Leita í fréttum mbl.is

VG svari efnislega en ekki með afþvíbara!

fyrir því að að stöðva æskilegar framkvæmdir við varnir landsins  sem bandamenn  okkar telja nauðsynlegar fyrir heildina sem við tilheyrum.

G.Tómas Gunnarsson skrifar skynsamlega um þetta mál:

"Hver er sviðsmynd Vinstri grænna?

"Það hefði verið frábært að fá þessi störf hingað", segir bæjarstjórinn í Reykjanesbæ.  Það má vissulega taka undir það.  Ekki einungis hefðu umrædd störf skapað umsvif, eins og öll störf gera, heldur hefðu þau að stórum hluta verið unnin fyrir "erlendan gjaldeyri", og þannig verið margfalt verðmætari þjóðarbúinu en allra handa átaksverkefni unnin fyrir skattfé.

En lítum fram hjá efnahagsáhrifunum. 

Ég hef lengi velt fyrir mér hvernig sviðsmynd Vinstri grænna í varnarmálum Íslendinga lítur út.

Telur flokkurinn að það sé bábilja að Ísland sé staðsett á hernaðarmikilvægum bletti ef til hernaðarátaka kemur eða stjórnar eitthvað annað ákvörðunum þeirra?

Í síðasta "alheimsófriði" vonuðust Íslendingar og Íslensk stjórnvöld eftir því að þau gætu staðið utan þeirra og lýstu yfir hlutleysi.

Það kom að þó littlu gagni, enda vita líklega flestir að Ísland var hernumið fyrir 80. árum.

Það sama gerðist í Færeyjum.

Það sama gerðist í Noregi.

Það sama gerðist í Danmörku.

Það sama gerðist í Belgíu og Hollandi.

Telja Vinstri græn að meiri líkur séu nú á því að hlutleysi myndi virka ef til umsvifamikilla hernaðarátaka kæmi?

Kæmi sér best fyrir Íslendinga að "standa við höfnina" og velta því fyrir sér hver ætti skipin sem stefndu að landi?

Eða vill flokkurinn einfaldlega ekki "skipa sér í sveit"?

Eins og staðan er í dag er Ísland "í sveit" með vinaþjóðum, s.s. Noregi, Danmörku, Eystrasaltslöndunum, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Bretlandi, Frakklandi svo að nokkur NATO ríki séu talin upp.

Er það tilviljun að að löndin sem nefnd eru hér að ofan og voru hernumin eru aðilar að NATO?

Hafa Vinstri græn ekkert frekar fram að færa um hvernig flokkurinn vill tryggja öryggi Íslendinga á hugsanlegum ófriðartímum, en það sem kemur fram í "Alþjóðastefnu" flokksins?

Á Íslandi er í dag enginn her, en hersveitir vinaþjóða hafa skipst á að dvelja á landinu í nokkrar vikur í senn við eftirlit og æfingar. 

En til að slíkt fyrirkomulag virki til lengri tíma, þarf viðhald og uppbyggingu á mannvirkjum sem tengjast vörnum landsins. 

Hjá slíku verður líklega ekki komist á næstu árum, það er að segja ef vilji er til að "Þjóðaröryggisstefna" Íslands haldi áfram á þeirri braut sem henni hefur verið mörkuð.

En auðvitað má hugsa sér að stjórnarandstaðan leggi fram tillögu á Alþingi um framkvæmdir til að treysta varnarviðbúnað landsins.

Hún gæti í það minnsta skemmt sér og landsmönnum öllum við að fylgjast með viðbrögðum þingmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknar."

Að afgreiða svona má sem einhverja Aronsku heldur ekki vatni sem röksemdafærsla . Af hverju eru þetta óþarfar framkvæmdir sem NATÓ telur nauðsynlegar að ráðast í?

Vilja þau  Andrés Ingi eða Katrín ekki gjöra svo vel fyrir þjóðina  að svara þessu efnislega en ekki með afþvíbara?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 3418323

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband