiljum hvorki upp né niður hversu hægt gengur að stöðva faraldurinn. Faraldurinn núna hefur verið tekinn öðrum tökum en menn sáu þá fyrir  og fjöldasmitun verið hindruð með mörgum aðgerðum. 

En í heild er faraldurinn samt erfiður og  öðruvísi. Hann gæti verið með hugsanlega meiri dánartíðni eftir ríkjum en Samorka gerði ráð fyrir, sem var um 1.5 %-2.5 %  ef helmingur þjóðarinnar myndi smitast. Sem maður getur nú ekki hugsað til enda án þess að spánska veikin kæmi í hugann. 

Auðveldlega hefði þetta getað farið öðruvísi en nú lítur út fyrir ef aðgerðir okkar hefðu ekki tekist og fjöldi smitaðra hefði veldisvaxið. Öll kerfi okkar hefðu geta hrunið og ekki hefði verið við neitt ráðið.

En við verðum að gera okkur ljóst að veiran er hér enn og við erum varnarlítil ef hún sleppur út stjórnlaust. Við höfum engin járn sem bíta ennþá.

Eina von heimsins er að vísindunum takist að finna ráð til að sjá við veirunni.

En það er athyglisvert að glugga í þessa gömlu skýrslu frá 2006 og bera hana saman við nútímann.

Það var sannarlega til hugsandi fólk árið 2006 sem sá framtíðina fyrir þó við og veröldin  svæfum á verðinum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

Þarf að skoða þetta betur.

"Síðustu heimsfarsóttir. Árið 1918 geisaði inflúensufaraldur um heimsbyggðina og létust í þessum faraldi 40-50 milljónir manna um allan heim. Faraldur þessi var hin svo kallaða Spænska veiki. Til Íslands barst Spænska veikin í lok október og breiddist hún hratt út í Reykjavík. Rétt innan við 10.000 manns sýktust eða 65% íbúanna, flestir á fyrstu tveimur vikunum. Í Reykjavík létust 258 manns eða 2,86% þeirra sem veiktust og var dánartíðni hæst meðal fólks á aldrinum 20-40 ára. Alls létust 484 á landinu öllu eða um 0,5% þjóðarinnar. Settar voru upp sýkingavarnir til að hindra útbreiðslu veikinnar sem urðu til þess að veikin barst hvorki norður í land né austur fyrir Flúðir. Árið 1957 geisaði annar innflúensufaraldur, Asíu inflúensan. Þessi heimsfarsótt var ekki eins mannskæð eins og Spænska veikin en þó létust um 2 milljónir manna. Árið 1968 varð svo þriðji inflúensufaraldurinn á öldinni, Hong Kong inflúensan. Í þeim faraldri lést um 1 milljón manna. Á Íslandi ollu þessir faraldrar hækkaðri dánartíðni aðallega meðal eldra og veikburða fólks." 

Haukur Árnason, 19.4.2020 kl. 16:29

2 identicon

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 19.4.2020 kl. 18:17

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þetta er athyglivert. Kannski þessar vangaveltur hafi gleymst í bankahruninu?

Þorsteinn Siglaugsson, 20.4.2020 kl. 10:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3418237

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband