Leita í fréttum mbl.is

Fullveldisframsal

er á dagskrá tvíburastjórnmálaflokkanna Viðreisnar og Samfylkingar.

Vagn nokkur sem kemur með ýmsar athugasemdir við heimskuleg blogg mín. Í dag hljóðar ein slík svo:

"Vagn: Ef við gefum okkur að Danir, Skotar, Baskar og Bandaríkjamenn séu þjóðir þá er nokkuð ljóst að fullveldi, sjálfstæði, vera í ríkjasambandi og kosning þingmanna kemur þeirri skilgreiningu ekkert við. En að reyna að gera þar einhverja tengingu bendir til þess að sá sem fram setur þá rökleysu hafi veikan málstað að verja."

Einmitt það. Sú rökfærsla að fullveldi Íslendinga sé ekki meira virði en þeir sem Vagn nefnir fellur sem flís að greinum tveggja framsalssinna sem skrifa í Morgunblaðið og Fréttablaðið í dag. Þar fara þeir Benedikt Jóhannesson og Þorsteinn Pálsson með samhliða áróður um kosti þess að framselja fullveldið, ganga í ESB og taka upp Evru. Er þetta tilviljun eða samhæfing á vettvangi Viðreisnar?

Vill þjóðin fara þessa leið? Ef svo er ekki eru þessi sífelldu áróðursskrif svona spekinga í besta falli pirrandi og leiðigjörn. Síbylja um eitthvað sem landsmenn vilja ekki sjá frekar en að opna landhelgina fyrir Spánverjum og öðrum ESB ríkjum eins og Bretar urðu að gera.

Þessir menn eru orðnir einskonar fornaldareðlur sem þvæla um hluti sem enginn hefur áhuga á.Leiðindakurfar sem varla nokkur maður nennir að hlusta á lengur flytja fullveldisframsalsræður sínar.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þegar FULLVELDISFRAMSAL og SJÁLFSTÆÐI fámenni ÍSLENDINGA er rædd af þeirri logandi ákefð Viðreisnar og Samfylkingar að viðbættum Vinstri Grænum um inngöngu í stjórn og getuleysi ESB eru málin orðin grafalvarleg. Hverjir kjósa þessa andstæðinga fullveldisins inn á ALÞINGI?.

Sameiginlegar eignir varðandi ORKUNA og virkjanir auk SÖLU á JARÐEYGNUM bænda eru svik við 300þúsund ÍSLENDINGA. Horfum til Norðurlandana, sem margir óttast og STJÓRNLAUSA fjölmenningu ólíkra þjóða. 

Er þetta verkefni Forsetans?.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 18.6.2020 kl. 12:40

2 identicon

Við vorum þjóð löngu áður en við fengum sjálfstæði og fullveldi. Þannig að rök þín eru augljóslega byggð á ranghugmyndum og vitleysu. Hvort við erum þjóð eða ekki kemur sjálfstæði og fullveldi ekkert við. Og það má vel efast um heilindi þeirra sem telja sig þurfa að setja eitthvað samasem merki þar á milli, gefi maður sér að gáfnafari þeirra sé ekki verulega áfátt.

Vagn (IP-tala skráð) 18.6.2020 kl. 20:23

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Nei Vagn, nú slær útí fyrir þér. Við vorum ekki þjóð fyrir þann tíma

Halldór Jónsson, 18.6.2020 kl. 22:25

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Telur þjóð sem ekki talat sama tungumál sig eina þjóð? Eru ekki dæmi um eitthvað slíkt?

Halldór Jónsson, 19.6.2020 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 3418426

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband