Leita í fréttum mbl.is

Innihaldslaus

að mínu mati eru skrif Loga Más Gunnarssonar formanns annars Samfylkingarflokksins sem fátt sér annað en Evrópusambandsinngönguna til bjargar Íslandi, í Fréttablaðinu í dag.

Ég reyndi að lúslesa þetta til að mynda mér skoðun á því hvert maðurinn er að fara og hver tilgangurinn með skrifunum getur verið.

En  pistillinn er svona:

"Fólk talar um að kreppan sem nú stendur yfir sé öðru­vísi en kreppan árið 2008. En hvernig? Vegna veirunnar hrundi eftir­spurn á vörum og þjónustu, með þeim af­leiðingum að fólk missir unn­vörpum at­vinnu og tekjur og fyrir­tækin þurfa að draga saman seglin eða fara jafn­vel í þrot. Niður­staðan er mesta at­vinnu­leysi á Ís­landi frá upp­hafi mælinga.

Tug­þúsundir Ís­lendinga eru nú án at­vinnu og það er þetta fólk sem er látið vera í fram­línunni við að kljást við kreppuna, ef ekkert er að­hafst. Smám saman getur myndast mikill og hættu­legur munur á stöðu þeirra sem missa vinnu og hinna sem halda vinnunni, ef ekki er hugað sér­stak­lega að stöðu at­vinnu­lausra. Því lengur sem á­standið varir, því meiri verður munurinn, og ó­jöfnuður í sam­fé­laginu eykst. Fjár­hags­vandi, þung­lyndi og van­líðan eru þekktir fylgi­fiskar lang­tíma­at­vinnu­leysis og auka á­lagið á heimilin, öryggis­netið okkar og heil­brigðis­kerfi landsins.

Stærsta verk­efnið sem við stöndum frammi fyrir nú er að skapa störf. En við þurfum líka að ráðast í sér­tækar að­gerðir í þágu at­vinnu­lausra: hækka grunnat­vinnu­leysis­bætur og lengja tíma­bil tekju­tengdra at­vinnu­leysis­bóta.

Við verðum um leið að móta djarfa at­vinnu­stefnu og ráðast í fjár­festingar sem ýta undir fjöl­breytni at­vinnu­lífsins. Við þurfum að styðja við einka­fram­takið, sér­stak­lega lítil og meðal­stór fyrir­tæki, en við skulum líka vera ó­hrædd við að skapa nauð­syn­leg opin­ber störf um allt land. Verk­efnin eru ó­þrjótandi, ekki síst á sviði lofts­lags­mála, og að skjóta rótum undir at­vinnu­líf sem byggir á hug­viti og þekkingu.

Nú er ekki tíminn fyrir hægri kreddur: skrum­skælingu ríkis­af­skipta og á­róður um að einka­væða þurfi ríkis­fyrir­tæki til að afla tekna. Þvert á móti væri á­byrgðar­laust fyrir stjórn­völd að beita sér ekki með af­gerandi hætti – nú er tíminn til að stokka spilin og gefa upp á nýtt; skapa störf, jafna lífs­kjör og ráðast gegn lofts­lags­vandanum í leiðinni."

Hvað er maðurinn að segja?

"Stærsta verk­efnið sem við stöndum frammi fyrir nú er að skapa störf. En við þurfum líka að ráðast í sér­tækar að­gerðir í þágu at­vinnu­lausra: hækka grunnat­vinnu­leysis­bætur og lengja tíma­bil tekju­tengdra at­vinnu­leysis­bóta.

Við verðum um leið að móta djarfa at­vinnu­stefnu og ráðast í fjár­festingar sem ýta undir fjöl­breytni at­vinnu­lífsins. Við þurfum að styðja við einka­fram­takið, sér­stak­lega lítil og meðal­stór fyrir­tæki, en við skulum líka vera ó­hrædd við að skapa nauð­syn­leg opin­ber störf um allt land. Verk­efnin eru ó­þrjótandi, ekki síst á sviði lofts­lags­mála, og að skjóta rótum undir at­vinnu­líf sem byggir á hug­viti og þekkingu."

Er hann að segja eitthvað annað en að skuldsetja ríkið sem allra mest?"hækka grunnat­vinnu­leysis­bætur og lengja tíma­bil tekju­tengdra at­vinnu­leysis­bóta."

Hvað kostar þetta myndi ábyrgur stjórnmálamaður segja. Það gerir Logi ekki.

Hvaðan eiga milljarðarnir sem þetta kostar að koma?

Af skattfé?

Meiri lántöku ríkisins?

"Stærsta verk­efnið sem við stöndum frammi fyrir nú er að skapa störf."

Hvernig sköpum við störf?"

...skjóta rótum undir at­vinnu­líf sem byggir á hug­viti og þekkingu."

Hvernig verða þessi störf til og hvar er þetta síðastnefnda  til húsa sem ekki hefur þegar komið fram?

Einhver dulinn fjársjóður sem Logi veit aleinn manna hvernig á að grafa upp?

"...við skulum líka vera ó­hrædd við að skapa nauð­syn­leg opin­ber störf um allt land. Verk­efnin eru ó­þrjótandi, ekki síst á sviði lofts­lags­mála, og að skjóta rótum undir at­vinnu­líf sem byggir á hug­viti og þekkingu."

Hver borgar fyrir nauðsynleg aukin opinber störf?

Skattgreiðendur eða Lánveitendur?

Hversu arðgæf eru loftslagsmálin?

Verða þau ekki frekar íþyngjandi kostnaður?

Hvar er þetta hugvit og þekking geymt?

Getur Logi bara náð í það og sett allt í gang til að bjarga yfirstandandi vanda?

Ég held að ekkert af þessu sé í hendi Loga Más.

Logi er ekkert slæmur arkitekt, það sést af verkum hans. En það gegnir allt öðru máli að ætla sér leiðtogahlutverk í þjóðarvanda. 

Þar talar arkitektinn af fullkomnu ábyrgðarleysi og með almennum meiningarlausum orðaflaumi. Hann hefur í rauninni ekkert fram að færa nema slagorð sem gætu átt við um eitthvað Sjangríla sem á ekkert sameiginlegt með yfirstandandi Kórónuvanda Íslendinga. En okkar vandi er ekki hvað síst afleiðing af heimsástandinu. 

Vandi heimsins leysist ekki nema til komi mótefni við veirunni. Hann verður lengi að ná sér þó að svo verði sem dr. Fauci aegir að verði ekki nærri strax.

Ekkert af bjargráðum Loga koma til því framkvæmda meðan eftir þessu er beðið.Því allar hans tillögur byggja á meiri vandræðum,  harðræðum og skuldsetningum  í bráð og lengd.

Logi Már Gunnarsson er gersamlega ráðalaus maður sem við skulum öll vona að verði sem lengst frá öllum áhrifastöðum í ríkisstjórn en mætti alveg stunda arkitektúr áfram því þar getur hann þó eitthvað. Og það sama á við um allt sem kemur frá stjórnarandstöðuflokkunum öðrum en Miðflokknum þar sem stundum örlar á einhverju viti.

Svo gersamlega innihaldslaus er þessi pistill hans þegar grannt er skoðað.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég held að það sé rétt hjá honum að það þarf að koma til móts við þá sem nú eru atvinnulausir og eru í þann veginn að fara að lenda á grunnbótum. Til dæmis mætti framlengja tekjutengdar bætur.

Störf verða hins vegar best sköpuð með því að lækka skatta á fyrirtæki. Framlög til nýsköpunar geta skilað einhverju, en ég held að skattalækkanir á fyrirtæki séu almennt miklu betri leið.

En svo er annað sem maður veltir fyrir sér varðandi nýsköpun: Er ekki besta leiðin til að efla nýsköpun sú, að auka áherslu á verkmenntir? Því raunveruleg virðisaukandi nýsköpun sprettur á endanum upp úr iðnaðinum - hún kemur frá fólki á gólfinu sem sér tækifæri til að bæta aðstöðu, vélar og búnað sem það notar í daglegum störfum.

Þorsteinn Siglaugsson, 1.7.2020 kl. 15:28

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þegar síðast var greint frá stöðu þjóðanna í því að "moka" fé í mótvægisaðgerðir vegna COVID- og miðað var við fólksfjölda, voru Íslendingar með minna framlag en flestar nágrannaþjóðir okkar. 

Og athyglisvert var viðtal í 60 mínútum við bankastjóra Seðlabanka BNA í Minneapolis, sem sagði að mistökin 2008 hefðu verið að bregðast of seint og of lítið við í þessu efni. 

Á grundvelli þeirra reynslu þyrfti að bregðast miklu, miklu myndarlegar við nú en þá. 

Ómar Ragnarsson, 1.7.2020 kl. 17:32

3 identicon

Erum við á andafundi með Samfylkingunni og vinstri flokkum. Flokkurinn, sem var "látinn og horfin" er nú næst stærstur stjórnmálaflokka. Árin eru horfin, þegar allir voru í Sjálfstæðisflokknum.

Næstu mánuðir verða að tryggja ÍSLANDI sjálfstæði og full-veldi utan ESB,EES og SCHENGEN. Sjálfstætt ÍSLAND verða að hafa eigin lög og landamæri UTAN afskipta og skipana frá BRUSSEL. Hugsanlega fyrsta stórverk FORSETANS að verja Landið OKKAR.  

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 1.7.2020 kl. 21:17

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Evrópusambandið er í dauðaslitrum Halldór.

Eins og öll þau apparöt sem prenta peninga og skuldfæra á almenning.

Þó Róm hið forna hafi byggt efnahag sinn á þrælum, líkt og glóbalhagkerfið sem Trump skoraði á hólm líkt og Don-inn áður sem réðst á vindmyllur, þá er þrældómur tilbúinna skulda ekki arfur Ítala sem og annarra menningarþjóða við Miðjarðarhafið.

Logi er bara bjáni, segjum það hreint út.  En fullorðinn bjáni, það er meir en hægt er að segja um marga í ríkisstjórninni.

Takk fyrir pistil og hugleiðingar Halldór.

Góðar athugasemdir hér að ofan.

Kveðja að austan.

PS, nú er tíminn kominn á aðra lokun fyrir gamla menn, ráð að byrgja sig upp af guðaveigunum sem guðirnir fólu Skotum að skapa.

Ómar Geirsson, 2.7.2020 kl. 10:03

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Rétt upp hönd sem hefur séð stjórnmálamann skapa starf.

Guðmundur Ásgeirsson, 2.7.2020 kl. 18:08

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk allir fyrir ykkar undirtektir.

"Kunst kommt nicht vom wollen sondern können" sagði dr. Göbbels við Söru Leander. Ég held að það gildi líoka um nýsköpun í hverju sem er, líka í atvinnulífi Hættan er sú ef stjórnmálabjálfi fer að úthluta skattfé í einhverja sem segjast hafa fundið upp nýja snákaolíu, að við sitjum uppi með minna en ekki meira.

Varðandi veiruna er Ómar með tímabæra aðvörun því mér sýnist almennt að fólk haldi að veiran sé farin og er farið að hegða sér eftir því.

Halldór Jónsson, 2.7.2020 kl. 19:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 3418323

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband