Leita í fréttum mbl.is

Af hverju?

er Dyflinnarreglugerðinni ekki fylgt fastar eftir?Endursendingar samkvæmt henni ná varla 10 af hundraði sem úrlausn umsóknarmála.  

Hér safnast hundruðir mála upp á hverju ári. Þetta fólk þarf að sjá um með húsnæði og framfæri, sjúkraþjónustu sem annað. Málin dragast og börnin ganga í skóla. Og svo verður allt vitlaust þegar málið er loks afgreitt af því að krakkarnir tala íslensku.

dyflin2020

 

 

 

 

 

 

 

 

Á vef útlendingastofnunar www.utl.is eru upplýsingar um hvernig er farið með umsóknir um alþjóðalega vernd.

Algengar spurningar


Þeir sem sæta ofsóknum í heimalandi sínu eða heyra af öðrum ástæðum undir flóttamannahugtakið samkvæmt íslenskum lögum eiga rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi. Þegar knýjandi ástæður á borð við alvarlega sjúkdóma eða sérlega erfiðar félagslegar aðstæður í heimalandi eru til staðar er heimilt að veita dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Sjá nánar hér.

Flóttamaður er sá sem fengið hefur veitta alþjóðlega vernd vegna ótta við ofsóknir í heimalandi sínu eða á öðrum grundvelli samkvæmt lögum. Sjá nánar hér.

Umsækjandi um alþjóðlega vernd er sá sem lagt hefur fram umsókn um alþjóðlega vernd án tillits til þess hvort hann telst flóttamaður. Flóttamaður er sá sem veitt hefur verið alþjóðleg vernd.

Sótt er um vernd hjá lögreglunni eða Útlendingastofnun sem sjá um fyrstu skref umsóknarferlisins. Umsókn er svo eftir atvikum send áfram til Útlendingastofnunar sem tekur hana til meðferðar. Sjá nánar hér.

Samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga þarf einstaklingur sem vill sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi að vera staddur hér á landi eða sækja um vernd við komu til landsins. Þess vegna eru umsóknir sem berast í tölvupósti, faxi eða á annan viðlíka hátt ekki teknar til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Teljir þú þig þurfa á vernd að halda bendir stofnunin þér á að leita aðstoðar hjálparsamtaka í þínu heimalandi og sérstaklega skal bent á flóttamannstofnun Sameinuðu þjóðanna.

Afgreiðsla umsókna um alþjóðlega vernd tekur mislangan tíma eftir tegund málsmeðferðar. Í forgangsmeðferð eru umsóknir afgreiddar á nokkrum dögum, afgreiðsla á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar tekur rúma þrjá mánuði og í hefðbundinni efnismeðferð eru mál að jafnaði afgreidd á rúmum sjö mánuðum. Sjá nánar hér.

Rauði kross Íslands sér umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir löglærðum talsmönnum og annarri réttaraðstoð við meðferð umsóknar hjá Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd njóta aðstoðar túlka við meðferð máls þeirra hjá Útlendingastofnun. Reynt er eftir fremsta megni að fá túlk á móðurmáli umsækjanda eða öðru máli sem umsækjandi hefur fullnægjandi tök á. Í sumum tilfellum getur þurft að beita svokallaðri tvöfaldri túlkun þar sem einn túlkur þýðir úr einu máli á annað og annar túlkur þýðir úr seinna málinu.

Allar ákvarðanir Útlendingastofnunar varðandi umsóknir um alþjóðlega vernd er hægt að kæra til kærunefndar útlendingamála. Sjá nánar hér.

Dyflinnarreglugerðin mælir fyrir um hvaða aðildarríki reglugerðarinnar beri ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd en í því felst að taka afstöðu til þess hvort umsækjandi þurfi á vernd að halda. Allar umsóknir um vernd hér á landi eru því fyrst skoðaðar með hliðsjón af því hvort öðru aðildarríki sé skylt að fjalla um umsóknina og taka aftur við umsækjanda. Beri annað aðildarríki ábyrgð á meðferð umsóknar um vernd taka íslensk stjórnvöld ekki afstöðu til þess hvort umsækjandi þurfi á vernd að halda þar sem viðtökuríkinu samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni ber að meta þörfina og veita tilskylda vernd. Sjá nánar hér.


Upplýsingar um fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd eftir ríkisfangi og kyni er að finna á tölfræðivefsvæði verndarsviðs.

Upplýsingar um niðurstöður afgreiddra umsókna um alþjóðlega vernd eftir ríkisfangi er að finna á tölfræðivefsvæði verndarsviðs.
 
Margt vekur athygli við lestur upplýsinganna. Það er eins og að Dyflinareglugerð sæti afgangi í umfjöllun um umsóknir um alþjóðalega vernd.Flestir sem hingað koma fara í gegn um Evrópulönd og ber þeim að sækja fyrst um í því ríki sem fyrst er komið til. Það er ekki útskýrt hversvegna svo mörgum málum er vísað til efnismeðferðar hér á landi en ákvæðum Dyflinnarreglugerðar ekki beitt.
 
"Dyflinnarreglugerðin mælir fyrir um hvaða aðildarríki reglugerðarinnar beri ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd en í því felst að taka afstöðu til þess hvort umsækjandi þurfi á vernd að halda. Allar umsóknir um vernd hér á landi eru því fyrst skoðaðar með hliðsjón af því hvort öðru aðildarríki sé skylt að fjalla um umsóknina og taka aftur við umsækjanda. Beri annað aðildarríki ábyrgð á meðferð umsóknar um vernd taka íslensk stjórnvöld ekki afstöðu til þess hvort umsækjandi þurfi á vernd að halda þar sem viðtökuríkinu samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni ber að meta þörfina og veita tilskylda vernd. Sjá nánar hér."

Er ekki farið eftir þessu hjá útlendingastofnun? Hvervegna skyldi það vera ef svo er?

Hafa íslenskir lögfræðingar atvinnu af því að kæra úrskurði og tefja mál? Afleiðing er sú að hér safnast upp hópar umsækjenda með tilheyrandi kostnaði?. Eru umsækjendur undirbunir um að ráða sér lögfræðing á okkar kostnað væntanlega því ekki eru umsækjendur líklega efnafólk.

Hvernig stendur á því að einn þegna frá ríki þar sem milljónir manna búa þarf vernd umfram aðra í landinu? Af hverju er hann svona sérstakur? Er hann þá ekki bara alveg eins  glæpamaður á flótta undan misgerðum sínum? Hver kannar slíkt og er það kannað hvort umsækjandi sé ekki eftirlýstur í heimalandinu fyrir glæpaverk áður en við honum er tekið hér?Hafa ekki verið dæmi um slíkt hérlendis?

Geta allir farið í flugvél og flogið til Íslands til að sækja hér um alþjóðlega vernd? 

Má ekki spyrja af hverju þessi mál gangi svona fram með þessum árangri?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 3418443

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband